Morgunblaðið - 10.06.2017, Blaðsíða 14

Morgunblaðið - 10.06.2017, Blaðsíða 14
14 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 10. JÚNÍ 2017 Dagana 26. og 27. maí voru hljóðrit- aðar átta guðsþjónustur í Blönduós- kirkju til flutnings á Rás 1 Ríkis- útvarpsins á sunnudögum í sumar. Þetta er í þriðja sinn sem útvarps- messur að sumarlagi koma frá söfn- uðum af landsbyggðinni og hljóðmenn Ríkisútvarpsins taka þær upp fyrir- fram, að því er fram kemur í frétt á heimasíðu biskups. Skipulagning og umsjón þessa verkefnis var í höndum Margrétar Bóasdóttur söngmálastjóra og upp- tökumaður Ríkisútvarpsins var Einar Sigurðsson. Allir prestar, organistar og kórar prófastsdæmisins sáu sér fært að taka þátt og voru þátttakendur í verkefn- inu alls 202, þ.e. 167 kórsöngvarar, einsöngvarar og hljóðfæraleikarar, 18 lesarar, 9 organistar og 8 prestar. Messunum verður útvarpað eftir- farandi sunnudaga: 18. júní - Sauðárkróksprestakall, sr. Sigríður Gunnarsdóttir, 25. júní - Skagastrandarprestakall, sr. Bryn- dís Valbjarnardóttir, 2. júlí - Mikla- bæjarprestakall, sr. Dalla Þórðar- dóttir, 9. júlí - Glaumbæjarpresta- kall, sr. Gísli Gunnarsson, 16. júlí - Hofsóss- og Hólaprestakall, sr. Halla Rut Stefánsdóttir, 23. júlí - Þing- eyraklaustursprestakall, sr. Svein- björn R. Einarsson, 13. ágúst - Breiðabólstaðarprestakall, sr. Magn- ús Magnússon og 27. ágúst - Mel- staðarprestakall, sr. Guðni Þór Ólafs- son. Á sunnudögum inni á milli þessara dagsetninga verður útvarpað mess- um frá Skálholtshátíð, Reykholts- hátíð og Hólahátíð. sisi@mbl.is Morgunblaðið/Sigurður Ægisson Blönduóskirkja Orð Guðs hljómaði klukkustundum saman í maílok. Tóku upp átta útvarpsmessur Viðskiptatækifæri á www.kontakt.is Frekari upplýsingar veita: Gunnar Svavarsson, gunnar@kontakt.is Guðni Halldórsson, gudni@kontakt.is Til sölu er helmingshlutur eða meira í Skúlagarði fasteignafélagi ehf. Í fasteignum félagsins, sem samtals eru 947 fm að stærð, er rekið 17 herbergja hótel búið nýlegum herbergjum sem öll eru með baði. Auk þess er veitingarými með góðu eldhúsi og aðgengi að 233 fm samkomusal. Lóðin er mjög stór eða 13.732 fm sem býður upp á mikla stækkunarmöguleika. Á lóðinni er m.a. starfsmannabústaður. Hótelið mun væntanlega styrkja mjög stöðu sína þegar nýr Dettifossvegur er fullbúinn. Ha uk ur 06 .1 7 Hótelfasteignin í Kelduhverfi Skúlagarður STANGVEIÐI Einar Falur Ingólfsson efi@mbl.is Það er mokveiði við Urriðafoss. Allir eru að ná kvótanum, fimm löxum á hvora stöng á dag, og gætu náð meiru ef þeir mættu reyna,“ segir Harpa Hlín Þórðardóttir, sölustjóri Iceland outfitters, félags sem leigði á dögunum veiðiréttinn við fossinn. Hafa þessar stangveiðar vakið at- hygli en mikil veiði er alla jafna í net við Urriðafoss. Harpa Hlín segir flesta veiða á maðk en margir fái líka á túbur. Menn veiða af klöppum fyr- ir neðan fossinn og segir Harpa ferðamennina sem koma að skoða fossinn fylgjast spennta með. „Það væri örugglega hægt að selja inn á þetta,“ segir hún og hlær. Harpa segir að þegar þau Stefán Sigurðsson maður hennar hafi rætt við bændur um stangveiði við foss- inn hafi þeir verið jákvæðir og fram- sýnir en líta megi á þetta sem já- kvæða leið til að fá netin upp. „Bændur eru ekki síður spenntir fyrir góðu gengi í stangveiðinni en við. Við kynntum leyfin ekki fyrr en degi áður en veiðin hófst – en þau seldust upp á örfáum klukkustund- um! Allir veiðidagar fram í júlí.“ Þá ætluðu bændur að hefja netaveiðina en Harpa segir þau nú hafa keypt nokkra netaveiðidaga af bændum. „Síminn hefur ekki stoppað síðan við kynntum þessa veiði. Við höfum verið í þessum bissness í fjölmörg ár en aldrei kynnst viðlíka áhuga.“ Hún bendir á að það eigi eftir að koma í ljós hvernig framhaldið verð- ur, ekki sé gefið að veiðin verði áfram svona frábær. Nú gangi lax snemma. Svo á Þjórsá eftir að skolast meira þegar líður á sumarið. „En þetta er ótrúlega spennandi og ekki bara fyrir okkur og bændur við Urriðafoss, heldur líka fyrir bændur fyrir ofan foss enda mikil laxagengd í ána og það kæmi ekki á óvart að fleiri netabændur prófuðu að leyfa veiðar á stöng.“ Fínn gangur er í veiðinni í Norð- urá í Borgarfirði. Hópur sem lauk veiðum á fimmtudag landaði 33 á stangirnar átta og höfðu þá veiðst 68 á fyrstu sex veiðidögunum. „Það virðist vera mikið af laxi að ganga og það er smálax með,“ segir Einar Sigfússon sölustjóri. „ Mér finnst meira af vænum fiski nú en ég átti von á. Það var ekki spáð neinu sérstöku stórlaxasumri en mér finnst þetta mjög lofandi byrjun.“ Leyfi við fossinn rifin út Háfað Umhverfið er tilkomumikið við Urriðafoss. Hér er lax háfaður fyrir Hjálmar Árnason eftir góða viðureign.  Allir að veiða kvótann á stangirnar tvær við Urriðafoss Ferðamenn fylgjast spenntir með  Góð byrjun í Norðurá Apótekarinn hefur í samstarfi við stuðningsfélagið Kraft – stuðnings- félag fyrir ungt fólk sem greinst hef- ur með krabbamein og aðstandendur hrundið af stað átaki sem ætlað er að styðja við félagsmenn Krafts sem lent hafa í fjárhagsörðugleikum vegna baráttu við krabbamein. Að sögn Huldu Hjálmarsdóttur, framkvæmdastýru Krafts, kviknaði hugmynd Apótekarans vegna mynd- bands Ástrósar Rut Sigurðardóttur, formanns Krafts, sem hún birti á Facebook. Þar ræddi Ástrós allan þann lyfjakostnað sem sambýlis- maður hennar þarf að greiða vegna krabbameins sem hann hefur þurft að berjast við í fimm ár. Samkvæmt Huldu er þessi stuðn- ingur Apótekarans ómetanlegur. „Félagsmenn okkar þurfa oft að greiða háar upphæðir fyrir lyf sem tengjast krabbameininu en eru ekki niðurgreidd í öllum tilfellum af Sjúkratryggingum Íslands.“ Stofnaður hefur verið sérstakur sjóður átakinu til handa og var samn- ingur þess efnis undirritaður 1. júní. Mánaðarlega fær Kraftur 500 þús- und krónur frá Apótekaranum til út- deilingar sem fer í að kosta lyf og aðr- ar tengdar vörur. Meðal annars í að hjálpa félagsmönnum að greiða fyrir stoðlyf (verkjalyf, kvíðastillandi lyf, sýklalyf, stera, ógleðilyf o.fl.) en kostnaður við þau geta verið gríðar- legur, þau eru hins vegar ekki niður- greidd að fullu af Sjúkratryggingum Íslands. Hulda nefnir þó að þrátt fyrir þennan góða styrk verði það áfram eitt af helstu baráttumálum Krafts að krabbameinsveikir þurfi ekki að greiða fyrir lyf sem tengjast sjúk- dómi þeirra. urdur@mbl.is Ljósmynd/Kraftur Styrkur Hulda Hjálmarsdóttir, framkvæmdastjóri Krafts, og Kjartan Örn Þórðarson lyfjafræðingur hjá Apótekaranum skrifa undir samninginn. Styðja við ungt fólk með krabbamein  500 þúsund krónur á mánuði í styrk Kraftur » Félagið var stofnað 1. októ- ber árið 1999. » Fyrir krabbameinssjúklinga á aldrinum 18-40 ára og að- standendur þeirra.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.