Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.06.2006, Blaðsíða 9

Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.06.2006, Blaðsíða 9
Könnunin leiddi einnig í Ijós að rúmlega 70% svarenda töldu sig ekki vita nægilega mikið um styrki sem þeir ættu rétt á að sækja um hjá FÍH, né heldur styrki sem þeir ættu rétt á að sækja um hjá BHM. Ljóst er því að skrifstofa FÍH þarf að auka mjög kynningu á réttindum hjúkrunarfræðinga hvað umsóknir um ýmiss konar styrki varðar enda um mikla hagsmuni að ræða. Tímarit hjúkrunarfræðinga Til að fá upplýsingar um lestur Tímarits hjúkrunarfræðinga voru svarendur í könnuninni beðnir um að greina frá því hversu oft að jafnaði þeir læsu tímaritið. Tæp 40% sögðust yfirleitt alltaf lesa tímaritið og tæpur þriðjungur sagðist oftast lesa það. 2% svarenda sögðust aldrei lesa blaðið. Helmingur þátttakenda var mjög eða frekar ánægður með tímaritið en fjórðungur frekar eða mjög óánægður með það. Svarendur í aldurshópnum 35 til 44 ára voru óánægðari með tímaritið en aðrir svarendur. Þátttakendur voru spurðir hvað þeir læsu helst í blaðinu. Langflestir sögðust lesa fræðslugreinar (83%), þá umfjöllun um kjaramál, þankastrik og umfjöllun um heilbrigðismál almennt. Fæstir sögðust lesa bókagagnrýni (25%). Flestir vildu sjá meiri umfjöllun um klíníska hjúkrun, þ.e. meira af efni sem gæti nýst þeim í starfi. Tæplega fimmtungi fannst blaðið of þungt og vildu að meira yrði lagt upp úr léttara og skemmtilegra efni. Tímarit hjúkrunarfræðinga kemur nú að jafnaði út fimm sinnum á ári. Þrír af hverjum fjórum töldu þann fjölda tölublaða hæfilegan. Tæp 60% svarenda vildu hins vegar að gefin yrðu út 1 -2 sérrit á ári með ritrýndum greinum. Ritnefnd tímaritsins hefur undanfarnar vikur fjallað um niðurstöður könnunarinnar. Þá vinnur starfshópur skipaður formanni ritnefndar, formanni stjórnar ritrýndra greina, 1. varaformanni félagsins og fleirum nú að tillögugerð varðandi æskilegar breytingar á útgáfu tímaritsins, m.a. með hliðsjón af niðurstöðum könnunarinnar. Simenntun og fræðsluþörf Eins og fram kemur í starfsáætlun stjórnar FÍH, sem vísað er til hér að framan, er ætlunin að móta stefnu í símenntunarmálum hjúkrunarfræðinga sem byggist m.a. á niðurstöðum þessarar könnunar. Ætlunin er að auka framboð félagsins á fræðslu handa hjúkrunarfræðingum, m.a. með notkun fjarfundabúnaðar. Könnunin leiddi í Ijós að tæplega þriðjungur svarenda sagðist sækja símenntun ársfjórðungslega og tæpur fjórðungur árlega. Um 17% svarenda sögðust aldrei sækja faglega símenntun. Það eru helst hjúkrunarfræðingar í yngsta og elsta aldurshópnum sem segjast aldrei sækja faglega símenntun. Helstu ástæður, sem nefndar voru að kæmu í veg fyrirsímenntun, voru kostnaður og annir í vinnu. Flestir sinna faglegri símenntun með því að sækja fræðslufundi innan vinnustaðar, en þrír af hverjum fjórum nefndu einnig að þeir sæktu námskeið og læsu fræðsluefni. Þegar spurt var hvert hjúkrunarfræðingar sæktu sína faglegu símenntun nefndu flestir vinnustað sinn, síðan Endurmenntun HÍ, fagdeildir FÍH og um helmingur svarenda tilgreindi FIH. Þá sögðust tveir af hverjum þremur myndu nýta sér fræðslu FÍH í gegnum fjarfundabúnað. Mótun stefnu FÍH í símenntunarmálum fékk byr undir báða vængi nú á vor mánuðum þegar nemendahópur í meistaranámi í verkefnastjórnun við verkfræðideild Háskóla íslands samþykkti að taka símenntunarmál hjúkrunarfræðinga og niðurstöður umræddrar könnunar sem verkefni í stefnumótun. Vigdís Hallgrímsdóttir, alþjóðafulltrúi FÍH, er einn nemendanna. Hópurinn hefur þegar skilað verkefninu af sér og stjórn FÍH samþykkt stefnuna. Á stjórnarfundi 8. maí sl. var skipaður starfshópur til að hrinda í framkvæmd þeim tillögum sem nemendahópurinn lagði fram. Félag íslenskra hjúkrunarfræðinga mun því á næstu mánuðum og misserum auka mjög þjónustu sína við hjúkrunarfræðinga varðandi símenntun. Orlofssjóður FÍH Megintilgangur þess hluta könnunarinnar, sem fjallaði um orlofssjóðinn, var að fá fram viðhorf hjúkrunarfræðinga til skipulagsmála sjóðsins, á hvað skyldi leggja áherslu við nýtingu orlofsfjárins og hvert mat hjúkrunarfræðinga væri á verðlagi á orlofshúsnæði. Um 40% svarenda vildu fjölga orlofsstyrkjum en sitt hvor fjórðungurinn vildi fjölga íbúðum erlendis og bústöðum innanlands. Flestir vildu bústaði á Suðurlandi. Hvað leiguverð varðar töldu 83% svarenda það sanngjarnt. Skrifstofu FÍH hafa iðulega borist kvartanir frá hjúkrunarfræðingum um að erfitt sé að fá úthlutun úr orlofssjóði félagsins. Því var ákveðið að spyrja hvort viðkomandi hefði fengið orlofshús eða orlofsstyrk á síðustu fimm árum annars vegar, og hins vegar hvers vegna viðkomandi hefði ekki sótt um á síðustu fimm árum. Þrír af hverjum fjórum svarenda höfðu fengið úthlutun á síðustu fimm árum. Ástæður þess að svarendur höfðu ekki sótt um í orlofssjóð voru helstar þær að viðkomandi hafði ekki haft þörf fyrir úthlutun (35%) eða að viðkomandi hafði heyrt að erfitt væri að fá úthlutun (22%). Aldur, fjölskylduhagir og búseta hafði veruleg áhrif á áherslur svarenda. Þannig vildu ungir hjúkrunarfræðingar með fjölskyldur frekar fjölga bústöðum en aðrir, eldri hjúkrunarfræðingarnir vildu fjölga orlofsstyrkjum og hjúkrunarfræðingar búsettir á landsbyggðinni vildu að orlofssjóður keypti fleiri íbúðir í Reykjavík. Orlofsnefnd FÍH fjallar nú um niðurstöður könnunarinnar og mun gera tillögur um breytingar á áherslum og skipulagi fyrir næsta fulltrúaþing félagsins sem haldið verður að ári. Lokaorð Viðhorfskannanir sem þessi eru mikilvæg leið til að kanna hug hjúkrunarfræðinga til og mat þeirra á starfsemi Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga. Það er stefna félagsins, stjórnar og starfsmanna þess að þjóna hjúkrunarfræðingum sem best á hverjum tíma og fara vel með það fé sem til ráðstöfunar er í sjóðum félagsins. Stjórn FÍH vill þakka öllum hjúkrunarfræðingum sem þátt tóku í könnuninni. Tímarit hjúkrunarfræðinga - 2. tbl. 82. árg. 2006 7
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Tímarit hjúkrunarfræðinga

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tímarit hjúkrunarfræðinga
https://timarit.is/publication/1159

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.