Morgunblaðið - Sunnudagur - 07.05.2017, Page 29

Morgunblaðið - Sunnudagur - 07.05.2017, Page 29
7.5. 2017 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 29 Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson Eplasalat – einn þeirra rétta sem eru í boði í Salatsjoppunni. Davíð Kristinsson hefur lengi haft mikinn áhuga á mat og lagt áherslu á að útbúa hollar máltíðir handa sér og sínum. Gaf út matreiðslubók fyrir nokkrum ár- um en segir réttina sem í boði eru í Salatsjoppunni ekki byggða á bókinni nema að litlum hluta. „Hér er hægt að fá snakk ofan á salatið og majonessósur,“ segir hann en svoleiðis nokkuð var ekki til umfjöll- unar í bók Davíðs. Þótti ekki nógu hollt til að komast þar að enda annað þar á ferðinni en skyndibitinn sem sem boðið er upp á á nýja staðnum við Tryggvabraut. Á veitingastaðnum er boðið upp á nokkrar salat- skálar af matseðli en viðskiptavinum stendur einnig til boða að setja saman rétt að eigin vali eins og sjá má hér að ofan. Einn salatréttanna á seðlinum er kenndur við Dav- íð og er einmitt í uppáhaldi hjá honum. „Próteinið fæ ég úr hægelduðum nautakinnum. Í skálinni eru líka sætar kartöflur, rauðrófur, jalapeno, avókadó, pikl- aður rauður laukur og chili-majónes. Sem skraut of- an á salatið fæ ég mér til dæmis ristaðar furuhnetur. Þetta salat hefur slegið í gegn hjá okkur,“ segir Davíð. Umrætt salat er í skálinni á mynd hér til hliðar. Af matseðli eða eigin samsetning Grísk jógúrt www.biobu.is Lífrænar mjólkurvörur Lífrænu Grísku jógúrtina frá Biobú er gott nota í matargerð, svo sem í ídýfur með karríréttum og öðrum sterkkrydduðum réttum, þar sem hún er svalandi og vinnur á móti kryddinu í réttunum. Svo er hún alveg kjörin í alla sósugerð og til mareneringar á grillsteikinni. Jógúrt hvítlaukssósa 250 ml Grísk jógúrt 1 tsk salt (Himalaya eða sjávarsalt) 1-2 hvítlauksrif, pressuð 0,25-0,5 tsk svartur pipar Smá klípa steinselja (má sleppa) Hrærið öllu vel saman. Kælið í a.m.k. 30 mínútur. Lífræn íslensk framleiðsla Lífræn

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.