Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.06.2006, Síða 25

Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.06.2006, Síða 25
Eín af visbendingunum um gæði er tíðni þrýstingssára. Hjúkrunarheimili, þar sem oftar verður vart við legusár en landsmeðaltal segir til um, þarf að taka slíkar niðurstöðurtil athugunar. Ef legusár koma oft fram getur það verið vísbending um lélega umönnun. Þetta ákveðna dæmi gæfi tilefni til að vinna umbótaverkefni og svo væri hægt að sjá í næstu RAI- mælingu hvernig til hefði tekist. Gæðavísa má einnig nota við gæðaeftirlit bæði af hálfu heilbrigðisyfirvalda og þeirra sem kaupa þjónustuna. Matslyklar eru nokkurs konar leið- beiningar um meðferð og þeir taka á helstu heilsufarsvandamálum aldraðra. Matslyklar geta gefið vísbendingar um ástand íbúa, hvaða vandamál er til staðar eða hvort viðkomandi er í hættu á að fá tiltekið vandamál með þeim sem fá ákveðið mein eða þurfa að kljást við annan vanda. Það má því líta á matslykla sem áhættuþætti og er tilvalið að nýta þá sem hjálpartæki við gerð hjúkrunaráætlunar. Dæmi um matslykil eru þrýstingssár. íbúinn þarf ekki endilega að vera kominn með þrýstingssár en gæti átt það á hættu, til dæmis gæti hann átt erfitt með að hreyfa sig í rúminu, veríð með hægðaleka, verið of feitur, ef til vill með sykursýki. Þetta eru atriði sem hjúkrunarfræðingar vita hvað geta haft í för með sér en það getur stundum verið erfitt að sjá skóginn fyrir trjánum. Heilsufar aldraðra, sem búa á hjúkrunarheimilum, er oft bágborið og einn íbúi getur verið með mörg heilsuvandamál. Hvert þessara vandamála getur gert hin flóknari og einnig geta þau skyggt á önnur vandamál og gert greiningu þeirra erfiðari. Það er því nauðsynlegt fyrir fagfólk að bera eigin athuganir og niðurstöður saman við matslyklana til að tryggt sé að íbúinn fái sem besta þjónustu. Matslyklarnir eru ætlaðir sem stuðningur við faglega vinnu en þeir koma ekki í staðinn fyrir hana. Hjálpartæki ekki byrði Þegar RAI-mælitækið var að stíga sín fyrstu skref hér á landi var öll skráning þess á pappír og einungis metið einu sinni á ári. Var ekki laust við að hjúkrunarfræðingum hrysi hugur við þeirri vinnu sem fólst í að skrá matið, nóg var nú samt. Ekki var óalgengt að rokið væri í að meta rétt áður en skila átti matinu og það sent og síðan ekki söguna meir þangað til næsta holskefla reið yfir. Það var kannski ekki nema von þar sem ekki lá alveg Ijóst fyrir hver ávinningurinn af skráningunni var og niðurstöður lágu oft ekki fyrir fyrr en eftir margar vikur. Tækið er nú óðum að slíta barnsskónum og hefur sannað gildi sitt og í dag er skráning tölvuvædd og nettengd. Núna er metið þrisvar á ári og hægt að sjá niðurstöður úr matinu strax og búið er að staðfesta það. Við það aukast möguleikar á því að vinna með niðurstöðurnar og nýta þær í daglegu starfi til að greina betur styrkleika og þarfir íbúanna og gera hjúkrunaráætlun í samræmi við þær. RAI-mælingar voru ekki hugsaðar eða útbúnar til að auka vinnuálag hjúkrunarfræðinga heldur sem hjálpartæki. Mikilvægt er að stjórnendur hjúkrunar upplýsi alla sem sinna umönnun um tilgang matsins og að þeir átti sig á mikilvægi þess að upplýsingar séu réttar og að matið lýsi raunverulegu ástandi íbúans á þeim tíma sem metið er. Kostir RAI-mælinga Kostir RAI-mælitækisins eru ótvíræðir og árangur umönnunar verður betri með markvissari hjúkrunarmeðferð. Söfnun heilsufarsupplýsinga er nákvæmari og kerfísbundnari og stuðlar að bættri skráningu hjúkrunar. RAI-mat hjálpar hjúkrunarfræðingum við að meta sterkar og veikar hliðar íbúanna og þarfir þeirra á öldrunarstofnunum eru skýrari eftir tilkomu RAI-mælitækisins. RAI-mælingar gefa vísbendingar um gæði þjónustunnarsemlátineríté. Mælingarnar gefa einnig tækifæri til að nýta niðurstöður við gerð umbótaverkefna ef einhvers staðar er pottur brotinn. Stjórnendur stofnana sem og heilbrigðisyfirvöld hafa tækifæri til að bera saman niðurstöður milli deilda og stofnana. Fjármögnun verður gagnsærri og réttlátari þar sem umönnunarkostnaður er greiddur með breytilegu gjaldi eftir þyngdarstuðlum. Úr niðurstöðum RAi-mælinga má einnig fá miklar upplýsingar sem gefa ótal tækifæri til vísindarannsókna. Að lokum Á þeim árum, sem liðin eru frá því RAI-mat fór fyrst fram á hjúkrunarheimilum hér á landi, hefur viðhorf til öldrunarmála breyst töluvert og skilningur á þörfum aldraðra aukist. RAI-mælingar gefa bæði starfsfólki á stofnunum svo og heilbrigðisyfirvöldum tækifæri til að fylgjast með hvernig gæðum þjónustunnar er háttað, hverjar hjúkrunarþarfir eru og hvernig fjármagni er útdeilt. Langflest starfsfólk í öldrunarþjónustu hefurtekið RAI-matinu vel og lagt metnað sinn í að gera það að hluta af daglegu starfi sínu á vinnustað og er gaman að geta þess að RAI-mælingarnar á íslandi eru í fremstu röð sinnar gerðar í heiminum. Heimildir: Anna Birna Jensdóttir, Hlíf Guðmundsdóttir, Hrafn Pálsson, Ingibjörg Hjaltadóttir, Ómar Harðarson, Pálmi V. Jónsson, Sigurbjörg Sigurgeirsdóttir (1998). Gagnasafn um heilsu- far og hjúkrunarþarfir aldraðra á elli- og hjúkr- unarheimilum. Tímarít hjúkrunarfræöinga, 74 (4), 209 - 212. Ingibjörg Hjaltadóttir (1999). RAI-mælitækið og álagsmælingar, RUG-III flokkunarkerfið. Greinargerð. Pálmi V. Jónsson (2003). RAI fjölskyldan á íslandi. Öldrun, 21(1), 4-8. interRAI (2006). Long Term Care Facility. Sótt hinn 24. apríl 2006 á http://www.interRAI.org. Tímarit hjúkrunarfræðinga - 2. tbl. 82. árg. 2006 23

x

Tímarit hjúkrunarfræðinga

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit hjúkrunarfræðinga
https://timarit.is/publication/1159

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.