Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.02.1999, Qupperneq 17
Tafla 1 Aldur og menntun foreldranna
Flokkur Mæður Feður
(N= 75) (N= 62)
Meðaltal (SF) Bil Meðaltal (SF) Bil
Aldur 32,69 (5,18) 22-44 35,33 (6,47) 22-51
Menntun í árum 15,22 (2,57) 12-24 15,32 (2,96) 9-24
Tafla 2
Einkenni foreldranna
Flokkur Mæður Feður
(N= 75) (N=62)
n % n %
Atvinnuhættir
Vinna ekki utan heimilis 19 25,3 0 0,0
Hlutastarf 31 41,3 3 4,8
Fullt starf 21 28,0 56 90,3
Fullt starf / Önnur vinna 4 5,3 3 4,8
Kynþáttur *
Bandaríkjamenn af evrópskum ættum 67 90,5 57 93,4
Bandaríkjamenn af afrískum ættum 4 5,4 2 3,3
Aðrir 3 4,1 2 3,3
Hjúskaparstaða
Gift 59 78,7 53 86,0
Skilin og gift í annað sinn 6 8,1 6 8,6
Ekkjur/ekklar og gift í annað sinn 1 1,3 1 1,6
Samþúð 1 1,3 1 1,6
Einstæðir foreldrar 8 10,6 1 1,6
* N er breytilegt vegna þess að gögn vantar
22 til 51 árs. Menntun mæðranna var að meðaltali 15,22
ár (SF=2,57) og menntun feðranna var svipuð eða að
meðaltali 15,32 ár (SF=2,96) (sjá töflu 1). Engin mæðranna
en einn feðranna hafði minna en 12 ára skólagöngu. Nítján
mæðranna (25,3%) unnu ekki utan heimilisins, 31 (41,3%)
vann hlutastarf og 21 mæðranna (28%) vann fulla vinnu.
Fjórar mæðranna (5,3%) voru í tveimur störfum. Flestir
feðranna (56 eða 90,3%) unnu fulla vinnu, þrír feður (4,8%)
voru í tveimur störfum og þrír feður (4,8%) unnu hlutastarf.
Enginn feðranna var atvinnulaus (sjá töflu 2). Flestar
mæðranna (90,5%) og flestir feðranna (93%) voru Banda-
ríkjamenn af evrópskum uppruna. Fjórar mæður (5,4%) og
2 feður (3,3%) voru Bandaríkjamenn af afrískum uppruna
og þrjár mæður (4,2%) og tveir feður (3,2%) voru af öðrum
þjóðernum (sjá töflu 2). Flestar mæðranna (67 eða 89,4%)
og flestir feðranna (61 eða 98,4%) voru gift eða í sambúð.
Sjö mæður (10%) og 7 feður (10,2%) höfðu annaðhvort
skilið, voru ekkjur/ekklar eða höfðu gifst í annað sinn. Átta
mæður (11,4%) og 1 faðir (1,6%) voru einstæðir foreldrar
(sjá töflu 2). Foreldrarnir höfðu verið giftir eða í sambúð að
meðaltali í 8,43 ár (SF=3,66; frá 4 mánuðum uþþ í 19 ár)
(sjá töflu 3). Meðalfjöldi þarna í núverandi hjónabandi var
1,62 (SF=,95) og var fjöldi barna á bilinu frá 0-4 börn.
Tuttugu foreldrar (26,3%) áttu barn/börn frá fyrra hjóna-
bandi eða frá fyrra hjónabandi makans (sjá töflu 3).
Tuttugu og sex fjölskyldur (34,2%) áttu einungis eitt barn
þ.e. unga barnið með astmann. Fimmtíu fjölskyidur áttu
önnur börn umfram barnið sem greint var með astmann
(sjá töflu 3). Meðaltekjur (miðgildi) fjölskyldunnar voru
2.450.000 - 3.150.000 kr. á ári.
Fimmtíu og þrjú barnanna, sem voru greind með
astmann, voru drengir (69,7%) og 23 börn voru stúlkur
(30,3%). Meðaltíminn frá því börnin voru greind með
astmann var 2,14 ár (SF=1,29) og voru þau greind á bilinu
17
Tímarit hjúkrunarfræðinga ■ 1. tbl. 75. árg. 1999