Ráðunautafundur - 15.02.1986, Page 22
12
Vel var brugðist viðþessari málaleitan og setti Tumi Tómas-
son fiskifræðingur fram tillögur um aukna nýtingu á veiðivötnum i
Skagafirði sem byrjun á þessu verkefni.
Tumi Tómasson vann siöan aö þessu verkefni i samvinnu viö
Búnaöarsamband Skagfirðinga og meö litilsháttar aöstoö frá þvi
varðandi vinnu og greiðslu á feróakostnaói.
Aðstoð útibús Veiöimálastofnunarinnar var fyrst og fremst
fólgin i því aö kenna mönnum tökin viö veiðarnar, verkun aflans
og leita markaöa fyrir hann.
Arangur af þessu starfi varð sá að rúmlega 20 tonn af silungi
komu til sölumeöferóar hjá Hraófrystihúsinu á Hofsósi. Hrað-
frystihúsið keypti silunginn af bændum fyrir fast verð, ýmist
flakað eóa óflakaöan. Algengast var aö smærri silungurinn væri
flakaóur og frystur heima á viökomandi býlum, en Frystihúsið lét
1 té umbúóir og sagði fyrir um verkun og frágang á silungnum i
þær.
Fyrir þessi 20 tonn af silungi greiddi Hraófrystihúsió um
2 milljónir króna. Ekki liggur fyrir hver kostnaóur vió þessar
veiðar var, annar en vinnan. Því er ekki hægt aö segja til um
hve hátt hlutfall af þessari greióslu skilaöi sér sem vinnulaun
til hlutaóeigandi.
Heildarupphæðin, kr. 2 millj. svarar til greiöslu fyrir sem
næst 700 dilka, að meðaltali 15 kg. aó þyngd, mióað við skráó verð
á fyrsta flokks dilkakjöti (DI), slátri og gærum i verólagsgrund-
velli landbúnaðarafuróa hinn 1. sept. 1985.
Reynslan frá s.l. ári gefur tilefni til frekari hugleióinga
um meiri nýtingu veiðivatna en verið hefur og hvaða möguleikar
kunni aó felast í þessari veiöi til tekjuöflunar fyrir þá bændur,
sem eiga vötnin og veiðina í þeim.
Allt bendir til að auka megi þessar silungsveióar verulega
frá því sem nú er. Þaö eitt aö veiða leysir þó ekki allan vanda.
Kostnaöarmálin ráða mestu um þaó hvaða tekjur þessi silungsveiði
getur gefið hverju sinni.
Þegar hafist var handa um þessar veiðar i Skagafirði snemma
á s.l. ári var talið að nægur markaður fyrir silunginn væri fyrir
hendi. Hægt væri aó selja hann úr landi fyrir sæmilegt verð.
Aríðandi væri því að stunda þessar veióar reglulega og hafa nægi-
legt og stöðugt magn af silungi til staðar i þennan markað. Mér