Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.06.2006, Side 49

Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.06.2006, Side 49
Eygló Ingadóttir, hjúkrunarfræðingur á LSH og stjórnarnnaður í Félagi íslenskra hjúkrunarfræðinga, eygloing@landspitali.is LSH: ÁLAG OG ÓLAG „Hvaöa tal er þetta um skort á hjúkrunarfræðingum? Ég sé ekki betur en aö allt gangi sinn vanagang hér, allir fag- legir og elskulegir. Umræðan um sjúkrahúsið er neikvæð og maður fær hreinlega samviskubit yfir því að þurfa að leggjast inn. Hvar komum við sjúklingar inn í þessa umræðu?" Eitthvað á þessa varð einum skjólstæðingi okkar að orði eftir orrahríð undanfarinna vikna. Mig setti hljóða og ég horfði um stund á ástandið utan frá. Við heyrum árlega fréttir af afkomu LSH. Þær eru jákvæðar og fjalla um minrti halla og styttri biðlista. Yfirleitt er svo sagt að þennan góða árangur megi þakka sameiningu spítalanna. Upp á síðkastið hefur verið mikið álag á starfsfólki LSH. Það er svo sem ekkert nýtt, en nú hefur þetta þunga álag varað lengi. Á þeim deildum, sem ég þekki til, hefur verið mikið aukavaktaálag á hjúkrunarfræðingum og sjúkraliðum. Þegar enginn fæst til vinnu lenda aukavaktirnar á stjórnendum deildarinnar. Maður spyr sig hvernig hægt sé að vinna 12 til 16 tíma á sólarhring nokkra daga í röð. Slíkt gerist - því miður - allt of oft. Á meðan sitjum við föst í vítahring vinnuálagsins, einstaklingar gera meira en þeir geta og vilja, þeir gefast upp og þunginn á hina eykst. Ég veit um frábæra hjúkrunarfræðinga sem hafa gefist upp á ástandinu og farið annað. Að auki skynjar . maður ástandið annars staðar á spítalanum. Ónefndur hjúkrunarfræðingur sagði mér að hún væri svo uppgefin á álaginu að hún hefði minnkað vinnuhlutfall sitt í 50% og kviði fyrir hverri vakt. Hún sýndi greinileg merki um kulnun í starfi. Nú leitar hún sér að nýrri vinnu, vonandi samt við hjúkrun. Fyrir nokkru birtist lesendabréf í Morgun- blaðinu en þar segir sjúklingur frá því að skurðaðgerð á honum hafi verið frestað í tvígang. í bæði skiptin þurfti hann að koma utan af landi, til einskis. Koma slíkar tölur fram í árangursmælingu LSH? Ég er hrædd um ekki. Þar er heldur ekki fjallað um fjölda mistaka, um svokallaða hjúkrunarþyngd á hvern hjúkrunarfræðing eða aukavaktaálag. í fjölmiðlum er yfirmönnum á spítalanum gjarnt að rekja orsök allra vandamála á LSH til gamla fólksins. Ég hugsa oft um það hvernig sé að vera gamall og lasinn og teppa „dýrmætu" plássin á LSH. Heyra þetta aftur og aftur í fréttum. Getur verið að búið sé að fækka of mörgum sjúkraplássum á sjúkrahúsinu án þess að nokkuð annað hafi komið í staðinn? Að það sé ein ástæða gangainnlagna og álags? Eigum við að tjá okkur um ástandið innan LSH? Eigum við að láta sjúklinga, almenning og stjórnvöld halda að allt sé í lagi þegar svo er ekki? Eru vandamál innan LSH einkamál stjórnenda þar? Nei, við höfum þagað of lengi yfir ástandinu eins og meðvirkir aðstandendur alkóhólista. Það þarf breitt bak til þess að segja frá. Það sannaðist þegar þessi mál komust í hámæli. Hjúkrunarfræðingur talaði opin- skátt um málið og hlaut misjafnar undirtektir yfirmanna spítalans, ekki síst lækna. Á Landspítala-háskólasjúkrahúsi starfar afbragðsstarfsfólk með miklafagþekkingu. Það þarf að hlúa að því og gera þvf kleift að sinna starfi sínu þannig að því líði vel að loknum vinnudegi. Það þarf líka að geta notið þess að eiga frí án þess að hafa áhyggjur af sjúklingum og samstarfsfólki. Með því að tjá okkur nú tekst okkur kannski að rjúfa þennan vítahring. Það er mjög erfitt að draga þjóðina inn í þessa umræðu. Hún má ekki leiða til þess að fólk missi trúna á sjálfu háskólasjúkrahúsinu. Umræðan núna verður að leiða til þess að vandamálin leysist og að starfsskilyrðin batni. Til þess þarf sameiginlegt átak allra í samfélaginu. Tímarit hjúkrunarfræðinga - 2. tbl. 82. árg. 2006 47

x

Tímarit hjúkrunarfræðinga

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit hjúkrunarfræðinga
https://timarit.is/publication/1159

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.