Ráðunautafundur - 15.02.1994, Page 91
83
2. Breytingar á hlutföllum skrokkmála við þroska á vaxtarskeiðinu.
3. Arfgengi skrokkmála við mismunandi aldur.
4. Fylgni rrúlli hinna ýmsu skrokkmála.
5. Tengsh hæðar á herðakamb á fullorðnum hestum og skrokkmálum þeirra frá
uppvaxtarskeiðinu.
6. Samband milli þunga og skrokkmála.
Söfnun heimilda aðferðir og úrvinnsla
Mælingar voru gerðar á kynbótabúunum á Hólum og Kirkjubæ og hjá Skuggafélaginu í Borg-
arfirði á árabilinu 1973-1991 og á Stóðhestastöð ríkisins. Alls voru gerðar 4882 mælingar 13
skrokkmála á hrossum á aldrinum 6-78 mánaða. Auk þess voru hross vigtuð 360 sinnum á
Stóðhestastöðinni samtímis mælingum sem var mjög gagnlegt til samanburðar á þunga og
skrokkmálum á vaxtarskeiðinu. Mælingamar fóru fram árlega í nóvember-desember. Eftir-
farandi 13 mál voru tekin:
Bandmál
1. Hæð á herðakamb.
2. Brjóstmál.
3. Ummál framhnés.
4. Ummál framfótleggjar.
Niðurstöður og umrceður
Samkvæmt ofangreindum mælingum er meðalhæð (á herðakamb) 110,4 cm við 6 mánaða
aldur, 123,6 cm 18 mán., 128,6 cm 30 mán., 130,9 cm 42 mán., 132,5 cm 54 mán., 133 cm
66 mán. og fúllvaxinna íslenskra hesta 78 mán. 133,2 cm (stangarmál) (1. tafla). Hæð á lend
fullvaxinna hesta var sú sarha en hæð á lægst bak 7 cm minni. Bollengd fullvaxinna íslenskra
hesta er 10-12 cm meiri en hæðin og brjóstmálið 127% og boldýpt 48% af hæð herða (2.
tafla).
Við sex mánaða aldur eru folöld hlutfallslega styttri og háfættari en fullorðin hross og
um 3 cm hærri á lend en á herðar og er það í samræmi við það sem gerist hjá öðrum hrossa-
kynjum.
Lengd og gildleiki fótbeina þroskast fynr en beinin í bolnum (rif, mjaðmargrind og
hryggur) sem kemur fram í málum á brjóstmáli boldýpt, breidd og lengd (3. tafla).
Yfirleitt eru hestar stærri en hryssur, en hryssur eru með meira brjóstmál allt vaxtar-
skeiðið og meiri breidd milli mjaðmarhoma frá 18 mánaða aldri.
Umhverfisáhrif eru mest á skrokkmál á aldrinum 18-42 mánaða en hærri erfðafylgni fæst
þegar hrossin voru annaðhvort mjög ung eða fullvaxta (6 og 54 mánaða) en lægst við 30
mánaða aldurinn. Meðalerfðafylgni fyrir skrokkmálin var 0,46.
Skíðmál
5. Breidd framleggjar.
Bogmál
6. Brjóstbreidd.
7. Breidd milli mjaðmarhoma.
8. Breidd milli lærleggstoppa.
Stangarmál
9. Hæð á herðar.
10. Hæðábak.
11. Hæðálend.
12. Brjósdýpt.
13. Bollengd.