Morgunblaðið - Sunnudagur - 07.05.2017, Síða 8
Í PRÓFÍL
8 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 7.5. 2017
ÚTLENDINGUR Stórþjóðamenn sjá stundum ekki út
fyrir túngarðinn og trúa því ekki fyrr en í fulla hnefana
að eitthvað gott sé að finna handan landamæranna, hvað
þá betra en heima fyrir. Fræg er fyrirsögn í Lundúna-
blaðinu Evening Standard þegar spurðist út haustið
1996 að franskur þjálfari, Arsène Wenger, tæki hugsan-
lega við Arsenal: Arsène Who? spurði blaðið í fyrirsögn.
Hvaða Arsène?
Wenger var vissulega ekki þekktur leikmaður en hafði
staðið sig mjög vel sem þjálfari með lið Mónakó. „Ég
man að þegar Bruce Rioch var rekinn birti eitt blaðanna
þrjú eða fjögur nöfn,“ sagði rithöfundurinn og Arsenal-
aðdáandinn Nick Hornby seinna við Guardian. „Það voru
[Terry] Venables, [Johan] Cruyff og að síðustu Arsène
Wenger. Ég man ég hugsaði, sem stuðningsmaður, ég
þori að veðja að það er þessi andsk ... Arsène Wenger,
vegna þess að ég hef aldrei heyrt á hann minnst en kann-
ast við hina. Það má treysta Arsenal til að ráða þann leið-
inlega sem enginn veit hver er.“ Wenger var svo maður-
inn sem breytti öllu hjá Arsenal til hins betra.
Arsène Wenger, leikmaður RC Strasbourg, fyrir leik gegn
Duisburg í Evrópukeppninni undir lok áttunda áratugarins
AFP
Ódauðleg fyrirsögn:
Hvaða Arsène?
ARSÈNE WENGER Þegar Frakkinn Arsène Wenger var ráðinn þjálfari
þess merka enska fótboltafélags Arsenal í London haustið 1996 brugðust
margir ókvæða við. Hver þykist þessi hávaxni gleraugnaglámur vera? Hvað
vill hann upp á dekk? spurðu menn. Hann er nú sigursælasti þjálfari í sögu
Arsenal, sem hefur í áratugi verið eitt öflugasta félag Englands. Það vann
nokkra titla á árunum áður en Wenger kom til skjalanna en mörgum þótti
liðið hins vegar ekki skemmta áhorfendum nægilega vel og þess vegna kom
að því að eigendur félagsins vildu skipta um kúrs.
Drykkjuskapur fótboltamanna var stórkostlegt vandamál í Englandi á
þessum árum. Leikmenn snæddu steik og franskar kartöflur fyrir leik og alls
kyns sætindi þóttu eðlilegur eftirréttur í leikslok. Með Wenger mættu til
starfa næringarfræðingar, vísindamenn í þjálfunarfræðum og sérfræðingar í
andlegum málefnum, leikmönnum til aðstoðar. Svoleiðis nokkru voru enskir
leikmenn óvanir og fussuðu sumir í fyrstu. Ekki leið þó á
löngu þar til árangur holls lífsstíls og betri þjálfunar-
aðferða kom í ljós og fetuðu þjálfarar annarra enskra fé-
lagsliða svipaða braut og sá franski. Wenger hafði breytt
enska fótboltanum til frambúðar.
Mörgum stuðningsmönnum liðsins finnst of langt síð-
an Wenger og hans menn hömpuðu bikar. Rúmur ára-
tugur sé frá því Arsenal varð enskur meistari, sem ekki
sé viðunandi, en ekki má gleymast að liðið varð enskur
bikarmeistari bæði 2014 og 2015. Hörðustu andstæð-
ingar Wengers í stuðningsmannahópi Arsenal mæta með
skilti á hvern einasta leik og krefjast þess að hann láti af
störfum. Einhverjir hafa gengið svo langt að leigja flug-
vél sem hringsólaði yfir vellinum meðan Arsenal var að
spila, með borða í eftirdragi þar sem þess var krafist að
Wenger hyrfi á braut. Stuðningsmenn öndverðrar skoð-
unar gripu til þess í kjölfarið að leigja vél sem í var
hengdur borði með þveröfugum skilaboðum, Wenger til
stuðnings.
Wenger er 67 ára, fæddur í Strassborg 22. október
1949, en er ekki á þeim buxunum að leggja þjálfaraskóna
á hilluna þrátt fyrir allt. Wenger og franska körfubolta-
konan Annie Brosterhouse, sem er sex árum yngri, voru
par í mörg ár, giftust loks 2010 en skildu fimm árum síð-
ar. Saman eiga þau tvítuga dóttur. skapti@mbl.is
Breytti öllu
til batnaðar
Wenger var einstaklega klókur í viðskiptum fyrir hönd Arsenal; keypti ítrekað góða leik-
menn fyrir litla peninga. Hér kynnir hann Emmanuel Petit og Marc Overmars til leiks 1997.
AFP
’Hugmyndir Wengers umbreytt mataræði, nýstár-legri þjálfunaraðferðir og holl-ari lífsstíl breyttu enskri
knattspyrnu til frambúðar.
AFP
SIGRAR Lið Preston North
End tapaði ekki leik í ensku
deildarkeppninni þegar hún
fór fram í fyrsta skipti, vet-
urinn 1888 til 1889. Afrekið
var ekki jafnað fyrr en
rúmri öld síðar, leiktíðina
2003 til 2004, þegar Ars-
enal fór taplaust í gegn-
um ensku úrvalsdeild-
ina, líklega erfiðustu
deildarkeppni í heimi.
Preston vann 18
leiki en gerði fjögur
jafntefli, en þegar
drengir Wengers léku
heilan vetur án þess að
tapa í deildinni voru leikirnir 38;
Arsenal vann 26 en gerði 12 jafn-
tefli. Ekkert lið hefur leikið afrek
Preston og Arsenal eftir.
Wenger fagnar meistaratitli Arsenal
vorið 2004, eftir frábæra leiktíð.
AFP
Hinir
ósigrandi
HAGSÝNI Hagfræðimenntun
Wengers hefur komið Arsenal að
góðum notum. Bygging glæsilegs
leikvangs í byrjun aldarinnar kost-
aði 390 milljónir punda (tæpa 55
milljarða króna á núvirði) og þrátt
fyrir góðan samning við Emirates-
flugfélagið í Dubai, sem leikvang-
urinn heitir eftir, fjármagnaði Ars-
enal verkefnið að mestu sjálft.
Wenger lék lykilhlutverk sem oft
áður og það virðist hafa verið hug-
mynd hans að leggja áherslu á að
skóla til unga leikmenn og hagnast
sem mest á því að selja þá eldri og
reyndari á meðan félagið komst
fyrir vind, fjárhagslega.
Fótbolti og
peningar
Wenger við Emirates-leikvang Arsenal árið 2004, á meðan hann var í byggingu.
Þessi stórglæsilegi leikvangur félagsins var tekinn í notkun haustið 2006.
AFP
Wenger og Annie Brosterhouse
voru par í mörg ár en skildu 2015.
AFP
Funahöfða 7, 110 Reykjavík | Sími 577 6666
., '*-�-��,�rKu�,
KIEL/ - OG FRYSTITJEKI
Iðnaðareiningar
í miklu úrvali