Ráðunautafundur - 15.02.1994, Page 178
170
ATVINNULÍFIÐ
f dag er ekki hægt að fá mikla firæðslu tengda daglegu lffi fólks I sveitum frekar en öðrum
greinum atvinnulífsins. Sífellt færri böm eiga þess kost að komast í sveit og hafa margir sem
nú eru orðnir fullorðnir aldrei verið í sveit. Þetta fólk vill gjaman kynnast Iffi á sveitabæ, fara í
fjós, vera í sauðburði, sækja egg í hænsnahúsið o.s.frv. Margir sem vom í sveit sem krakkar
vilja kannski fá tækifæri til að fara með bömin sín á sveitabæ, dvelja nokkra daga og rifja upp
liðna tíð. Minnast hræringsins, rúgbrauðsins og rúllupylsunnar. Fyrir íbúa þéttbýlis er sveita-
lffið sveipað ákveðinni rómantík og þarf að gera út á það ef fólk er á annað borð í ferða-
þjónustu en ekki hafa allt eins nýtískulegt og hægt er og farga því sem minnir á gamla tíma.
ÆVINTÝRAFERÐIR
fbúar erlendra stórborga lifa í mjög skipulögðu umhverfi. Marga langar til að komast í kynni
við eitthvað sem reynir á sál og líkama. Flest öll sú afþreying sem ég nefndi hér að ofan gerir
það reyndar að einhveiju leyti. Til viðbótar mætti nefna hellaskoðun, köfun, svifflug, klifur og
svifdrekaflug en þetta er allt stundað um allan heim þó aðstæðumar séu ekki eins erfiðar og
hér á iandi og það er einmitt það sem er svo skemmtilegt Sumir ferðamenn þrá nefnilega
erfiðleika og vosbúð! Því hafa björgunarsveitir kynnst en auðvitað er betra að ferðamenn
kynnist ógnum íslenskrar náttúm með því að kaupa sér einhvers konar afþreyingu.
Það krefst mikillar þekkingar og þjálfunar að bjóða upp á afþreyingu sem á einhvem hátt
getur talist áhættusöm. Öryggi fólks verður aldrei ofmetið og því ekki rétt að skoða slíka
möguleika nema menn séu tilbúnir til að tryggja öryggi ferðalanganna. í þessum þætti þarf
einnig oft að kosta miklu til í tæki og útbúnað og til þess að leggja út í slíkt þurfa markaðs-
kannanir að liggja til gmndvallar til að ekki sé tekin of stór áhætta. Lágmark er að ræða við
söluaðila á ferðum um landið til að kanna þörfina.
Mig langar til að nefha dæmi um ævintýraferð sem jafnframt er á söguslóðir en það er
mjög einföld ferð sem skipulögð er ffá Húsafelli. Ferðamennirnir fara á eigin bflum á eftir
leiðsögumanni að Surtshelii, fá vasaljós er þangað kemur og síðan leiðsögn og margar merg-
jaðar sögur er inn í hellinn er komið. Svona ferð er ógleymanleg bæði bömum og fullorðnum
og eykur töfra alls svæðisins til muna.
SAMKOMUR
Eg nefndi áðan maraþonið á Egilsstöðum sem dæmi um samkomu sem laðar að ferðafólk. Það
er gaman að leggja höfuðið í bleyti og hugsa hvað gæti dregið að ferðamenn á einstökum
svæðum og huga þá að samspili náttúru og sögu. Um helgar fjölmennir fjölskyldufólk oft á
tjaldstæði og væri alveg til í að fara á gott harmonikkuball með börnin sín í stað þess að sitja
saman í tjaldinu svona nétt eins og aldrei hafi verið farið að heiman.