Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.06.2006, Page 54

Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.06.2006, Page 54
Tilkynning um netnámskeiðið „Geðvernd eftir barnsburð”. Hjúkrunarfræðingum og Ijósmæðrum heilsugæslustöðva, sem hafa tekið þátt í rannsókninni „Efling geðheilsu eftir fæðingu” frá árinu 2001, hefur árlega staðið tii boða netnámskeiðið „Geðvernd eftir barnsburð”. Námskeiðið er nú enn í boði að því tilskildu að lágmarksþátttakendafjöldi (20) náist. Tilgangur námskeiðsins er að dýpka þekkingu á líðan kvenna eftir barnsburð, að fjalla um hvaða áhrif vanlíðan getur haft á konur, maka þeirra og ungbörn, og hvaða áhrif óvær börn hafa á líðan foreldra. Kynntar eru aðferðir til að draga úr vanlíðan og kennd er skráning hjúkrunargreiningar og meðferðarúrræða samkvæmt flokkunarkerfi NANDA og NIC. Námskeiðið stendur í átta vikur og fer fram á netinu, en þátttakendur hittast í upphafi námskeiðsins og í lokin í Eirbergi. Forsenda fyrir þátttöku er að á heilsu- gæslustöðvum hafi verið skimað eftir vanlíðan hjá konum, sem hafa nýlega alið barn, með Edinborgar- þunglyndiskvarðanum (EPDS). Hjúkrunarforstjórar, sem hafa áhuga á að bjóða hjúkrunar- fræðingum og Ijósmæðrum á sinni heilsugæslustöð upp á námskeiðið geta sent dr. Mörgu Thome beiðni um það á tölvupóstfangið marga@hi.is og tilgreint hugsanlegan þátttakendafjölda og aðila sem ber kostnaðinn. Námskeiðinu er lýst í hnotskurn í eftirfarandi grein: Eygló Ingadottir, Marga Thome og Brynja Örlygsdóttir (2006). Nettengt fjarnám um geðvernd eftir barnsburð: Mat hjúkrunarfræðinga á nýrri leið til símenntunar. Tímarit hjúkrunarfræðinga, 1(82),46-51. FróðleikumEPDSeraðfinnaíbæklingnum„Geðheilsuvernd mæðra eftir fæðingu: Greining á vanlíðan með Edinborgar- þunglyndiskvarðanum og viðtölum.” Bæklingurinn er til sölu á skrifstofu hjúkrunarfræðideildar Háskóla íslands og kostar 300 kr. Áhættumat og forvarnir hjarta- og æðasjúkdóma Á vef Landlæknisembættisins eru komnar út nýjar klínískar leiðbeiningar um áhættumat og forvarnir hjarta- og æðasjúkdóma. í leiðbeiningunum er fyrst og fremst fjallað um meðferð við hækkaðri blóðfitu, en auk þess er bent á mikilvægi annarra áhættuþátta, s.s. reykinga, hreyfingar- leysis og offitu, blóðþrýstings og blóðsykurs, og nauðsyn þess að draga úr öllum þessum áhættuþáttum. Ekki er lengur ráðlagt að nota aðrar aðferðir við mat á áhættu en þær sem byggja á íslenskum gögnum og bent á áhættureiknivél Hjartaverndar (www.hjarta.is) í stað áhættukorta sem eru ekki eins nákvæm. FRÉTTAPUNKTUR Leiðbeiningarnar leysa af hólmi eldri leiðbeiningar um þessi efni sem komu út á árunum 2000 og 2001 og voru endurskoðaðar árið 2003. í framhaldi þeirrar vinnu var stofnaður nýr vinnuhópur sem hefur nú endurunnið leiðbeiningarnar. Formaður vinnuhópsins er Emil L. Sigurðsson læknir, en Sigurður Helgason læknir hefur unnið með hópnum fyrir hönd stýrihóps um klínískar leiðbeiningar á vegum Landlæknisembættisins. Sjá nánar. http:// www.landlaeknir.is/template1 .asp?pageid=1&nid=776 og sjálfar leiðbeiningarnar: http://www.landlaeknir.is/ templatel .asp?PagelD=1080 52 Tímarit hjúkrunarfræðinga - 2. tbl. 82. árg. 2006

x

Tímarit hjúkrunarfræðinga

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit hjúkrunarfræðinga
https://timarit.is/publication/1159

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.