Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.10.2001, Page 24

Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.10.2001, Page 24
Ráðstefna um $i s\\ v[ \ 'v X1 m ir m p # , f MWr flijwr Ráðstefnan var vel sótt. Fagdeild geðhjúkrunarfræðinga innan Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga og fræðsluráð hjúkrunar á geðsviði hélt ráðstefnu 21. sept. sl. um siðfræði geðheilbrigðisstétta. Ráðstefnan var sett af Eydísi Sveinbjarnardóttur, sviðsstjóra geðsviðs LSH. Fyrirlesarar voru Stefán Hjörleifsson, læknir og heimspekingur, sem ræddi um siðfræði, virðingu og reisn, dr. Páll Biering, hjúkrunarfræðingur, ræddi um siðferðileg álitamál varðandi innlagnir unglinga á geðdeildir, Héðinn Unnsteinsson, framkvæmdastjóri Geðræktar, hélt erindi sem nefndist fimm tígrisdýr og jarðarber og Styrmir Gunnarsson, ritstjóri, hélt erindi um siðferðileg álitamál sem upp koma í samskiptum geðsjúkra og aðstandenda þeirra. Þá fjallaði Óttar Guðmundsson, geðlæknir, um valfrelsi sjúklinga, Jóhanna Bernhardsdóttir, lektor, var með hugleiðingu um hin ýmsu andlit geðhjúkrunar og Laura Scheving Thorsteinsson, hjúkrunarframkvæmdastjóri gæðmála LSH, fjallaði um tilfinningagreind. Að loknum fyrirlestrum var fyrirlesurum boðið að taka þátt í í pallborðsumræðum. Stjórnandi pallborðsumræðna var Kristín Thorberg, geðhjúkrunarfræðingur. Fundarstjóri ráð- stefnunnar var Helga Jörgensdóttir, geðhjúkrunarfræðingur. Siðferðileg álitamál virðast vera ofarlega í huga margra því ráðstefnuna sóttu 170 manns. Undirbúningsnefnd ráð- stefnunnar vill þakka öllum ráðstefnugestum áhugann og hvetur hjúkrunarfræðinga til að halda umræðunni á lofti. Páll Biering var meðal fyrirlesara. 248 Tímarit hjúkrunarfræðinga • 4. tbl. 77. árg. 2001

x

Tímarit hjúkrunarfræðinga

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit hjúkrunarfræðinga
https://timarit.is/publication/1159

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.