Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.06.2006, Side 26

Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.06.2006, Side 26
 1 wmvmm j I Hi 11 ff- km, i Á undanförnum áratug hafa átt sér stað efnahagslegar, pólitískar og félagslegar breytingar sem hafa haft áhrif á ferðir hjúkrunarfræðinga. Heimurinn er orðinn eitt markaðssvæði og alþjóðasamningar gera hjúkrunarfræðingum kleift að ferðast á milli landa. í mörgum löndum er stefna heilbrigðisstofnana sú að ráða hjúkrunarfræðinga frá öðrum löndum til þess að bregðast við þeim skorti sem þær standa frammi fyrir. Áhrif þessa á heilbrigðiskerfið, gæði þjónustunnar, öryggi sjúklinga og hjúkrunarstéttina eru bæði jákvæð og neikvæð og er því mikilvægt að skoða þetta vel (Adams og Kennedy, 2006). Margar ástæður eru fyrir því að hjúkrunarfræðingar sækjast eftír vínnu í öðru landi. Þeir geta verið að leita að meiri lífsgæðum, vilja fá ný tækifæri í starfi, öðlast frekari þekkingu eða menntun, tryggja sér betri tekjur eða fullnægja kröfum fjölskyldunnar og fá tækifærí tíl að kynnast nýju landi og annarri menningu. Það gleymist oft að margir þessara hjúkrunarfræðinga hafa þurft að færa fórnir tíl þess að geta flutt til annars lands. Stjórnvöld og vinnuveitendur hafa verið gagnrýnd fyrir að ráða erlenda hjúkrunarfræðinga til starfa án þess að gera sér grein fyrir af hverju ílla gengur að ráða og halda innlendum hjúkrunarfræðingum í starfi (Adams og Kennedy, 2006). Hvernig stuðla má að jákvæðu starfsumhverfi fyrir erlenda hjúkrunarfræðinga? í febrúar sótti ég ráðstefnu sem bar yfirskriftina How to Create a Positive Practice Environment for the International Nurse. Ráðstefnuna sóttu fulitrúar fagfélaga, stofnana og ráðningarskrifstofa víðs vegar úr heiminum. Heílbrigðiskerfi heímsbyggðarinnar glíma flest við þann vanda að hafa ekki nóg af hjúkrunarfræðingum til þess að sinna þeim störfum sem þarf að sinna. Þar af leíðandí hafa mörg lönd leitað eftir hjúkrunarfræðíngum frá öðrum löndum. f dag eru 25% hjúkrunarfræðinga og lækna í Bretlandi og Bandaríkjunum menntaðir í öðrum löndum. Á ráðstefnunni var leitað svara við spurningum eins og: Þegar erlendir hjúkrunarfræðingar hafa verið ráðnir til starfa eru þeir þá fullgildir meðlimir í þeim hóp sem þeir starfa í? Eru gæði 24 Tímarit hjúkrunarfræðinga - 2. tbl. 82. árg. 2006

x

Tímarit hjúkrunarfræðinga

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit hjúkrunarfræðinga
https://timarit.is/publication/1159

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.