Læknablaðið - 01.02.2017, Síða 26
82 LÆKNAblaðið 2017/103
loku að ræða. Hjá 8 sjúklingum var skipt um míturlokuna, í fjórum
tilfellum með lífrænni gerviloku og í hinum fjórum með ólífrænni
gerviloku. Hjá tveimur sjúklingum reyndist unnt að gera við
míturlokuna. Hjáveituaðgerð var gerð samtímis hjá einum sjúk-
lingi og hjáveituaðgerð ásamt viðgerð á þríblöðkuloku hjá öðrum
sjúklingi. Í einu tilfelli var um sýkta þríblöðkuloku að ræða en sá
sjúklingur hafði sögu um misnotkun fíkniefna í æð. Var lokunni
skipt út fyrir lífræna gerviloku (tafla IV). Aðgerðum fjölgaði jafnt
og þétt á rannsóknartímabilinu, eða úr 8 aðgerðum fyrstu 5 árin
í 21 þau síðustu ((gagnlíkindahlutfall, OR – odds ratio; öryggisbil,
CI – confidence interval) OR: 1,12, 95% CI: 1,05-1,21, p=0,002).
Blæðing og blóðhlutagjafir
Blæðing fyrstu 24 klukkustundirnar í brjóstholskera og magn
blóðhluta sem gefnir voru eftir aðgerð (í sömu sjúkrahússlegu) er
sýnt í töflu V. Heildarblæðing var 870 ± 3730 mL, (bil: 230-20865).
Alls fengu 28 af 34 sjúklingum (82%) einhverja blóðhluta, oftast
rauðkornaþykkni, eða að meðaltali 4,0 ± 13,6 einingar (bil: 1-65),
blóðvatn (4,0 ± 22,8 einingar, bil: 0-117) og blóðflögur (2,5 ± 2,2
poka, bil: 0-9).
Fylgikvillar eftir aðgerð
Fylgikvillar eftir aðgerð eru sýndir í töflu VI. Alvarlega fylgikvilla
fengu 61% sjúklinga, en efst á blaði var hjartadrep sem greindist
hjá 35% sjúklinga. Síðan komu enduraðgerð vegna blæðingar
(26%), öndunarbilun (43%) þar sem í helmingi tilfella þurfti bark-
araufun (tracheostomy), fjöllíffærabilun (20%) og bráður nýrnaskaði
sem krafðist blóðskilunar (17%). Einn sjúklingur (3%) þurfti endur-
aðgerð vegna sýkingar í nýju lokunni og var skipt um hana, en
enginn greindist með miðmætisbólgu eða djúpa sýkingu í bringu-
beini. Minniháttar fylgikvillar greindust hjá 64% sjúklinga og
var gáttaflökt algengast (56%). Aðrir minniháttar fylgikvillar eru
sýndir í töflu VI.
Legutími og lifun
Heildarlegutími var að meðaltali 55 ± 52 dagar (miðgildi: 43 dagar,
bil: 7-222), þar af 11 ± 18 (miðgildi 4 dagar, bil: 1-85) dagar á gjör-
gæslu.
Fjórir sjúklingar (11%) létust innan 30 daga frá aðgerð. Einn
þessara sjúklinga lést í aðgerð og var dánarorsök hans samkvæmt
krufningu svæsin sýklasótt með fjöllífærabilun. Annar sjúkling-
ur var kona á sextugsaldri sem lést vegna rifu á afturvegg hjarta,
en rof kom á hjartað eftir míturlokuskipti vegna sýkingar á aft-
ara míturlokublaði. Þriðji sjúklingurinn sem lést var karlmaður,
einnig á sextugsaldri, sem fékk heilaáfall frá sýkingarhrúðri sem
hafði losnað frá ósæðarloku og valdið reki. Fjórði sjúklingurinn var
karlmaður á sjötugsaldri sem lést vegna hjartabilunar og bráðrar
lungnabólgu. Fyrir aðgerð hafði hann mikinn ósæðarlokuleka og
aðeins 25% útfall á vinstri slegli.
Mynd 2 sýnir langtímalifun en heildarlifun eftir aðgerð
(Kaplan-Meier) var 59% eftir 5 ár og 50% 10 árum frá aðgerð.
Umræður
Á rannsóknartímabilinu sem tók til 16 ára greindust samtals 179
tilfelli af hjartaþelsbólgu á Landspítala. Svipuðu nýgengi hefur
verið lýst erlendis þótt í mörgum rannsóknum sé það allt að tvö-
falt hærra.5 Nýgengi hjartaþelsbólgu í mismunandi rannsóknum
ræðst af ýmsum þáttum, meðal annars aldurssamsetningu sjúk-
linganna og algengi meðfæddra hjartagalla. Samkvæmt íslenskum
rannsóknum eru helstu áhættuþættir hjartaþelsbólgu hér á landi
meðfæddur hjartagalli (aðallega tvíblöðku ósæðarloka) og ígrædd
hjartaloka en einnig fíkniefnamisnotkun, hrörnunarbreytingar í
hjartaloku og léleg tannhirða. Gigtsótt ( febris rheumatica) er hins
vegar mjög sjaldgæf ástæða hjartaþelsbólgu á Íslandi líkt og hún
er fyrir lokuskipti almennt.1,17
Tafla IV. Aðgerð, aðgerðarupplýsingar og tegund gerviloku. Fjöldi sjúklinga og
hlutfall (%), en meðaltöl með staðalfráviki og bil fyrir tímalengd frá greiningu,
vélar- og tangartíma. Upplýsingar um lokur, og einn sjúklingur gekkst bæði undir
lokuskipti á ósæðar- og míturloku.
Fjöldi %
Lífsbjargandi aðgerð 12 33
Bráð aðgerð 13 36
Áríðandi aðgerð 11 31
Tími frá greiningu að aðgerð (dagar) 12 ± 80 (0-593)
Aðgerð á ósæðarloku 26 72
Lífræn gerviloka (n=26) 16 62
Ólífræn gerviloka 10 38
Hjáveituaðgerð samtímis 5 19
Önnur lokuaðgerð samtímis 5 19
Vélartími (mínútur) 163 ± 77 (73-382)
Tangartími (mínútur) 119 ± 56 (57-273)
Míturloka 10 28
Lífræn gerviloka (n=10) 4 40
Ólífræn gerviloka 4 40
Viðgerð á loku 2 20
Hjáveituaðgerð samtímis 2 20
Önnur lokuaðgerð samtímis 1 10
Vélartími (mínútur) 153 ± 44 (103-215)
Tangartími (mínútur) 109 ± 38 (62-163)
Þríblöðkuloka 1 3
Lífræn gerviloka (n=1) 1 100
Vélartími (mínútur) 74
Tangartími (mínútur) 51
Tafla V. Blæðing og notkun blóðhluta, meðaltöl með staðalfráviki og bili.
Meðaltal Bil
Heildarblæðing (mL) 870 ± 3730 230-20865
Rauðkornaþykkni (ein) 4,0 ± 13,6 1-65
Plasma (ein) 4,0 ± 22,8 0-9
Blóðflögur (pokar) 2,5 ± 2,2 0-117
R A N N S Ó K N