Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.10.2001, Síða 54

Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.10.2001, Síða 54
ATVINNA ÍCTÍtrtftS) heilbrigðisstofnuninselfossi Heilbrigðisstofnunin, Selfossí Hjúkrunarfræðingar Hjúkrunarfræðingar óskast til starfa á hand- og lyflæknissviði sjúkrahússins í fasta stöður. Á deildinni er fjölþætt og spennandi hjúkrun við góðar aðstæður. Fræðsla og símenntun er talsverð. Vinnuhlutfall og vaktafyrirkomulag er samningsatriði. Athugið, einnig vantar hjúkrunarfræðing á næturvaktir. Greitt er sérstaklega fyrir þær. Hjúkrunarfræðinga vantar á Ljósheima, ianglegudeild sjúkrahússins, í fastar stöður. Á Ljósheimum eru ýmsar nýjungar á döfinni og virk hjúkrun fyrir aldraða. Þar eru hjúkrunarfræðingar á tvískiptum vöktum en bakvöktum á nóttunni. Á Ljósheimum eru 26 hjúkrunarpláss, þar af eru 2 nýtt til hvíldarinnlagna. Aðstoðum við útvegun húsnæðis. Nánari upplýsingar um verkefni sjúkrahússins, starfsumhverfi, launakjör og aðra þætti gefur Aðalheiður Guðmundsdóttir, hjúkrunarforstjóri, sími 4821300, GSM 8615563 adalheidur.gudmundsdottir@hss.selfoss.is Hrafnista í Reykjavík og Hafnarfirði Hjúkrunarfræðingar Hrafnista í Hafnarfirði Hjúkrunarfræðinga vantar á kvöld- og helgarvaktir. Stöðuhlutfall samkomulag. Upplýsingar veitir Alma Birgisdóttir í síma 585-3000 eða 585-3101. Leikskóli er á staðnum. Hrafnista í Reykjavík Aðstoðardeildarstjóra vantar á hjúkrunardeild. Einnig vantar hjúkrunarfræðinga á morgun- og kvöldvaktir. Stöðuhlutfall samkomulag. Upplýsingar veitir Halldóra Hreinsdóttir í síma 585-9500 eða 585-9401. Einning er hægt að sækja um störf á heimasíðu Hrafnistu, www.hrafnista.is. 278 FfrahciskusspItali iBlSIYKKISHOlMI HJÚKRUNARFRÆÐINGAR Á sjúkradeild St. Franciskusspítala í Stykkishólmi vantar hjúkrunarfræðinga til starfa. í boði eru morgun- og kvöldvaktir. Auk þess eru í boði bakvaktir sem skiptast með hjúkrunarfræðingum. Starfshlutfall er samkomulagsatriði. Unnin er önnur hver helgi. Við bíðum áhugasamar eftir því að taka á móti þeim sem vilja koma í heimsókn og skoða, jafnframt eftir því að kynna verkefni sjúkrahússins og hvað Stykkishólmur hefur upp á að bjóða. Margrét Thorlacius, hjúkrunarforstjóri (netfang margret@sfs.is), og Hrafnhildur Jónsdóttir, hjúkrunardeildarstjóri (netfang hrafnhildur@sfs.is), í síma 438-1128 ST. JÓSEFSSPÍTALI SttS HAFNARFIRÐI Lausar stöður Lyflækningadeild Hjúkrunarfræðingar Laus er staða hjúkrunarfræðings á lyflækningadeild spítalans sem fyrst eða eftir nánari samkomulagi. Á deildinni fara fram fjölbreytt og áhugaverð störf sem eru í stöðugri þróun hvað varðar framför í hjúkrun. Hjúkrunarfræðingar í Hafnarfirði og nágrenni, þetta er mjög góður kostur fyrir ykkur. Þetta er skemmtileg deild og svo er stutt í vinnu sem hentar vel. Þetta er fjölskylduvænt, sérstaklega hjúkrunarfræðingum með börn. Komið gjarnan í heimsókn til okkar og við segjum ykkur nánar frá starfseminni og vaktafyrirkomulagi. Unnið er þriðju hverja helgi 8 tíma vaktir. Einnig eru lausar eingöngu nætur- og helgarvaktir. Nánari upplýsingar veitir Birna Steingrímsdóttir, hjúkrunardeildarstjóri, í síma 555 0000 eða Gunnhildur Sigurðardóttir, hjúkrunarforstjóri, í síma 555 0000. Sjúkrahúsið og heilsugæslustöðin á Akranesi Hjúkrunarfræðingar, takið eftir Óskum eftir hjúkrunarfræðingum til starfa á eftirtaldar legudeildir: handlækningadeild hjúkrunar- og endurhæfingardeild lyflækningadeild í gangi er spennandi þróunan/inna á öllum deildum sem byggir á notkun staðlaðra flokkunarkerfa (NANDA, NIC og NOC). Lögð er áhersla á að gæði hjúkrunar og þarfir sjúklinga séu hafðar að leiðarljósi. Hér er gullið tækifæri fyrir áhugasama hjúkrunarfræðinga að læra nýjar áherslur í skráningu sem hjúkrun framtíðarinnar mun byggja á. í boði er einstaklingshæfð aðlögun með reyndum hjúkrunarfræðingum ásamt kennslu í notkun flokkunarkerfa. Getum einnig boðið nokkrum 3. og 4. árs nemum vinnu um helgar í vetur. Hafið endilega samband og fáið nánari upplýsingar, m.a. um launakjör og vinnufyrirkomulag. Upplýsingar gefur Steinunn Sigurðardóttir hjúkrunarforstjóri í síma 430 6000. Sjúkrahúsið og heilsugæslustöðin á Akranesi (SHA) skiptist í sjúkrasvið og heilsugæslusvið. Á sjúkrasviði er starfrækt fjölgreinasjúkrahús með örugga vaktþjónustu allan sólarhringinn árið um kring. Sjúkrahúsið veitir almenna og á vissum sviðum sérhæfða sjúkrahúsþjón- ustu á lyflækningadeiid, handlækn- ingadeild, fæðingar- og kvensjúkdóma- deild og á vel búnum stoðdeildum þar sem höfuðáhersla er lögð á þjónustu við íbúa Vestur- og Suðvesturlands. Jafnframt er lögð áhersla á þjónustu við íbúa höfuðborgarsvæðisins. Á heilsugæslusviði er veitt almenn heilsu- gæsluþjónusta fyrir íbúa í heilsugæslu- umdæmi Akraness með forystuhlutverk varðandi almenna heilsuvernd og forvarnarstarf. SHA tekur þátt í menntun heilbrigðisstétta í samvinnu við Háskóla íslands og aðrar menntastofnanir. Starfsmenn stofnunarinnar eru um 240 talsins. Tímarit hjúkrunarfræðinga • 4. tbl. 77. árg. 2001

x

Tímarit hjúkrunarfræðinga

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit hjúkrunarfræðinga
https://timarit.is/publication/1159

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.