Morgunblaðið - 10.06.2017, Blaðsíða 11
FRÉTTIR 11Innlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 10. JÚNÍ 2017
Engjateigi 5 // 581 2141 // hjahrafnhildi.is
gisting.dk
499 20 40 (Íslenskur sími) 32 55 20 44 (Danskur sími)
Herbergi frá Dkk 300 Íbúðir frá Dkk 900
Kaupmannahöfn
Við höfum lækkað vöruverð í samræmi við tolla og gengi Kringlunni 4c – Sími 568 4900
SMART Í
SUMAR
Buxur
6.995,-
Bolur
4.995,-
Peysa
9.995,-Jakki
10.995,-
Tunika
4.995,-
Fyrir útskriftir og
sumarveislurnar
Fylgdu okkur á facebook.com/laxdal.is
Laugavegi 63 • Skipholti 29b • S. 551 4422
Opið í dag 11-16
Bæjarlind 6, sími 554 7030
Við erum á facebook
Ný sending
af bolum
Kr. 5.990.-
Str. M-XXXL
fleiri litir – fleiri munstur
Sögustaðir, ferðaþjónusta, sveitabýli
og garðyrkjustöð voru meðal staða
þar sem Guðni Th. Jóhannesson, for-
seti Íslands, og Eliza Reid, eigin-
kona hans, komu í opinberri heim-
sókn sinni í Bláskógabyggð í gær.
Fulltrúar í sveitarstjórn tóku á móti
gestunum árla dags nærri Þingvöll-
um, en þar var höfð viðdvöl og farið
um staðinn undir leiðsögn.
„Í einni af minni fyrstu Íslands-
ferðum bauð Guðni mér austur á
Þingvelli og ég heillaðist af staðnum.
Þetta var um haust í svo frábæru
veðri að ég sagði að við skyldum
flytja til Íslands,“ sagði Eliza.
Að Laugarvatni skoðuðu forseta-
hjónin gamla Héraðsskólann, sem
nú er gististaður, og gufubaðið Font-
ana. Þá fóru þau í heimsókn að
Hjálmsstöðum í Laugardal og skoð-
uðu þar stórt og nýlegt kúabú. Eftir
það lá leiðin í Laugarás og Reykholt
í Biskupstungum þar sem síðdegis
var opið hús þar sem fólki í sveitinni
gafst kostur á að hitta og rabba við
forsetahjónin. sbs@mbl.is
Morgunblaðið/Sigurður Bogi
Gestrisni Forsetahjónunum var boðið upp á rúgbrauð, bakað í kraumandi hver sem er niðri við Laugarvatn.
Sólskin í forsetaheimsókn
Góður dagur í
Bláskógabyggð og
víða komið við
Þingvellir Vilhjlámur Árnason, formaður Þingvallanefndar, sagði forseta
frá ýmsu því sem unnið er að á vettvangi nefndarinnar um þessar mundir.
Heimsókn Guðni og Eliza á bænum Hjálmsstöðum að ræða við bændurna
þar, Ragnhildi Sævarsdóttur og Daníel Pálsson, og Védísi dóttur þeirra.