Ráðunautafundur - 15.02.1986, Qupperneq 16
6
henda og sum netin uröu þaö full af botngróóri að riðillinn rifnaði frá
teininum. öll netin varð að taka upp, fara með þau í land og hreinsa og
leggja síðan aftur.
Frágangur á silungnum.
Veiðin var um 4 tonn allt veiðitímabilið. Fiskurinn var deyddur um
leið og hann kom upp í bátinn eða á isinn, hálsbrotinn samkvæmt
verklegri kennslu hjá Héðni.
Er heim var komið var farið í aógerð, tálknin tekin, innyfli og
blóðrönd hreinsuð. Siðan var farið með fiskinn i frystihús eða hann
settur á hillur og hafður plastdúkur undir. Þannig var fiskurinn alveg
laus er hann var tekinn úr kistunni.
Sjávarveiði.
Her í Bæ er einnig sjávarveiói. Ég veiddi tæp 200 kiló, mest af þvi
í júnímánuði en engin veiði var er leið á sumarið. Mikil vinna er aó
veiða silung i sjó. Mest af þeirri vinnu var við að hreinsa netin en það
má ekki hreyfa vind því þá fylltust netin af þara, marhnútum og öllu
mögulegu. Sumum netunum var ekki mögulegt aö tína úr, eina ráðið var að
leggja þau í vatnið, þar smá hreinsuðust þau. Við sjávarveiðarnar þarf
maður að vera tilbúinn að grípa silungsgöngurnar þegar þær koma og vitja
nógu oft um.
Sölumálin.
Ekki er ég ánægður meö sölumálin á silungnum i upphafi. Er þetta
fór af stað talaði ég við forstjóra frystihússins á Hofsósi, GÍsla
Kristjánsson. Spurði hvort hann myndi taka silung og tók hann vel i þaö.
Tumi Tómasson gekk siðan frá þeim málum. Var fiskurinn skoðaður þannig
að hann væri ekki laus í beinum en það kemur mjög fljótt í ljós í
þunnildunum. Einnig var fiskurinn flokkaður eftir stærð, smár fiskur var
talinn undir 200 grömmum. Þá var talað um aö borga mismunandi verð eftir
stærð silungsins.
Frystihúsið bauóst til að borga strax 50 kr. á hvert kíló, hitt
kæmi svo síðar. Fengum við þessar 50 kr. út febrúar en i mars kom 30
króna uppbót á þessar 50 kr. sem búið var að borga. Eftir það voru
borgaðar 80 kr. á kíló fyrir heilan, aógerðan fisk en 180 kr. fyrir
kílóið af flökunum.
Þaó sera ég er ekki ánægður með er, að enginn greinarmunur var
gerður á silungi hvort sem hann var 100 gramma eða 1 kg. og eins hvort
hann var ætur eða óætur. Mörg okkar vatna eru með mjög slæman silung.
Mest allan silunginn lögðum við inn heilan. 72 kg voru í flökum,
en heildarveiðin hjá okkur var um 4 tonn. Mjög góður silungur kom inn í
frystihúsið fyrstu mánuðina og var nokkuð gott eftirlit með silungnum.
Siðan fóru að verða mjög tíö mannaskipti við móttökuna Eftirlitið
hrapaói niður, enda höfðu flestir aldrei komið nærri silungi og gerðu
engan greinarmun á hrygningarfiski og góðum fiski. Þar er komið inn á
stóra atriðið i okkar sölumálum á silungi. Við erum að bjóða neytendum