Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.06.2006, Blaðsíða 8

Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.06.2006, Blaðsíða 8
Elsa B. Friðfinnsdóttir, formaður FÍH, elsa@hjukrun.is VIÐHORFSKÖNNUN FÉLAGS ÍSLENSKRA HJÚKRUNARFRÆÐINGA í starfsáætlun Félags íslenskra hjúkrunar- fræðinga (FÍH) fyrir starfstímabilið 2005- 2007, sem samþykkt var á fulltrúaþingi 9.-10. maí 2005, kemur m.a. þetta fram: • Unnin verði könnun á mati hjúkrunar- fræðinga og óskum varðandi þjónustu félagsins við þá. • Fræðslunefnd félagsins geri könnun á fræðsluþörfum hjúkrunarfræðinga. Félagið nýti niðurstöður könnunarinnar til að móta stefnu í símenntunarmálum hjúkrunarfræðinga og vinni í framhaldi af því að auknu framboði félagsins á fræðslu handa hjúkrunarfræðingum, m.a. með notkun fjarfundabúnaðar. • Áfram verði unnið að eflingu Tímarits hjúkrunarfræðinga. Gerð verði lesenda- könnun og formleg ritstjórnarstefna síðan mótuð með hliðsjón af niður- stöðum könnunarinnar. Auk þessa hafði orlofsnefnd félagsins haft uppi áform um að kanna vilja félagsmanna varðandi nýtingu orlofs- sjóðsins. Stjórn FÍH taldi rétt að sameina þessar fjórar kannanir í eina viðamikla viðhorfskönnun meðal hjúkr- unarfræðinga. Á haustmánuðum 2005 var gerður samningur við Félagsvísinda- stofnun Háskóla íslands um gerð og framkvæmd könnunarinnar. Framkvæmd könnunarinnar Ákveðið var að óska eftir því við alla hjúkrunarfræðinga 75 ára og yngri, sem búsettir voru hér á landi, að taka þátt í könnuninni. Könnunin fór fram dagana 16. nóvember til 15. desember 2005. Alls fengu 3.127 félagsmenn sent bréf um könnunina 10. nóvember 2005 þar sem vefslóð könnunarinnar var gefin upp. Þeir sem þess óskuðu gátu fengið könnunina senda í bréfpósti. Tvö ítrekunarbréf voru send út í lok nóvember þar sem félagsmenn voru hvattir til þátttöku, annars vegar í bréfpósti og hins vegar fengu um 1.800 félagsmenn tölvupóst, þ.e. þeir sem gefið hafa félaginu upp netfang sitt. Svör bárust frá 1.206 félagsmönnum á vefnum og 41 í bréfpósti. Alls bárust því 1.247 svör en það er 39,9% svarhlutfall. Um 70% svarenda eiga heima á höfuðborgarsvæðinu og 57% svarenda eru í 100% starfshlutfalli eða meira. Aldursdreifing var nokkuð jöfn, þó eru 35% svarenda á aldursbilinu 45-54 ára. Alls 34% svarenda voru með 25 ára eða lengri starfsaldur. félagsins. Alls 79% svarenda töldu sig hafa fengið mjög eða frekar góða þjónustu hjá félaginu. 7% töldu þjónustuna hafa verið frekar eða mjög slæma. Hlutfallslega færri í yngsta aldurshópnum (25-34 ára) en í eldri aldurshópum voru mjög ánægðir með almenna afgreiðslu FÍH og fór ánægjan stigvaxandi eftir því sem svarendur voru eldri. Hið sama var uppi á teningnum hvað varðaði símsvörun og viðmót starfsfólks, hlutfallslega fæstir í yngsta aldurshópnum voru mjög ánægðir en hlutfallslega flestir í þeim elsta (55 ára og eldri). Helstu niðurstöður og fyrirhugaðar aðgerðir Starfsemi FÍH Á árinu 2005 leituðu 59% svarenda í könnuninni til félagsins. Algengast var að hjúkrunarfræðingar leituðu til félagsins vegna orlofssjóðsins og næstalgengast að leitað væri til þess vegna styrktarsjóða. Fjórðungur svarenda tilgreindi réttindamál sem ástæðu þess að þeir leituðu til Stjórn félagsins telur afar jákvætt hversu stórt hlutfall hjúkrunarfræðinga leitar til félagsins og hversu ánægðir þeir eru alla jafna með þjónustuna. f Ijósi minnstrar ánægju yngstu hjúkrunarfræðinganna hefur stjórnin ákveðið að kalla saman hóp fulltrúa síðustu fimm brautskráningarhópa til skrafs og ráðagerða um það hvaða hugmyndir og kröfur ungir hjúkrunarfræðingar hafa og gera til félagsins og hvernig sinna megi þörfum þeirra. 6 Tímarit hjúkrunarfræðinga - 2. tbl. 82. árg. 2006
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Tímarit hjúkrunarfræðinga

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tímarit hjúkrunarfræðinga
https://timarit.is/publication/1159

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.