Morgunblaðið - 10.06.2017, Blaðsíða 16

Morgunblaðið - 10.06.2017, Blaðsíða 16
16 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 10. JÚNÍ 2017 TANGARHÖFÐA 13 VÉLAVERKSTÆÐIÐ kistufell.com Það er um 80% ódýrara að skipta um tímareim miðað við þann kostnað og óþægindi sem verða ef hún slitnar Hver er staðan á tíma- reiminni í bílnum þínum? Hringdu og pantaðu tíma í síma 577 1313 Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins ermeð opið hús fyrir almenning á slökkvistöðinni í Hafnarfirði í dag, laugardaginn 10. júní, milli kl. 15 og 17 ALLIR VELKOMNIR Mikilvægt að börn séu í fylgd fullorðinna Opna húsið er á slökkvistöðinni við Skútahraun 6 í Hafnarfirði OPIÐ HÚS HJÁ www.shs.is SLÖKKVILIÐINU sjúkrabílar, kranabíll slökkvibílar, körfubíll og hoppukastalar Guðni Einarsson gudni@mbl.is Ekki er hægt að draga víðtækar ályktanir af dómi Hæstaréttar í máli tveggja íbúðaeigenda gegn húsfélagi frá í fyrradag, að mati Sig- urðar Helga Guðjónssonar, hrl. og formanns Húseigendafélagsins. Húsfélagið krafðist þess að viðurkennt yrði að íbúðaeigendurnir mættu ekki leigja íbúðir sínar til ferðamanna. Hæstiréttur taldi að ekki hefði átt að krefjast þess að íbúðaeigendurnir leituðu samþykkis allra félagsmanna í húsfélaginu fyr- ir útleigu íbúðanna heldur einungis í húsfélagsdeildum (stigagöngum). Íbúðaeigendurnir voru því sýknaðir af aðalkröfum húsfélagsins. Sigurður sagði að héraðsdómur í málinu hefði verið oftúlkaður. Eftir hann hefði því verið haldið fram að samþykki allra í viðkomandi hús- félagi þyrfti fyrir útleigu íbúða fyrir ferðamenn. Ekki var hægt að draga slíkar ályktanir af málinu, að mati Sigurðar. Hann sagði að málið hefði snúist um hvort leigja mætti íbúðir í fjöleignarhúsum til ferðamanna og hvort það ylli ónæði fyrir aðra íbúa. Sigurður sagði að í raun og veru hefði Hæstiréttur ekki tekið á þessu álitaefni heldur sagt að ekki hefði verið rétt að málum staðið við ákvarðanatöku hjá húsfélaginu. „Það er ekkert sem segir að niðurstaðan verði þessi, fari málið aftur fyrir dóm á réttum grundvelli. Það var ekkert farið í kvikuna í mál- inu,“ sagði Sigurður. „Formsatriði urðu húsfélaginu að falli. Hæstirétt- ur fjallaði ekki um efni málsins. Þess vegna vek ég athygli á því að þetta hefur takmarkað fordæm- isgildi.“ Sigurður segir að beðið hafi verið eftir þessum dómi vegna svip- aðra mála, en dómurinn svari litlu um þau. Hins vegar sé dómurinn vel rökstuddur um það atriði sem hann tekur á. Sigurður segir að svona mál séu þó nokkuð algeng, en samt mik- ið færri en hann hefði haldið miðað við umsvifin á þessu sviði. Grenndarreglur gilda Valtýr Sigurðsson hrl. var lög- maður íbúðaeigendanna. Hann var einnig formaður áfrýjunarnefndar fjöleignarhúsamála í um 20 ár. Hann var spurður hvort dómur Hæstaréttar hefði leyst úr óvissu sem ríkir varðandi leigu íbúða í fjöl- eignarhúsum til ferðamanna. „Nei, hann leysir ekki úr því og svarar því ekki hvort útleiga sem þessi feli í sér breytta hagnýtingu sem þurfi samþykki allra eða ein- hverra meðeigenda fyrir,“ sagði Valtýr. Hann segir að margþætt óvissa ríki um þessi mál. Í fyrsta lagi ríki óvissa um or- lofsíbúðir í fjöleignarhúsum. Þær séu fyrir utan allt regluverkið og hvorki starfsleyfisskyldar né beri hærri fasteignagjöld en íbúðar- húsnæði. Ónæði geti stafað frá fólki í orlofsíbúðum ekki síður en frá gestum ferðamannaíbúða. Íbúðir sem eru í skammtíma- leigu í allt að 90 daga á ári eru ekki leyfisskyldar en íbúðir sem leigðar eru út í meira en 90 daga á ári eru leyfisskyldar. Valtýr segir að leyfis- skyldur rekstur sé atvinnurekstur. Því sé þó ósvarað hvort slíkum rekstri fylgi breytt hagnýting á hús- næðinu, það er hvort íbúðarhúsnæði breytist við það í atvinnuhúsnæði. „Hæstaréttardómurinn segir að venjulegar grenndarreglur gildi. Hvert hús eða húsfélagsdeild verður að takast á við hvort leigan hafi í för með sér ónæði sem ekki sé brugðist við, sé kvartað yfir því. Ítrekað ónæði, meira en búast má við í venjulegum fjöleignarhúsum, geti leitt til þess að banna megi slíka leigu,“ sagði Valtýr. Óvissa um ferðamannaíbúðir  Nýlegur hæstaréttardómur leysir ekki úr óvissu um stöðu ferðamannaíbúða í fjöleignarhúsum  Ekki var snert á kviku málsins, að mati hæstaréttarlögmanns Morgunblaðið/Árni Sæberg Ónæði Kvartað hefur verið yfir ferðamönnum í fjöleignarhúsum. Axel Helgi Ívarsson axel@mbl.is Hálendisvakt Slysavarnafélagsins Landsbjargar mun standa sína plikt í sumar sem fyrr. Jónas Guðmunds- son hjá Landsbjörgu segir að rúm- lega 200 manns muni standa vaktina á hálendinu þetta sumarið. Er það svipaður fjöldi og starfað hefur síð- ustu ár. Hálendisvaktin mun hefjast fyrr í ár, þ.e. á bilinu 20.-24. júní, og mun standa til ágústloka. „Þörfin er ein- faldlega þannig“, segir Jónas. Tveir hópar verða á Fjallabaki, þ.e. í grennd við Landmannalaugar, en einnig verða hópar á Sprengi- sandi og í Drekagili. „Hins vegar gæti mannskapur farið fyrr af stað þar sem Vegagerðin hyggst opna Landmannalaugar í næstu viku,“ segir Jónas. Vegagerðin staðfesti að ein leið væri nú þegar opin niður í Landmannalaugar. Sú leið er Fjalla- baksleið nyrðri frá Sprengisands- leið, en er einungis fær fjórhjóla- drifnum bílum um sinn. Nýtt tilraunaverkefni í sumar á vegum Slysavarnafélagsins er stofnun við- bragðsvaktar í Skaftafelli. Mun hún vara frá miðjum júli til miðbiks ágústmánaðar. Jónas segir þetta verkefni vera „anga af Hálendis- vaktinni“ og sé gert til þess að styðja við þær bjargir sem eru í Skaftafelli. Varðandi fjölgun ferðamanna til landsins og álag á hálendinu vegna þess, segir Jónas að örlítil fjölgun hafi verið á atvikum undanfarin ár en að sú fjölgun haldist ekki í hendur við fjölgun ferðamanna hérlendis. „Atvik vegna erlendra ferðamanna eru oftar en ekki fljótlega leyst,“ segir Jónas. Áfram verður lögð áhersla á stuðning og eflingu for- varnarstarfs til ferðafólks. Á vaktinni í tólfta sinn Morgunblaðið/Sigurður Bogi Hálendið Vaskur hópur á vaktinni.  Fyrr af stað í ár  Áhersla sett á forvarnir til ferðalanga Sinfóníuhljómsveit Íslands hélt hádegistónleika í Hörpu í gær og hljómsveitarstjóri var Rumon Gamba, aðal- stjórnandi hljómsveitarinnar á árunum 2002 til 2010. Hljómsveitin flutti verk eftir sænska tónskáldið Dag Wirén, en í júní mun hún hljóðrita disk með verkum Wi- réns fyrir Chandos-útgáfuna. Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Verk Wiréns ómuðu í Hörpu Sinfóníuhljómsveit Íslands hélt hádegistónleika Tveir nemendur við Háskóla Ís- lands hafa hlotið styrk til að vinna að tíu vikna verkefni við California Institute of Technology (Caltech) í Kaliforníu í Bandaríkjunum í sum- ar. Nemendurnir, Ásgeir Tryggva- son og Bergþór Traustason, nema báðir verkfræðilega eðlisfræði. Styrkjunum er nú úthlutað í tí- unda sinn frá árinu 2008, en verk- efnin sem um ræðir fela í sér rann- sóknarsamstarf milli leiðbeinanda og nemenda. Frá árinu 2008 hafa 26 nemendur HÍ haldið til sum- arnáms til Caltech. Jón Atli Benediktsson, rektor HÍ og Friðrika Harðardóttir, for- stöðumaður alþjóðasamskipta við HÍ veittu styrkina. Ljósmynd/Björn Gíslason Styrkþegar Ásgeir og Bergþór ásamt forsvarsmönnum HÍ. Hlutu styrk til náms í Kaliforníu
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.