Ráðunautafundur - 15.02.1986, Síða 42
-32-
þeirra sem hyggjast koma fiskeldisstöö á laggirnar, alls ekki
legiö á lausu, svo ekki sé minnst á það að hægt sé aö ganga að
því á einum stað. T.d. vanti einhvern upplýsingar um, veðurfar,
sjávarhita, raöguleika á vatnstöku o.s.fr. þarf sá hinn sami að
fara á Veóurstofuna, Hafrannsóknastofnun, Orkustofnun, og síðan
á Veiðimálastofnun til að athuga með fisktegundir i eldi, upp i
Keldur til aó forvitnast ura sjúkdómaeftirlit og svo raætti lengi
telja. Ef aftur á móti talað er um tæknilegar upplýsingar s.s.
um tækjabúnað, aðvörunartæki, dælur, sjótöku o.fl. þá er
stofnanaröltið minna þvi þessar upplýsingar eru ekki til. Þar
verður hver og einn að treysta á sjálfan sig og sölumenn i við-
komandi grein. Hins vegar hefur þekking á þessum sviðum að
sjálfsögðu borist á milli eldisstöðva og hafa þeir sem lengra eru
komnir miðlað þeim sem eru að byrja. Mun heppilegra væri þó aó
geta gengið að þessari þekkingu og upplýsingum á einum stað.
Nú hefur tekið til starfa ráðgjafaþjónusta á þessu sviði og
einnig hefur verið veitt staða á Veiðimálastofnun sem á aó sinna
þessum málum að einhverju leyti en hvort tveggja er nýtilkomið.
Einnig eru uppi áætlanir um það að auka sjúkdómseftirlit og
þjónustu á þvi sviði.
Að reisa fiskeldisstöó er kostnaðarsamt, og einhvers staóar
frá verða peningarnir að koma. Varla er hægt að segja að um
nokkra ákveóna fyrirgreiðslu hafi verið aó ræða fyrr en á
seinasta ári að Framkvæmdasjóður stefndi að því að veita 50% lán
fyrir stofnkostnaði og Fiskveiðasjóður ábyrgðist erlend lán allt
aó 67% af stofnkostnaói. Síðan er ætlast til að eigið fé brúi
það sem eftir er af stofnkostnaói, öll seiðakaup og rekstur í
1 1/2 - 2 ár áóur en nokkuð fer aö skila sér inn hjá fyrirtækjunum.
Engin afurðalán eóa rekstrarlán eru veitt til fiskeldis. Auk
þess má benda á að ekki er tekið veð i öðru en húsum fiskeldis-
stöðva og því sem þar er naglfast. Sjókvíar, lagnir, tækja-
búnaður og fleira sem mikill stofnkostnaður er i, falla þar
ógild.
Kerfismálin svokölluð, eru margvísleg sérstaklega geta þau
verið snúin fyrir svo unga atvinnugrein. Helsti vandinn er
kanski fólginn í þvi að fiskeldi hefur ekki verið fundinn staöur
i kerfinu. Því bendir hver á annan innan þess, til aó koma sér
hjá þvi að taka á málum fiskeldis. Hér er liklega stjórnvöldum