Morgunblaðið - 17.06.2017, Blaðsíða 36

Morgunblaðið - 17.06.2017, Blaðsíða 36
36 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 17. JÚNÍ 2017 Afi var einstakt góðmenni og hafði alltaf mikinn áhuga á námi og störfum barnabarnanna sinna. Honum var annt um að okkur gengi vel í skólanum, hlýddi okkur yfir og sagði okkur frá öllu milli himins og jarðar. Afi var einn fróðasti maður sem ég hef nokkru sinni kynnst, alveg sama hvort viðfangsefnið var á sviði verkfræði, sagnfræði, bók- mennta eða ljóðlistar. Hann var sannkallaður límheili og hafði skoðanir á öllum hlutum. Við matarborðið gat hann sagt frá atburðum í mannkynssögunni eins og hann hefði verið við- staddur sjálfur og fór með kvæði máli sínu til stuðnings. Maður hlustaði agndofa á hann og dáðist að því hversu vel hann var að sér. Eins og verkfræðingum sæmir var afi mjög áhugasamur um alls kyns tæki og tól og við deildum þeim áhuga af ástríðu. Þegar afi keypti nýju Toyotuna valdi hann stærstu vélina sem var í boði og bauð mér svo upp í Heiðmörk til þess að ég gæti prófað gripinn. Ég man ekki nákvæmlega hvað ég var gam- all en ég fékk að minnsta kosti ekki bílpróf fyrr en allmörgum árum seinna. Það var alltaf gaman að ferðast með afa; hann benti á hin og þessi mannvirki sem hann hafði tekið þátt í að hanna í starfi sínu sem verk- fræðingur. Ég man vel hvað mér þótti magnað að geta horft á afrakst- ur starfsævi afa á þennan hátt og var þetta þáttur í því að ég ákvað að leggja verkfræði fyrir mig. Ég á margar góðar æsku- minningar með afa. Það lifir enn í minningunni þegar við pabbi litum í hesthúsið til hans til þess að vitja hrossanna og fara á bak á Vindblesa gamla. Það var einnig fátt skemmti- legra en að fara með afa og ömmu upp í Sólheimatungu þar sem við krakkarnir gátum leik- ið okkur í sveitinni, farið í Jóhannes Guðmundsson ✝ Jóhannes Guð-mundsson fæddist 29. ágúst 1928. Hann lést 1. júní 2017. Útför Jóhann- esar fór fram 13. júní 2017. kassabílarallý eða á kajak á Norður- ánni. Við fórum oft saman í sund í Laugardalslaugina þar sem afi var nær daglegur gest- ur og á eftir fékk maður yndislegt bakkelsi og mjólk hjá ömmu Gunnu á Laugalæknum. Á níræðisaldri varð afi mjög áhugasamur um matargerð og skiptist á upp- skriftum við ættingja og vini. Hann var stórhuga að vanda og hélt stærðarinnar matarboð fyrir afkomendur sína sem við barnabörnin höfðum mjög gam- an af. Þegar afi spjallaði við okkur um hvað hann ætlaði að elda næst var amma alltaf jafn hissa og sagði af undrun: „en þú kannt ekkert að elda, Jóhannes minn.“ Við barnabörnin glott- um að þessu og hvöttum hann áfram í matseldinni þótt amma gæfi afrekum hans í eldhúsinu lítinn gaum. Takk fyrir allar góðu stund- irnar og hvíldu í friði, elsku afi minn. Egill Tómasson. Drengur góður er horfinn á braut. Jóhannes Guðmundsson var meðal þeirra sem slógu skjaldborg um arfleifð Sigur- jóns Ólafssonar myndhöggvara þegar Sigurjón lést árið 1982. Þeir voru báðir sveitungar úr Flóanum, og Jóhannes bar mikla virðingu fyrir þeirri menningu, sem hafði alið menn eins og Ásgrím Jónsson málara, Pál Ísólfsson organleikara og tónskáld, Ragnar Jónsson í Smára og Harald Sigurðsson frá Kaldaðarnesi, píanóleikara og prófessor í Kaupmannahöfn, og einnig varð honum tíðrætt um Markús Ívarsson, meðstofn- anda Vélsmiðjunnar Héðins, sem á þriðja og fjórða áratug síðustu aldar keypti málverk af ungum listamönnum þeim til stuðnings. Markús ánafnaði síðar Lista- safni Íslands hið stórmerkilega safn sitt. Þegar sú erfiða ákvörðun var tekin að ráðast í að endurgera vinnustofu Sigurjóns á Laug- arnesi á árunum 1985-88 kom Jóhannes óumbeðinn að þessu verkefni og studdi það heils hugar, þegar öðrum fannst þetta vera óframkvæmanleg hugmynd. Hann sat í byggingarnefnd Listasafns Sigurjóns Ólafsson- ar ásamt Ögmundi Skarphéð- inssyni og Gissuri Símonarsyni og bjó þannig um hnútana að verkfræðingar hjá Verkfræði- stofu Sigurðar Thoroddsen, VST, styrktu þetta verkefni með vinnu sinni. Það var einnig Jóhannes sem af mikilli útsjón- arsemi lét ráða bestu iðnaðar- menn sem völ var á. Í fórum mínum eru bréf og vandlega handskrifaðar skýrslur sem hann sendi mér um stöðu mála veturinn 1985-86, meðan ég dvaldi við nám í Kaupmanna- höfn. Jóhannes var óþreytandi við að úthugsa fjármögnunarleiðir fyrir byggingaframkvæmdun- um á Laugarnesi og tillögum hans fylgdu oft skondnar sögur úr víravirki íslenskra tengsl- aneta. Hann var mikill mann- þekkjari og honum var tamt að skipuleggja fram í tímann. Minning Jóhannesar Guð- mundssonar er greypt í huga okkar fjölskyldunnar, umvafin ævarandi hlýju og þakklæti. Það var ekki síst Jóhannesi að þakka að Listasafn Sigurjóns Ólafssonar var opnað fyrir al- menning haustið 1988. Við vott- um eiginkonu hans, Guðrúnu Tómasdóttur, og öllum aðstand- endum innilega samúð okkar. Birgitta Spur. Jóhannes Guðmundsson er allur. Með honum er genginn dugmikill verkfræðingur sem gekk til verka réttsýnn og ná- kvæmur. Hann var líka traust- ur vinur vina sinna, fjölfróður og minnugur á menn og mál- efni. Fyrstu kynni okkar Jóhann- esar urðu þegar ég hóf sem ný- útskrifaður verkfræðingur störf á verkfræðistofu Sigurðar Thoroddsen í ársbyrjun 1959. Fljótlega fékk ég það verkefni að vinna með Jóhannesi að hanna burðarvirki háhýsis, sex hæða íbúðablokkar. Í því verk- efni kynntist ég nákvæmni og yfirvegun Jóhannesar þegar við sátum að verki hvor með sinn reiknistokkinn og skráðum nið- urstöður okkar á rúðustrikuð blöð sem við reituðum niður í dálka eftir þörfum. Að reikn- ingum loknum tók við teikni- vinnan á tveim teikniborðum með áfestum teiknivélum að hætti þeirra tíma vinnubragða. Þetta mun hafa verið fyrsta há- hýsið á vegum Sigurðar Thor- oddsen þar sem þurfti að taka sérstaklega tillit til jarðskjálfta við ákvörðun járnbendingar. Þrem árum síðar, þegar Sig- urður ákvað að stofna sameign- arfélag um rekstur verkfræði- stofunnar, völdumst við Jóhannes í stjórn félagsins með Sigurði. Jóhannes varð formað- ur og gegndi því hlutverki allt þar til rekstrarforminu var breytt í hlutafélag árið 1978. Á því tímabili reyndi mjög á hug- myndaauðgi Jóhannesar um ýmis almenn rekstrarmál og fjármálaumsvif. En Sigurður var lengst af þessu tímabili framkvæmdastjóri verkfræði- stofunnar. Árið 1964 eignaðist Háskóli Íslands sína fyrstu tölvu. Það þótti við hæfi að verkfræðistof- an sendi menn á fyrsta forrit- unarnámskeiðið. Fyrir valinu urðu Jóhannes og undirritaður. En aðstæður urðu til þess að Jóhannes nýtti þessa nýju tækni minna en skyldi, enda héldu reiknistokkarnir fullu gildi sínu út sjöunda áratuginn og gott betur. Að vísu komu smátt og smátt á markað betri og betri vasareiknivélar sem léttu álagi af reiknistokkunum. Þegar Verkfræðistofu Sig- urðar Thoroddsen hafði vaxið svo fiskur um hrygg að þar var tekin upp deildaskipting varð Jóhannes deildarstjóri burðar- virkjadeildar og gegndi því starfi þar til hann hætti störf- um. Vinátta og kunningsskapur okkar Jóhannesar hélst þótt hann og síðar ég hættum störf- um á verkfræðistofunni. Það styrkti kunningsskapinn frekar en hitt þegar við af tilviljun skráðum okkur báðir til sömu Ítalíuferðarinnar. Sú ferð hófst daginn sem Jóhannes varð sjö- tugur. Að sjálfsögðu skáluðum við hjónin við Jóhannes og Guð- rúnu konu hans í háloftunum í tilefni dagsins. Í Sólheimatungu, ættaróðali Guðrúnar konu Jóhannesar, er stórt íbúðarhús sem gegnir ekki lengur upphaflegu hlut- verki sínu en er nýtt af afkom- endum foreldra Guðrúnar. Þar hafa þau hjón unnið þarft verk að safna saman og koma fyrir ýmsum safngripum frá búskap- arárum foreldra Guðrúnar, en mikið hefur breyst í landbúnaði frá þeim tíma fram á þennan dag. Ég og við hjón bæði sendum Guðrúnu og börnum þeirra Jó- hannesar og barnabörnum inni- legar samúðarkveðjur með ósk- um um að lífið fari um þau mjúkum höndum í framtíðinni. Sigurbjörn Guðmundsson. ✝ Sigrún fæddistí Reykjavík 6. janúar 1926. Hún lést á dvalarheim- ilinu Grund 25. maí 2017. Foreldrar henn- ar voru Einar Hró- bjartsson, deild- arstjóri Póststof- unnar í Reykjavík, f. 1885, d. 1975, og Ágústa Svein- björnsdóttir, f. 1887, d. 1965. Börn þeirra voru átta: Ingi- björg, Ásgeir, Ásta, Sveinbjörn, Haukur, Agnes, Sigrún og Hró- Gunnlaugi Nielsen, f. 29. sept- ember 1962, þau eiga fjögur börn. 3) Ríkarður Rúnar, f. 27. janúar 1962, kvæntur Frið- björgu Sif Grjetarsdóttur, f. 20. september 1966, þau eiga fimm börn. 4) Einar Már, f. 26. júní 1964, hann á tvö börn. Sigrún ólst upp í stórum systkinahópi í húsi fjölskyld- unnar við Brekkustíg 19. Á yngri árum nam hún við Hús- mæðraskólann á Hallormsstað. Ung réð hún sig sem barnfóstru til Englands þar sem hún dvaldi um skeið. Síðar fór hún í fóst- urnám og starfaði lengst af á leikskólum Reykjavíkurborgar. Sigrún bjó á heimili sínu í Stóragerði 18 þar til hún flutti síðla árs 2016 á dvalarheimilið Grund. Útför Sigrúnar fór fram 6. júní 2017. bjartur, þau eru öll látin. Árið 1953 giftist Sigrún Ríkarði Sumarliðasyni, f. 28.6. 1916, d. 24.5. 1998, þau slitu sam- vistum 1985. Börn þeirra eru 1) Tóm- as, f. 5. desember 1953, sambýliskona Steinunn Arnórs- dóttir, f. 12.10. 1958, d. 30.11. 2002, þau eiga þrjú börn. Kvæntur Hebu Sig- urgeirsdóttur, f. 24.10. 1956. 2) Ágústa, f. 15. febrúar 1959, gift Við vorum átta skólasysturnar sem útskrifuðumst árið 1953 eft- ir tveggja ára nám frá Uppeldis- skóla Sumargjafar, sem stofnað- ur hafði verið árið 1946 í þeim tilgangi að mennta fólk til upp- eldis- og stjórnunarstarfa á barnaheimilum. Það var gæfa skólans að skólastjóri hans frá upphafi var ráðin Valborg Sigurðardóttir sem hafði þá nýlega lokið meist- aranámi í uppeldis- og sálarfræði í Bandaríkjunum. Hún sá til þess að við nemendur nytum bestu kennslu sem völ var á og okkur öllum fannst námið, sem var bæði verklegt og bóklegt, fjöl- breytt og skemmtilegt. Þarna mynduðust fljótlega góð tengsl milli okkar skólasystranna sem haldist hafa í gegnum tíðina. Ein í þessum litla hópi var Sigrún Einarsdóttir sem nú hefur kvatt okkur níutíu og eins árs að aldri. Við minnumst margra góðra stunda með henni og skólasystr- um okkar þremur sem áður eru farnar. Þegar leiðir skildi um stund eins og gengur og önnur verkefni tóku við héldust ávallt böndin sem mynduðust í skól- anum. Við vorum vanar að hitt- ast mánaðarlega á vetrum í saumaklúbbi í heimahúsum þar sem oft var glatt á hjalla og mik- ið spjallað. Að sumarlagi var stundum farið í skemmtiferðir í sumarbústaði þeirra sem þá áttu, m.a. var farið í heimsókn í sumarbústað Sigrúnar við Álfta- vatn þar sem hún tók höfðing- lega á móti okkur í yndislegu umhverfi staðarins. Við skóla- systurnar héldum upp á þrjátíu og fimm ára útskriftarafmæli okkar með ferð til Dublinar og sumarið 2003 minntumst við fimmtíu ára afmælisins með nokkurra daga ferð til Verona. Myndir, sem þar voru teknar, sýna glaðværan hóp sem auðsjá- anlega naut samvistanna í fögru umhverfi. Síðan þessi ferð var farin hefur margt breyst. Við minnumst Sigrúnar okkar með virðingu og þökk. Hún var ljúf og hæglát í umgengni. Á síð- ari árum barðist hún um hríð við krabbamein sem hún tókst á við með sinni alkunnu stillingu. Við sendum ástvinum hennar inni- legar samúðarkveðjur. Pálína, Gyða, Margrét og Valborg Soffía. Sigrún Einarsdóttir Frímann & hálfdán Útfararþjónusta Frímann 897 2468 Hálfdán 898 5765 Ólöf 898 3075 Sími: 565 9775 www.uth.is uth@uth.is Cadillac 2017 Elskulegur faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, FRIÐRIK J. JÓNSSON frá Kópaskeri, til heimilis að Lindarsíðu 4, Akureyri, lést á hjúkrunarheimilinu Lögmannshlíð mánudaginn 12. júní. Útför hans fer fram frá Glerárkirkju á Akureyri fimmtudaginn 22. júní klukkan 13.30. Árni V. Friðriksson Gerður Jónsdóttir Ólafur Friðriksson Freyja Tryggvadóttir Kristín Helga Friðriksdóttir Bjarki Hrafn Ólafsson barnabörn og barnabarnabörn Ástkær faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, TÓMAS GRÉTAR SIGFÚSSON vélstjóri, lést á hjúkrunarheimilinu Ísafold að kvöldi 13. júní. Útförin fer fram frá Fríkirkjunni í Hafnarfirði miðvikudaginn 21. júní klukkan 13. Við þökkum starfsfólki Ísafoldar fyrir hlýlega og góða umönnun. Gunnar Tómasson Elsa Marísdóttir Sigfús Tómasson Oddfríður Jónsdóttir Rita Eigminaite Tómas Tómasson Kristín Harðardóttir Anna Margrét Tómasdóttir Jónas Jónatansson barnabörn og barnabarnabörn Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, RAGNAR HILMAR ÞORSTEINSSON múrarameistari, Jötunsölum 2, Kópavogi, verður jarðsunginn frá Kópavogskirkju miðvikudaginn 21. júní klukkan 15. Blóm og kransar er vinsamlega afþakkað en þeim sem vildu minnast hans er bent á Hjartaheill. Kristín Hrefna Kristjánsdóttir Guðlaug Ragnarsdóttir Birgir Bjarnason Kristján Hjálmar Ragnarsson Kristjana Una Gunnarsdóttir Sigríður Ragnarsdóttir Trausti Gylfason barnabörn og barnabarnabörn Ástkær móðir mín, tengdamóðir, amma og langamma, FJÓLA GUÐMUNDSDÓTTIR frá Hólmavík, lést á hjúkrunarheimilinu Eiri aðfaranótt mánudagsins 12. júní. Útför hennar fer fram frá Grafarvogskirkju fimmtudaginn 22. júní klukkan 15. Örn Leós Stefánsson Þóranna Héðinsdóttir Þórhildur Ýr Arnardóttir Stefán Örn Arnarson Kristrún Hafþórsdóttir Alda Björk Arnardóttir Óli Jóhann Níelsson Guðrún Pálína Jónsdóttir Hafdís Svava Níelsdóttir Gunnar J. Gunnarsson og langömmubörn

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.