Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.06.2006, Blaðsíða 42

Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.06.2006, Blaðsíða 42
Ingibjörg H. Elíasdóttir, hjúkrunarfræðingur, ingibjorg@islandia.is HUGARHVARF - LÍFIÐ HELDUR ÁFRAM MEÐ HEILABILUN Hugarhvarf er nýíslenskfræðslumynd um heilabilun. Handritshöfundar og framleiðendur myndarinnar eru þær Guðrún Hildur Ragnarsdóttir, hjúkrunarfræðingurog kennslustjóri ásjúkraliðabraut Fjölbrautaskólans við Ármúla, Berglind Magnúsdóttir, sálfræðingur, og Þórunn Bára Björnsdóttir, sjúkraþjálfari, báðar starfandi á öldrunarsviði LSH. Fylgst er með hjónunum Elsu og Andrési frá því rétt áður en Elsa greiníst með alzheimersjúkdómínn og áhrifum hans á líf þeirra næstu árin. Handavinnukennarinn Elsa fyllist óöryggi, kvíða og vanlíðan þegar hún gleymir einföldum athöfnum eins og að fella af lykkjur, hvernig bíl hún fór á í búðina og þegar hún ratar ekki heim til sín. Með glettni í augum bregst hún við með hvítri lygi og kemur ótrúlega vel fyrir á minnismóttökunni á Landakoti þar sem Jón Snædal, öldrunarlæknir, leikur sjálfan sig svo frábærlega að mér datt helst í hug að hann vissi ekki að hann var á hvíta tjaldinu. Einníg eru góð dæmí um hvernig Andrés leitast við að njóta góðu stundanna í stað þess að vera stöðugt að „mæla minnið og getuna" og hvernig róðurinn þyngist þegar sjúkdómurinn ágerist. Inn í frásöginína fléttast góð dæmi og útskýringar um verk-, mál- og skipulagsstol. Kristbjörg Kjeld og Gísli Alfreðsson leika aðalhlutverkin og eru einu atvinnu- leikararnir auk sögumannsins, Arnars Jónssonar. Önnur hlutverk eru m.a. leikin af félögum í kór eldri borgara í Reykjavík og starfsfólki á Landakoti sem kemurfram í sínum eigin hlutverkum. Öll hlutverkin eru vei leikin á framúrskarandi hátt. Ég held ekki að hallað sé á neinn þó ég segi að Kristbjörg sé stjarna myndarinnar ásamt handritshöfundunum. Svipbrigðin í andliti hennar dofna, stirðleiki kemur fram og það dregur úr allri líkamstjáningu. Þetta lýsir vel hvernig sjúklingurinn lokast inni, ófær um að tjá sig og minna og mínna sést í upphaflegu pe'rsónuna sem ástvinirnir þekktu. Myndin er byggð upp af stuttum lýsandi myndskeíðum, með stígandaallantímann. Hún er falleg, vel gerð og hafði sterk áhrif á mig og ég hugsaði: „Já, nú mun fólk skilja betur hvernig þetta er.‘‘ Ástæða þess er að myndin sýnir persónuna Elsu, væntumþykju ástvini hennar og nærgætni og stuðning fagfólks að störfum. Væmni kemur ekki fyrir og myndskeiðin tala sínu máli sjálf. Það er notaleg ró yfir myndinni og tónlist Barða Jóhannessonar eykur áhrifin en ég kannaðist við óþolinmæði mína þegar reyndi á þolrifin í Andrési. Ég er full aðdáunar yfir framtakínu og óska höfundum og leikurum til hamingju með afraksturinn. Ég er ekki í nokkurum vafa um að Hugarhvarf- lífið heldur áfram með heilabilun mun auka skilning á líðan og aðstæðum heilabilaðra, aðstandenda þeirra og umönnunaraðila. Ég skora á stjórnendur í heilbrigðisþjónustu að taka á móti nýju starfsfólki strax í vor með sýningu þessarar myndar. Ég tel myndina munu geta leiðrétt fyrirframgefnar hugmyndir sumra og dregíð úr óöryggi starfsfólks sem stundum er hrætt við heilabilaða sjúklinga að ástæðulausu. Því míður hefur stundum verið horft meira til sjúkdómsgreiningarinnar heldur en til persónuleika og styrkleika hvers og eins. Á heimasíður LSH kemur fram að hægt er að panta myndina í síma 5439898 eða á netfanginu: halldbj@landspitali.is. Verð DVD-dísksins er 4000 kr. Ingibjörg H. Elíasdóttir, hjúkrunarfræðingur á móður sem greindist með alzheimersjúkdóminn fyrir rúmlega 8 árum og býr nú á Hrafnistu í Hafnarfirði. 40 Tímarit hjúkrunarfræðinga - 2. tbl. 82. árg. 2006
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Tímarit hjúkrunarfræðinga

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tímarit hjúkrunarfræðinga
https://timarit.is/publication/1159

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.