Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.06.2006, Side 47
FRÆÐSLUGREIN
Áframhaldandi þróuh RAI-MH
Samhliða ofangreindu hefur verið unnið að staðfæringu og
bakþýðingu mælitækisins í endanlegri útgáfu þess (2.0). Þeirri
útgáfu tengjast allir fylgihlutir RAI-MH sem getið var um hér
að framan. Útgáfa 2.0 er auk þess umtalsvert styttri en sú
upphaflega, og einnig hefur nýjum breytum, sem tengjast
oflæti, áfallaröskun, fíkn og átröskun verið bætt við. Nú stendur
yfir rannsókn á þremur móttökudeildum geðsviðs þar sem
áreiðanleiki og réttmæti mælitækisins í endanlegri útgáfu er
metinn. Stefnt er að því að áreiðanleikamælingin verði hluti af
stórri alþjóðlegri áreiðanleikamælingu RAI-mælitækjanna sem
nú stendur yfir. Þá bíða fylgihlutir mælitækisins þýðingar.
Lokaorð
Eins og fram kom hér í upphafi eru örar breytingar í geðheil-
brigðisþjónustunni sem og í annarri heilbrigðisþjónustu.
RAI-MH-mælitækið var upphaflega hannað eingöngu fyrir
legusjúklinga. Nú hefur verið þróað mælitækið RAI-CMH
(community mental health) sem bíður þýðingar og staðfæringar
að íslenskum aðstæðum. Markhópurinn eru einstaklingar
18 ára og eldri með mismunandi þjónustuþarfir, geðrænar,
félagslegar og líkamlegar, sem njóta heilbrigðisþjónustu utan
sjúkrahúsa.
Skortur á mælikvörðum I geðheilbrigðisþjónustunni
Mikil áhersla er nú lögð á stutta innlögn á sjúkrahúsum og
áhersla lögð á forvarnastarf og aukna þjónustu utan stofnana.
Skortur er á mælikvörðum til að meta árangur slíks starfs. Eins
og þegar hefur komið fram tengjast árangursmælingar, þar sem
að baki liggja viðurkenndir kvarðar, öllum RAI-mælitækjunum.
Með því að taka í notkun RAI-mælitæki, sem studd eru forritum
og gagnagrunni sem geta tengst og „talað við" önnur tölvukerfi,
má fá víðtæka yfirsýn og mat yfir þá þjónustu sem veitt er á
hinum ýmsu stigum geðheilbrigðisþjónustunnar, þar með talið
á dag- og göngudeildum og í öldrunar- og félagsþjónustu.
Þannig skapast möguleikar á samanburði á milli mismunandi
meðferðarforma, deilda og sviða.
Samfella í meðferð og betri þjónusta við geðsjúka
Með markvissri notkun RAI-mælitækja er meðferðaraðilum gert
kleift að stuðla að samfellu í meðferð einstaklinga og fylgjast
með bata og framförum á löngum tíma og á þann hátt að
stuðla að meiri gæðum í allri meðferð þeirra. Því má ætla að
unnt verði að grípa fyrr inn f breytingar á líðan sjúklinga með
viðeigandi meðferð og úrræðum og koma þannig í veg fyrir eða
draga úr endurinnlögnum með öllu sem því fylgir fyrir sjúklinga
og samfélagið í heild.
RAI-MH-mælitækið veldur straumhvörfum
Það er bjargföst skoðun höfunda að markviss framtíðarnotkun
RAI-MH-mælitækisins muni leiða af sér betri yfirsýn stjórnenda,
meðferðaraðila og ráðuneyta við alla skipulagningu sem og
fjármögnun geðheilbrigðisþjónustunnar. RAI-MH-mælitækið
getur þannig stuðlað að betri þjónustu við þá sem þjást af
andlegri vanlíðan eða geðröskun og gert kleift frekar en nú
er að mæla gæði þjónustunnar hlutlægt. Þá má ekki láta
hjá líða að nefna þá möguleika sem RAI-mælitækin skapa til
rannsókna á sviði heilbrigðisvísinda bæði innanlands og milli
landa þar sem m.a. er hægt að tengja og bera saman þætti
eins og gæði og eðli þjónustu, árangur meðferðar og kostnað
við rekstur þjónustunnar.
Sóknarfæri fyrir fagfólk á geðdeildum
Höfundar eru sannfærðir um að með upptöku RAI-MH á
geðdeildum, skapast sóknarfæri fyrir allt fagfólk á geðdeildum,
bæði í klínísku sem og akademísku starfi eða námi. Með
mælitækinu skapast óteljandi möguleikar. Þannig má
hugsa sér notkun mælitækisins í tengslum við alls konar
rannsóknarverkefni bæði í klínísku starfi og í tengslum við
nám.
Að lokum, það er ekkert mælitæki til staðar í geðheilbrigðis-
þjónustunni sem mælir það sama og RAI-MH-mælitækið.
Þakkir
Höfundar vilja færa hjúkrunarfræðingum á geðsviði LSH
sérstakar þakkir fyrir jákvæðar og góðar viðtökur og samstarf
í tengslum við verkefnið.
Styrkir
Verkefnið hefur fengið styrk frá eftirtöldum aðilum:
Heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneyti
Framkvæmdasjóði aldraðra
Vísindasjóði Landspítala-háskólasjúkrahúss
Heimildaskrá
Anna Bírna Jensdóttir, Hlíf Guðmundsdóttir, Hrafn Pálsson, Ingibjörg
Hjaltadóttir, Pálmi V. Jónsson og Sigurbjörg Sigurgeirsdóttir (1994).
Daglegt líf á hjúkrunarheimili. Heilsufar og hjúkrunarþörf íbúa á öldrunar-
stofnunum. Reykjavík: Heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneytið.
Anna Birna Jensdóttir, Fanney Friðbjörnsdóttir, Hlíf Guðmundsdóttir, Hrafn
Pálsson, Ingibjörg Hjaltadóttir, Maríanna Haraldsdóttir o.fl. (1999).
Heilsufar og hjúkrunarþörf aldraðra sem njóta þjónustu heimahjúkrunar.
Reykjavík: Heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneytið.
Guðný Anna Arnþórsdóttir, Guðrún Guðmundsdóttir, Halldór Kolbeinsson
og Rannveig Þöll Þórsdóttir (2003). Könnun notagildis staðlaðs mæli-
tækis RAI-MH (Resident Assessment Instrument-Mental Health) hjá hópi
sjúklinga á endurhæfingargeðdeildum Landspítala-háskólasjúkrahúss.
Reykjavík: Landspítali-háskólasjúkrahús.
Hawes, C., Morris, J.N., Philips, C.D., Mor, V., og Fries, B.E. (1995).
Reliability estimates for the Minimum Data Set for nursing home resident
assessment and care soreening (MDS). The Gerontogist, 172-178
Hirdes, J.P., Fries, B.E., Morris, J.N., Steel, K., Mor,V., Frijters, D., LaBine,
S. o.fl., (1999a). Integrated Health Information Systems Based on the
RAI/MDS Series of Instruments. Healthcare Management Forum 12,
30-40.
Hirdes, J.P., Pérez, E., Curtin-Telegdi, N., Prendergast, P., Morris, J.N.,
Ikegam, N., o.fl. (1999b). Training Manual and Resource Guide Version
1.0. Toronto: Queen's Printer.
Hirdes, J.P., Marhaba, M., Smith, T.F., Clyburn, L., Mithchell, L., Lemick,
A.R., o.fl. (2000/2001). Development of the Resident Assessment
Instrument - Mental Health (RAI-MH). Hospital Quarterly, 44-53.
Hirdes, J.P., Smith, T.F., Rabinowitz, T., Yamauohi, K., Pérez, E., Curtin,
T. N., o.fl.(2002). The resident assessment instrument - mental health:
Inter-rater reliability and convergent validity. Journal of Behavioral Health
Services and Research, 29(4), 419-432.
WHO (2005). Mental health: facing the chaiienges, building solutions.
Report from the WHO European Ministerial Conference. World Health
Organization.
Tímarit hjúkrunarfræðinga - 2. tbl. 82. árg. 2006
45