Morgunblaðið - 17.06.2017, Page 4
4 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 17. JÚNÍ 2017
Jón Birgir Eiríksson
jbe@mbl.is
Brynja Björg Halldórsdóttir, hdl. og
fyrrum löggiltur fasteignasali, hefur
kært til ráðherra framkvæmd at-
vinnuvega- og nýsköpunarráðuneyt-
isins við innheimtu árlegs gjalds sem
ætlað er að standa straum af kostnaði
við eftirlitsnefnd fasteignasala.
Brynja hætti fasteignasölu fyrr á
þessu ári og hélt til annarra starfa, en
í júní var hún krafin um gjaldið, 75
þúsund krónur, og er gjalddagi kröf-
unnar 1. júlí. Lagði hún réttindi sín
inn hjá sýslumanni og fékk þær upp-
lýsingar að krafan yrði niður felld.
Síðar, þegar hún hafði samband við
ráðuneytið, fékk hún aftur á móti þær
upplýsingar hjá lögfræðingi að krafan
yrði ekki felld niður og að hún gæti
ekki fengið endurgreitt. Vísað var í 3.
mgr. 19. gr reglugerðar nr. 931/2016,
sem hefur stoð í lögum nr. 70/2015.
Í reglugerðarákvæðinu segir að
fasteignasalar sem greitt hafi gjaldið,
en láti af störfum áður en sá tími er
liðinn, sem fjárhæð gjaldsins er mið-
uð við, eigi ekki rétt á endurgreiðslu
þess eða hluta þess.
Rukkað óháð eftirliti
Brynja telur að um of víðtækt
framsal löggjafarvalds til ráðuneytis-
ins sé að ræða, enda sé í lögunum ein-
ungis gefin heimild til að innheimta
gjald vegna kostnaðar sem falli til
vegna eftirlitsins. Hins vegar sé
reglugerðarákvæðið mun meira
íþyngjandi en lagaákvæðið.
„Verklagið er greinilega það, að 1.
maí á hverju ári er keyrður út listi um
löggilta fasteignasala og allir sem eru
á honum fá kröfu í heimabankann,
óháð því hvort þeir sæti svo eftirlitinu
eða ekki,“ segir Brynja.
„Ég fékk þær upplýsingar að ég
yrði rukkuð um þetta hvort sem ég
hefði verið háð eftirliti í tólf mánuði
eða einn dag,“ bætir hún við.
Brynja nefnir Lögmannafélagið til
samanburðar, en fyrr á árinu fékk
hún þaðan upplýsingar um að þegar
lögmenn leggi inn málflutningsrétt-
indi hafi félagið boðið þeim að fá lög-
bundið félagsgjald endurgreitt aftur í
tímann í hlutfalli við mánuði sem þeir
notuðu ekki réttindin.
Brynja telur að í raun sé um skatt-
heimtu að ræða í ljósi þess að gjaldið
renni ekki til eftirlitsins og þar af leið-
andi skapi framkvæmdin áleitnar
spurningar um kröfur sem verði að
gera til jafnræðis í skattheimtu.
Grétar Jónasson, framkvæmda-
stjóri Félags fasteignasala og nefnd-
armaður í eftirlitsnefnd með fast-
eignasölum, segist sammála Brynju
um að ástæða sé til að skoða grund-
völl gjaldtökunnar.
Samkvæmt upplýsingum frá ráðu-
neytinu er málið nú á borði lögfræð-
ings þess og unnið er að því að taka af-
stöðu í málinu. Niðurstöðu er að
vænta innan skamms tíma.
Fyrrum fast-
eignasali kærir
gjaldtöku
Innheimt fyrir eftirlit með fasteigna-
sölum Fær gjaldið ekki endurgreitt
Morgunblaðið/Golli
Ráðuneytið Málið er til skoðunar
hjá lögfræðingi ráðuneytisins.
Helgi Bjarnason
helgi@mbl.is
„Við finnum að það er ánægja með
þetta meðal Borgnesinga, ekki að-
eins fólks sem býr hér heldur alveg
eins hjá þeim sem eru fluttir annað.
Fólk á fallegar minningar um haf-
meyjuna,“ segir Geirlaug Jóhanns-
dóttir, formaður byggðaráðs Borg-
arbyggðar. Hafmeyjan, listaverk
Guðmundar frá Miðdal, hefur verið
sett upp að nýju í gosbrunni í
Skallagrímsgarði í Borgarnesi, og
verður vatni hleypt á hana í dag.
Konur úr Kvenfélagi Borgarness
unnu mikið að uppbyggingu Skalla-
grímsgarðs. Árið 1952, þegar kven-
félagið var 25 ára, keypti það högg-
mynd eftir Guðmund frá Miðdal
fyrir 5.000 krónur til minningar um
afmælið. Styttan var sett upp í gos-
brunninum og afhjúpuð á fyrstu
lýðveldishátíðinni sem haldin var í
garðinum, 17. júní 1954.
Þar stóð styttan lengi og tengja
margar kynslóðir Borgnesinga og
nærsveitunga gosbrunninn við há-
tíðir og gleðistundir í garðinum,
eins og Guðrún Jónsdóttir, safn-
stjóri í Borgarnesi, bendir á. Hún
segir einnig að hafmeyjan sé ein-
staklega fallegt listaverk.
Styttan skemmdist og var tekin
niður. Var hún í geymslu og munaði
ekki miklu að henni væri fargað en
var bjargað í Safnahús Borgar-
fjarðar og hefur verið varðveitt í
geymslu þess í um tuttugu ár.
Byggðaráð Borgarbyggðar
ákvað á 100. fundi sínum sem hald-
inn var fyrir fjórum árum að ráðast
í endurbætur á styttunni. Það hefur
dregist, meðal annars vegna mikils
kostnaðar. Í byrjun þessa árs tók
þýski myndhöggvarinn Gerhard
König að sér að gera við styttuna
en hann hefur unnið mikið að end-
urbótum á verkum Samúels Jóns-
sonar í Selárdal. Listaverkið verður
tekið niður á haustin og reynt að
varðveita það sem best.
Það er vel við hæfi að styttan
skuli vera komin á sinn stað á 150
ára verslunarafmæli Borgarness og
90 ára afmælisári Kvenfélags Borg-
arness. Geirlaug er ánægð með
verkið og Guðrún bætir því við að
mikilvægt sé að minnast þess stór-
hugar og framtíðarsýnar sem kon-
ur sýndu með uppbyggingu Skalla-
grímsgarðs.
Hafmey
aftur í
brunninn
Minnast stór-
hugar kvenna
Ljósmynd/Geirlaug Jóhannsdóttir
Listaverk Hafmeyjan eftir Guðmund frá Miðdal er fallegt listaverk sem
lengi gladdi augu gesta Skallagrímsgarðs. Það er nú komið á sinn stað.
Hervör L. Þorvaldsdóttir var kjörin forseti Landsréttar á fundi dómaranna
í Hannesarholti á fimmtudag. Davíð Þór Björgvinsson var kjörinn varafor-
seti. Vilhjálmur H. Vilhjálmsson, dómari við réttinn og aldursforseti
Landsréttar, stýrði fundinum.
Hervör og Davíð Þór voru bæði kjörin til fimm ára, líkt og kveðið er á
um í dómstólalögum.
Líkt og áður hefur komið fram eru aðrir dómarar við réttinn Aðalsteinn
E. Jónasson, Arnfríður Einarsdóttir, Ásmundur Helgason, Ingveldur Ein-
arsdóttir, Jóhannes Sigurðsson, Jón Finnbjörnsson, Kristbjörg Steph-
ensen, Oddný Mjöll Arnardóttir, Ragnheiður Bragadóttir, Ragnheiður
Harðardóttir, Sigurður Tómas Magnússon og Vilhjálmur H. Vilhjálmsson.
Hervör og Davíð forsetar Landsréttar
Þroskahjálp á Suðurnesjum vígði í
gær nýjar starfstöðvar endur-
vinnslustöðvarinnar Dósasels að
Hrannargötu 6 í Keflavík. Dósasel
er verndaður vinnustaður sem rek-
inn er af Þroskahjálp en þar starfa
10 fatlaðir starfsmenn allan ársins
hring og taka á móti dósum til end-
urvinnslu. Skilagjald er greitt, 16
krónur á dós. Ásmundur Frið-
riksson þingmaður er formaður
Þroskahjálpar á Suðurnesjum.
Hann segir einnig mikið um að fólk
og fyrirtæki gefi dósirnar og það sé
þeim gjöfum að þakka að Dósasel
geti búið svo vel að sínu fólki sem
raun ber vitni. Starfsemin er um-
fangsmikil en tekið er við um hálfri
milljón dósa í hverjum mánuði. Dós-
irnar koma af öllum Suðurnesjum,
einkum af flugvellinum. „Við sækj-
um á hverjum degi tómar flöskur í
flugstöðina,“ segir Ásmundur og
hefur dósum þar fjölgað samfara
auknum straumi ferðamanna til
landsins.
Gamla húsnæðið var orðið of lítið
fyrir starfsemina og því var gripið til
þess ráðs að kaupa nýtt. Það er um
1.300 fermetrar en hluti þess er
leigður út og er dósavinnslan sjálf
um 400 fermetrar. Um mánuður er
síðan starfsemin var opnuð á nýja
staðnum en mikil vinna hefur staðið
yfir undanfarið við að koma nýja
húsinu í stand.
Fjöldi fyrirtækja hefur stutt það
verkefni, bæði með beinum fjár-
framlögum og vinnu og segir Ás-
mundur að mörgum stundum hafi
verið varið í vinnugallanum upp á
síðkastið. agunnar@mbl.is
Mynd/Víkurfréttir
Heillandi Ásmundur Friðriksson og Þorsteinn Víglundsson félagsmálaráðherra virða fyrir sér aðstöðuna.
Ný endurvinnslustöð Dósasels vígð
LAUGAVEGI 24 - 101 REYKJAVÍK
SÍMI: 552 0800
SKIPAGÖTU 7 - 600 AKUREYRI
SÍMI: 462 4646
GENUINE SINCE 1937