Morgunblaðið - 17.06.2017, Page 11
FRÉTTIR 11Innlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 17. JÚNÍ 2017
Sími 788-2070 / 787-2070 | hotelrekstur@hotelrekstur.is | hotelrekstur.is
Rúmáb
reiður
HOTELREKSTUR
ALLT Á EINUM STAÐ
Fyrir hótel, gistiheimili, dvalarheimili, veitingahús,
veisluþjónustur, heilsugæslustofnanir o.fl.
Engjateigi 5 // 581 2141 // hjahrafnhildi.is
gisting.dk
499 20 40 (Íslenskur sími) 32 55 20 44 (Danskur sími)
Herbergi frá Dkk 300 Íbúðir frá Dkk 900
Kaupmannahöfn
Við höfum lækkað vöruverð í samræmi við tolla og gengi Kringlunni 4c – Sími 568 4900
SMART Í
SUMAR
Buxur
6.995,-
Bolur
4.995,-
Peysa
9.995,-Jakki
10.995,-
Tunika
4.995,-
Gleðilegan þjóðhátíðardag
Lokað í dag
Bæjarlind 6, sími 554 7030 | Við erum á facebook
Málverk eftir Jóhannes S. Kjarval,
Jón Stefánsson og Kristínu Jónsdóttir
Studio Stafn, Hátúni 6B, Sími 552 4700.
Leitum að góðum blómauppstillingum eftir Kristínu Jónsdóttur og Jón
Stefánsson og úrvalsmálverki eftir Jóhannes S. Kjarval fyrir fjársterkan
viðskiptavin.“
Ný verk í sölu á: studiostafn.is/listaverkasala
Halldór Árnason, skó-
smiður á Akureyri, lést
í fyrrakvöld, á 85. ald-
ursári. Halldór fæddist
19. ágúst árið 1932.
Foreldrar hans voru
Árni Magnússon og
Helga Gunnlaugsdóttir
á Hjalteyri. Halldór
var yngstur 11 systk-
ina, ólst upp á Hjalt-
eyri til níu ára aldurs
en fór þá í fóstur til
Helgu Sigfúsdóttur og
Odds Jónssonar, skó-
smiðs á Steinsstöðum í
Öxnadal. Halldór flutti
með þeim til Akureyrar 1948 og
lærði skósmíðar af fóstra sínum.
Eiginkona Halldórs var Sigríður K.
Kristjánsdóttir úr Sandgerðisbót í
Glerárþorpi. Börn þeirra eru sex:
Anna Greta, Þórey Ólöf, Kristþór,
Oddur Helgi, Freydís Ágústa og
Elma Dóra.
Halldór, eða Dóri skó eins og
hann var alltaf kall-
aður, hóf nám í skó-
smíði 16 ára gamall,
stundaði hana nær alla
starfsævina og rak
skóverkstæði lengst af
í Brekkugötu 13 á Ak-
ureyri. Ungur fór
hann til sjós og var
bæði á togurum og
síldarbátnum Garðari
EA.
Íþróttir voru aðal-
áhugamál Halldórs,
sem keppti bæði í
knattspyrnu og frjáls-
íþróttum fyrir Þór. Ár-
ið 1951 lenti keppnishópur frá Þór í
alvarlegu slysi þegar stór steinn
hrundi niður á rútu hans í Óshlíð og
tveir dóu. Sjálfur slasaðist Halldór
mikið og var vart hugað líf. Slysið
hafði mikil áhrif á hann, bæði heils-
una og að hafa misst góða félaga.
Halldór var heiðursfélagi íþrótta-
félagsins Þórs á Akureyri.
Halldór Árnason
Andlát
Ákvörðun um að rífa Kársnesskóla var frestað þar til á næsta bæjarstjórn-
arfundi Kópavogsbæjar þann 27. júní nk., en starfshópur sem stofnaður
var um málið hefur lagt til að skólinn, sem er mikið skemmdur af raka og
myglu, verði rifinn, að sögn upplýsingafulltrúa Kópavogsbæjar, Sigríðar
B. Tómasdóttur. Valkostir í stöðunni verði kynntir á íbúafundi þriðjudag-
inn 20. júní nk. kl. 17 í húsnæði Kársnesskóla í Þinghólsskóla við Vall-
argerði. Þar verði hægt að eiga umræðu um málið, spyrja spurninga og
koma á framfæri athugasemdum. ernayr@mbl.is
Íbúafundur vegna Kársnesskóla
Sumarherferð Inspired By Iceland
var ýtt úr vör í gær við Landnáms-
setrið í Borgarnesi af Þórdísi Kol-
brúnu R. Gylfadóttur ferðamála-
ráðherra.
Markmið herferðarinnar er að fá
ferðamenn hérlendis til þess að
ferðast um landið á ábyrgan hátt.
Fram kemur í tilkynningu sem
Inspired by Iceland sendi frá sér í
gær að ánægðir ferðamenn hafi já-
kvæð áhrif á orðspor og ímynd
landsins til lengri tíma. Það sé mikil-
vægt að stuðla að því að ferðaþjón-
ustan dafni í sátt við samfélag og
náttúru.
Erlendir ferðamenn sem og Ís-
lendingar eru hvattir til þess að fara
inn á vefsíðu herferðarinnar og sam-
þykkja loforð sem kallast „The Ice-
landic Pledge“. Með því að deila síð-
unni samþykkir fólk loforðið. Þeir
sem taka þátt og deila síðunni eiga
möguleika á því að vinna ferð um
landið frá Inspired by Iceland.
Nú þegar hafa tæplega 1.500
manns skrifað undir samkomulagið
síðan það var sett inn á vefsíðuna í
gær.
Á síðunni er fólk hvatt til þess að
halda sig á vegum, skilja við staði í
sama ástandi og þegar það kom og
vera viðbúið ýmiss konar veðri. Þar
getur fólk einnig fengið aðstoð við að
skipuleggja ferðir hérlendis.
aronthordur@mbl.is
Ljósmynd/Íslandsstofa
Átak Ferðamálaráðherra og starfsmenn Íslandsstofu í Borgarnesi í gær.
Fólk hvatt til
ábyrgra ferðalaga
Áatal Vigdísar
Finnbogadóttur,
fv. forseta, sem
Oddur F. Helga-
son æviskrárrit-
ari og kona hans,
Unnur Björg
Pálsdóttir, færðu
Stofnun Vigdísar
Finnbogadóttur
var gert í tveim-
ur eintökum. Þorsteinn Jónsson,
æviskrárritari og ritstjóri, setti áa-
talið upp og Hrefna W. Steinþórs-
dóttir, kona hans, myndskreytti það.
Nafn Unnar Bjargar Pálsdóttur
misritaðist í frétt um afhendinguna
sem birtist í blaðinu í gær. Beðist er
velvirðingar á því.
Áatal Vigdísar gert
í tveimur eintökum
Oddur F. Helgason