Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.10.2001, Side 41
skráð hefur verið. Það er reyndar búið að tengja sjúkraliða á
hjúkrunar- og endurhæfingardeildinni í teymi með tilteknum
hjúkrunarfræðingum og þar er kominn vísir að
einstaklingshæfðri hjúkrun sem gaman er að fylgjast með. Á
þeirri deild var hætt við límmiðakerfið eftir 3ja mánaða
notkun þar sem við töidum það ekki henta nógu vel og
fórum við þá að flokka NANDA-greiningar meira eftir RAI-
matinu og settum inn matslyklana frá 0-4. Ég tel okkur þurfa
að huga að öðrum áherslum í staðlaðri skráninu fyrir
öldrunargeirann. Þá munum við líka í vetur skoða betur
skráninguna sem snýr að fæðingum og sængurlegunni, sú
vinna byrjaði í fyrra en henni er ekki lokið.“
„Það þarf að prófa þetta kerfi á fleiri stöðum og kenna
fólki að nota staðlaða skráningu,“ segir Jóhanna Fjóla.
Hún segir í undirbúningi að prófa notkun á NOC-
flokkunarkerfinu sem er yngsta kerfið og metur árangur
hjúkrunarmeðferðar. „Á undanförnum árum hafa komið fram
auknar kröfur um aukin gæði og hagkvæmni í heilbrigðis-
þjónustunni, meira er talað um nauðsyn þess að meta
árangur þeirrar meðferðar sem veitt er. Það er ekki hægt að
meta gæði og árangur meðferðar með því að nota ein-
göngu NANDA og NIC. Mig langar því til að fá starfsfólkið til
að prófa NOC á afmörkuðum þáttum þjónustunnar í vetur
og tel að þessi stofnun sé tilvalin til þess þar sem stöðluð
hjúkrunarskráning er komin lengst hér á landinu og
starfsfólkið hefur nauðsynlega undirbúningsreynslu.
Lokastigið í þessu breytingarferli hjá okkar, sem stefnt
er að náist fyrir áramótin, er að fara að bera meðferðina
undir sjúkiingana og hafa meira samráð við þá eins og gert
er ráð fyrir í reglum um réttindi sjúklinga."
Hún segir að komið hafi óskir frá nokkrum stöðum á
landinu að nota þetta kerfi. „Það þarf að prófa þetta kerfi á
fleiri stöðum og kenna fólki að nota staðlaða skráningu og
undirbúa þannig komu rafrænnar skráningar. Ég er
nokkuð viss um að það mun enginn sakna handskrán-
ingar.“ Hjúkrunarfræðingar hafa verið gagnrýndir fyrir að
vera alltaf að skrifa og skrá upplýsingar og Jóhanna segir
að það þurfi að hlusta á þá gagnrýni og velta því til dæmis
fyrir sér hvort skráð sé of mikið af óþarfa upplýsingum.
„Rafræn skráning mun verða að veruleika á sjúkrahúsum
innan fárra ára og við verðum að undirbúa það vel og
tryggja að hugbúnaðurinn verði vinnuvænn og tímaspar-
andi. Sums staðar eriendis, þar sem farið er að nota raf-
ræn sjúkraskrárkerfi, hefur ekki gengið nógu vel og tekið
of langan tíma að skrá. Ég hef séð tölur um að allt að 40%
vinnutímans geti farið í að skrá í þessum kerfum, þetta má
ekki gerast hjá okkur. Ég hef ekki tölur frá íslandi hvað
mikill tími hjúkrunarfræðinga fer í skráningu en ætla má að
það geti verið allt að 20-25 % af hverri vakt sem mér finnst
of mikið. Við þurfum að leita leiða til tryggja að tíminn, sem
fer í skráninguna, styttist frekar en hitt. Það er ýmislegt
sem við þurfum að skoða í okkar starfi og vil ég nefna
miðlun munnlegra upplýsinga á vaktaskiptunum sem ég
hef mikið hugsað um og reynt að breyta hér. Ég tel að á
flestum stöðum sé eytt of miklum tíma í þetta. Þessi gamla
hefð var nauðsynleg meðan skráningin var lítil, núna er
miklu meira skráð og hver og einn getur gengið að flestum
þeim upplýsingum sem þörf er á hverju sinni en samt eru
teknar um 30 mínútur í upphafi hverrar vaktar til að miðla
því sem hver og einn getur í raun bara lesið." Jóhanna
telur að í framtíðinni verði meira um samræmda skráningu
hjá öllum heilbrigðisstarfshópum. „Við megum aidrei
gleyma því að allt snýst þetta auðvitað um sjúklinginn og
það þurfum við að horfa á og í framtíðinni verður eflaust
meira um þverfagiega skráningu inni á sjúkrahúsum."
Hún segir að lokum að gaman væri að heyra frá öðrum
sjúkrastofnunum um hvernig gangi með skráninguna þar.
Miklar breytingar muni eiga sér stað þegar rafræn sjúkra-
skráning verðurtekin í notkun. „Flokkunarkerfin eru ung að
árum en ég hef mikla trú á þeim. Það er búið að vinna
mikið og merkilegt starf sem á eftir að nýtast okkur í fram-
tíðinni og þessi vinna heldur áfrarn." Hún segist horfa til
rannsóknahóps í lowa í Bandaríkjunum sem hefur unnið
þessi flokkunarkerfi og telur að allir hjúkrunarfræðingar
þurfi að kynna sér þá vinnu og fylgjast með þróuninni.
Tímarit hjúkrunarfræðinga • 4. tbl. 77. árg. 2001
265