Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.06.2006, Blaðsíða 20
Vilborg Ingólfsdóttir hjúkrunarfræðingur, skrifstofustjóri öldrunarmála í heilbrigðis- og
tryggingamálaráðuneytinu, vilborg.ingolfsdottir@stjr.is
NÝJAR ÁHERSLUR í
ÞJÓNUSTU VIÐ ALDRAÐA
Allir hljóta að vera sammála því að
aldraðir eru þjóðfélagshópur sem er mjög
mikilvægur hverju samfélagi og því eigi
allir að láta síg málefní hans varða. Það
er svo ótal margt sem hver og einn og
íslenskt samfélag getur gert til að auka
vellíðan aldraðra. Þar er höfuðatriðið að
umræða um stöðu og þátttöku aldraðra
í samfélaginu sé sanngjörn, heiðarleg og
að litið sé á aldraða sem hverja aðra gílda
þjóðfélagsþegna.
Aldraðir eru ekki hópur heldur einstaklingar
með lífsviðhorf, væntingar og þarfir. Margir
þeirra eru mjög ernir og flestir fullfærir um
að taka ákvarðanir um líf sitt og enginn
þeirra er byrði á þjóðfélaginu.
Stuðning við aldraða, sem búa heima,
þarf að styrkja og er heimahjúkrun þar
höfuðatriðið. Fyrir veikburða einstaklinga
er það ekki raunhæfur kostur að búa
heima nema möguleiki sé á að veita
heimahjúkrun allan sólarhringinn.
Vissulega verður ekki hægt að halda
uppí vaktþjónustu allan sólarhringinn á
smærri stöðum en það verður að reyna
að finna flöt á því hvernig mögulegt er að
bregðast við þegar þörf skapast og nýta
sveigjanleikann sem fámennari samfélög
búa yfír til að sinna þörfum aldraðra.
í umræðum um þjónustu við aldraða,
sem búa heima, er oft einungis nefnd
heimilishjálp og heimahjúkrun. Þessir
þjónustuþættir eru mjög mikilvægir en
fleira þarf að koma til svo hægt sé að
tala um fullnægjandi þjónustu við aldraða
sem búa heima. Dagvistun, heimsending
matar, heilsueflandi heimsóknir frá
heilsugæslustöð, öryggishnapparog önnur
hjálpartæki, sjúkraþjálfun, iðjuþjálfun,
aðstoð við innkaup, skömmtun lyfja,
hvíldarinnlagnir, akstursþjónusta, aðstoð
við breytingar á húsnæði og félagsstarf
eru einnig dæmi um mikilvæga þætti í að
sinna þörfum aldraðra og auka velferð
þeirra. Margir þessara stuðningsþátta
hafa ekki staðið öldruðum til boða á
nokkrum stöðum á landinu og úr því þarf
tvímælalaust að bæta.
En þótt það sé stefna þjóðfélagins að
styðja aldraða til að búa heima eins lengi
og kostur er, í samræmi við vilja þeirra
sjálfra, verða alltaf til einstaklingar sem
þurfa að vera á hjúkrunarheimilum um
einhvern tíma. Að þeim þurfum við einnig
að hlúa og búa þeim þær aðstæður sem
við getum öll verið stolt af.
18
Tímarit hjúkrunarfræðinga - 2. tbl. 82. árg. 2006