Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.06.2006, Blaðsíða 57
SSN conference in Helsingfors
12.-13. október 2006
Helsingfors, Finnlandi
www.ssn-nnf.org/
3. Dreilánderkongress Pflege in der
Psychiatrie
19.-20. október 2006
Vín, Austurríki
Heimasíöa: www.oudconsultancy.nl/
5th International NHSRU
Conference, Practice to Policy:
Global perspectives in Nursing
25.-27. október 2006
Ontaríó, Kanada
Heimasíða: www.nhsru.com
3rd International Nursing
Management Conference
9.-9. nóvember
Kusadasi, Tyrklandi
Heimasíða: www.inmc2006.org/
8th Quadrennial Congress of
Neuroscience Nurses/EANN
30. maí - 2. júní 2007
íslandi
Netfang: ingibjok@landspitali.is
CNR og ICN Conference
27. maí - 1. júní 2007
Yokohama, Japan
Heimasíða: www.icn.ch
5th World Congress on Pediatric
Critical Care
24.-28. júní 2007
Genf, Sviss
Heimasíða: www.pcc2007.com
Nánari upplýsingar um ráðstefnurnar
er að fá á skrifstofu Félags íslenskra
hjúkrunarfræðinga, Suðurlandsbraut 22,
sími 540 6400.
Tæplega 7 milljónir króna í bætur - Hæstiréttur dæmir í máli
hjúkrunarfræðings
Hjúkrunarfræðingi, konu sem starfaði á speglunardeild Landspítala-
háskólasjúkrahúss á árunum 1988 til 1997 eða þar til hún fór í veikindaleyfi,
voru dæmdar 6,8 milljón krónur í bætur vegna veikinda sem hlutust af
störfum hennar. í dómnum segir að sannað sé að veikindi hennar megi
rekja til notkunar efnisins glútaraldehýðs sem notað er til að hreinsa
áhöid. Spítalanum var jafnframt gert að greiða stefnanda þrjár milljónir í
málskostnað.
í dómsskýrslu kemur fram að hjúkrunarfræðingurinn hafði aldrei fengið
fyrirmæli um notkun glútaraldehýðs eða leiðbeiningar. Hún hafi því ekki vitað
neitt um efnið en áttað sig á áhrifum þess þegar hún og aðrir starfsmenn
fengu munnþurrk og höfuðverki. Hún benti einnig á að loftræsting hafi verið
léleg og einungis unnt að opna glugga í góðu veðri. Fleiri hjúkrunarfræðingar
gáfu skýrslu og sögðu að þeir hefðu ekki fengið leiðbeiningar um meðhöndlun'
efnisins og tveir höfðu veikst, fengið höfuðverk, andþyngsli og þyngsli yfir
höfuð og andlit.
í niðurstöðu dómsins segir að enginn vafi sé á að glútaraldehýð geti valdið
astma, snertiexemi og slímhúðarbólgum í nefi auk þess sem efnið valdi
ertingu og almennum óþægindum þar sem andrúmsloft er mengað af efninu.
í erlendum læknisfræðitímaritum hafði verið vakin athygli á því að efnið gæti
valdið astma áður en hjúkrunarfræðingurinn hóf störf á speglunardeildinni
og því bæri að umgangast það með mikilli varúð og beita tiltækum ráðum til
að vinnuumhverfið mengaðist ekki af völdum þess. Spítalanum átti að vera
þetta Ijóst og bar að vernda starfsfólk sitt gegn áhrifum efnisins. Þá segir
enn fremur að ekki hafi komið fram nein önnur skýring á veikindunum og
verði því að telja að orsök veikindanna sé notkun umrædds efnis á vinnustað
hjúkrunarfræðingsins.
Héraðsdómarinn JónFinnbjörnssonkvaðuppdóminnásamtmeðdómendunum
Jakobi Kristinssyni dósent og Sigurði Thorlacius dósent.
Tímarit hjúkrunarfræðinga - 2. tbl. 82. árg. 2006
55