Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.10.2001, Side 22

Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.10.2001, Side 22
komi t.d. meira inn í móttöku og símaráðgjöf. Ein mesta breytingin varðandi hjúkrunarfræðinga er að þeir verða sýnilegri innan heilsugæslunnar, þeir hafa verið mest í ung- barna- og mæðravernd, heimahjúkrun og skólahjúkrun en í tillögunum er gert ráð fyrir að starfssvið þeirra víkki. Hjúkrunarfræðingurinn er t.d. yfirleitt sá aðili sem skjól- stæðingurinn fær fyrst samband við og í flestum tilfellum er verið að óska eftir viðtali við lækni en hjúkrunarfræðing- urinn getur greint og oft afgreitt erindi skjólstæðings eða vísað honum á þann aðila sem hefur bestu sérþekkingu til að sinna málum hans. Áhersla er lögð á að hver starfsstétt vinni það starf sem hún er sérhæfð til og þannig sé hæfni hvers nýtt sem best.“ -Hvað um að fá fleiri starfsstéttir til þjónustu við heilsu- gæsluna, svo sem félagsráðgjafa og sálfræðinga? „Það hefur verið rætt, iðjuþjálfar og sjúkraþjálfarar hafa t.d. unnið á heilsugæslustöðvum. En það hefur verið erfitt að fá fjárheimild og aðstöðu, það þarf að skilgreina betur það forvarnastarf sem þessir aðilar vinna. Það koma fjöl- mörg vandamál til heilsugæslunnar sem eru andlegs eðlis, enn sem komið er höfum við ekki tíma eða aðstöðu til að sinna þessum skjólstæðingum eins vel og við vildum, en ef við hefðum sálfræðing og félagsráðgjafa gætum við veitt betri þjónustu. Styrkleiki heilsugæslunnar er samfella, nálægð við skjólstæðinginn og það er auðvelt að nálgast þjónustuna, mun auðveldara en að nálgast þjónustu annarra sérfræðinga. Samband milli heimilislæknis og skjólstæðings er mjög náið. Unga fólkið, sem er að koma nú sem skjólstæðingar, er þó öðruvísi að því leyti að það vill fá þjónustuna hér og nú og skiptir þá minna máli hvort þeir hafi haft tengsl við einstaka starfsmenn." Þórunn segir stefnuna, sem mótuð hefur verið til næstu fimm ára, tilbúna nú í haust og verður þá samin áætlun um hvernig henni verður komið í framkvæmd. Gert er ráð fyrir ákveðinni heildarstefnu sem allar heilsugæslustöðvar vinni eftir en hver stöð um sig getur þó útfært hana eftir hverfum og íbúasamsetningu. Þegar stefnan hefur komið til framkvæmda verður fylgst með því hvort henni sé fram- fylgt. Meðal þjónustuþátta er öflug almenn læknis- og hjúkrunarþjónusta, geðvernd, unglingavernd, heilsuvernd aldraðra og forvarnir vegna áfengis- og vímuvarna og smitsjúkdóma. Þórunn segir að auka þurfi almenna fræðslu um ýmis efni og verði því komið á heimasíðu og í þar til gerða fræðslubæklinga. Meðal veigamikilla breytinga er stefnt að því að koma á fót miðstöð heimahjúkrunar en hlutverk hennar er að sinna öflugri og samræmdri sólar- hringsþjónustu og sinna þeim skjólstæðingum sem þurfa sérhæfða og umfangsmikla heimahjúkrun. „Jafnframt erum við með starfandi vinnuhóp sem er að leggja drög að því að skipuleggja eftirlit með heilsufari aldraðra á hverfisstöð fyrir þá sem eru að byrja að vera óöruggir, það fólk yrði t.d. heimsótt einu sinni, því boðið 246 að koma í viðtal á stöðina eða talað við það í síma. Sjúkra- húsin útskrifa nú fólk sem er mun veikara en það var fyrir 5 árum. Við þurfum að greina hverjir þurfa vitjunar við og hverjir geta komið á heilsugæslustöðina. Við höfum unnið í nánum tengslum við heimaþjónustu Reykjavíkurborgar og Svæðisskrifstofu Reykjavíkur varðandi aldraða og fatlaða. Við höfum ekki náð að halda eins vel utan um þessa þjónustu og við teljum nauðsynlegt en með tilkomu mið- stöðvar heimahjúkrunar vonumst við til að geta veitt mun betri þjónustu. Fyrst um sinn verður heimahjúkrunin þó veitt að hluta til á heilsugæslustöðvunum, fyrsti áfanginn flyst út um áramótin, þ.e. kvöld-, nætur- og helgarþjónusta og þeir sem ekki eru skráðir með heimilislækna á viðkom- andi heilsugæslustöð. Seinni áfanginn verður síðan á miðju næsfa ári, þá munum við skoða hvernig hefur gengið og hvort við erum tilbúin til að stíga skrefið til fulls og flytja alla þjónustuna." Annar mikilvægur þáttur heilsugæslunnar er skóla- hjúkrunin. Hlutverk heilsugæslunnar á lögum samkvæmt að vera forvarnir og eftirlit með heilsufari og aðbúnaði skólabarna. Þórunn segir að hlutverkið hafi þó breyst mikið á undanförnum árum, nú séu mun fleiri börn með heilsufarsleg vandamál í skólunum. Mikið er um ofvirk eða misþroska börn. Þá er einnig töluvert um börn með ofnæmi, sykursýki og flogaveiki. „Við höfum mikið rætt um hvort heilsugæslan eigi að sinna meðferð þessara barna í skólanum. Þá höfum við rætt heilsugæslu í framhaldsskól- unum. Okkur finnst hafa tekist vel til með efri bekki grunn- skóla og við höfum náð vel utan um það en framhalds- skólanemum þarf að sinna betur. Það þarf t.d. að kanna hvað veldur því þegar börn hætta að mæta í skólann, ungt fólk á þessum aldri býr oft við mikla streitu og kreppu og skipulagt eftirlit og forvarnir geta haft mikið að segja í því sambandi." -Hvernig sérð þú þróun heilsugæslunnar í framtíðinni? „Ég vona að við náum að framfylgja þeirri framtíðarsýn sem við höfum sett okkur, að heilsugæslan stuðli að bættu heilbrigði íbúanna með markvissri, samfelldri og aðgengi- legri þjónustu og vinni að betra lífi íbúanna með því að efla heilsu þeirra og þróa þjónustuna. Ég vil sjá heilsugæsluna í fararbroddi í almennri heil- brigðisþjónustu og að hún hafi á að skipa starfsfólki sem leggur metnað sinn í að þjóna skjólstæðingunum af fag- mennsku og virðingu. Þetta krefst fjölbreyttari þjónustu og aukinnar sérhæf- ingar hjúkrunarfræðinga. Fáar hjúkrunarrannsóknir hafa verið gerðar hér á landi innan heilsugæslu og þær þarf að efla. Til þess að svo megi verða þurfum við á hjúkrunarfræðingum að halda sem hlotið hafa framhaldsmenntun bæði í klínísku og rannsóknartengdu námi. Jafnframt þurfum við að efla enn frekar samstarf við hjúkrunardeild Háskóla íslands." Tímarit hjúkrunarfræðinga • 4. tbl. 77. árg. 2001

x

Tímarit hjúkrunarfræðinga

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit hjúkrunarfræðinga
https://timarit.is/publication/1159

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.