Fréttablaðið - 17.03.2018, Page 2

Fréttablaðið - 17.03.2018, Page 2
Veður Austan og suðaustan 8-18 m/s, hvassast syðst. Rigning SA-lands, en annars úrkomulítið og víða bjart veður fyrir norðan. Heldur hægari á morgun og rigning með köflum S-til en áfram bjart N-til. sjá síðu 52 Milljarður reis Hinn árlegi dansviðburður, Milljarður rís, fór fram í Hörpu í sjötta sinn í gær. Dansaði þar mikill fjöldi í samhug með konum af erlendum uppruna Sex konur af erlendum uppruna lásu frásagnir þeirra sem komið hafa fram undir formerkjum #MeToo á viðburði gærdagsins. Fréttablaðið/Vilhelm Fjölmiðlar Fréttablaðið kynnir í dag Fréttablaðið plús. Um er að ræða fréttir, viðtöl, umfjallanir, minn- ingargreinar og annað áhugavert og fréttnæmt efni sem eingöngu verður aðgengilegt á stafrænu formi Frétta- blaðsins, það er í PDF-útgáfu blaðs- ins sem finna má á frettabladid.is og í snjallsímaforriti Fréttablaðsins. Á næstu misserum mun ritstjórn blaðsins, í höfuðborginni og á lands- byggðinni, efla Fréttablaðið plús og framleiða fréttir og annað efni inn í alla útgáfudaga blaðsins, sex sinnum í viku, þar sem hægt verður að finna aragrúa efnis sem eingöngu verður aðgengilegt á stafrænu formi. Í Fréttablaðinu plús í dag er fram- hald á viðamikilli umfjöllun um vini og samferðamenn Hauks Hilmars- sonar, sem talið er að hafi fallið í stríðsátökum í Sýrlandi, og innlit á leiksýninguna Rocky Horror Show í Borgarleikhúsinu. – ósk Fréttablaðið plús kynnt í dag minjar „Mjög fá önnur skýli af þessari gerð hafa varðveist og kann skýlið því að hafa varðveislugildi á heimsvísu,“ segir í umsögn skipu- lagsfulltrúa Reykjavíkur vegna fyrir- hugaðrar friðlýsingar á Flugskýli 1 á Reykjavíkurflugvelli. Minjastofnun Íslands hefur til- kynnt Reykjavíkurborg að stofnun- in sé að undirbúa tillögu til mennta- og menningarmálaráðherra um að friðlýsa Flugskýli 1. „Lagt er til að friðlýsingin taki til stálburðar- grindar skýlisins og upprunalegra rennihurða á göflum hússins,“ segir í bréfi þar sem borginni er lögum samkvæmt boðið að gera athuga- semdir við áformin. „Burðargrind skýlisins er upp- runaleg og afar sérstök. Mjög fá önnur skýli af þessari gerð hafa varðveist og kann skýlið því að hafa varðveislugildi á heimsvísu,“ segir Minjastofnun. Flugskýli 1 sé fyrsta flugskýlið sem byggt hafi verið á Reykjavíkurflugvelli. „Skýlið stendur við hlið gamla flugturnsins sem er friðlýst bygging. Saman mynda þau varðveisluheild sem hefur fágætisgildi á landsvísu,“ segir áfram um gildi skýlisins. Það stendur aftan við flugstjórnarmið- stöðina og er skammt frá Hótel Natura. „Það er eitt fjögurra breskra flug- skýla af gerðinni T-2 sem smíðuð voru og sett upp á Reykjavíkurflug- velli fyrir breska herinn af fyrirtæk- inu Teeside Bridge and Engineering Co. Ltd. Í Middlesbrough. Sama fyrirtæki smíðaði og setti upp Ölfus- ár brúna á Selfossi árið 1945,“ segir Minjastofnun. Þá er tekið fram að Flugskýli 1 sé eitt elsta mannvirkið á Reykjavíkur- flugvelli. Sem slíkt tengist það sögu hernámsáranna og flugsögu Íslands. „Flest flugfélög sem starfað hafa hér á landi hafa haft aðstöðu í húsinu á ólíkum tímabilum.“ Málið var á dagskrá umhverfis- og  skipulagsráðs Reykjavíkur í vikunni. Þar var lögð fram umsögn skipulagsfulltrúa borgarinnar. Hún er stutt: „Ekki eru gerðar athuga- semdir við tillögu Minjastofnunar um friðlýsingu Flugskýlis 1.“ Form- leg afstaða borgarinnar liggur hins vegar ekki enn fyrir þar sem málið hefur ekki verið afgreitt. gar@frettabladid.is Friða flugskýlisgrind frá hernámsárunum Skipulagsfulltrúi gerir ekki athugasemdir við áform Minjastofnunar um að frið- lýsa burðargrind og rennihurðir flugskýlis 1 sem Bretar reistu á Reykjavíkurflug- velli á árum síðari heimsstyrjaldarinnar. Stálgrindin jafnvel einstök á heimsvísu. Stálburðarvirki Flugkýlis 1 er jafnvel talið geta verið einstakt á heimsvísu að mati minjastofnunar Íslands. Fréttablaðið/eyþór Viðskipti Torg ehf., hefur tekið yfir rekstur midi.is. Midi.is annast miðasölu á ýmiss konar viðburði, svo sem leiksýningar, tónleika og íþróttaleiki. „Midi.is er eitt öflugasta fyrirtækið á sínu sviði á Íslandi. Það er virkilega spennandi að fá midi. is inn í Torg og samtvinna félag- ið  og þá  starfsemi sem fyrir er,“ segir Elmar Hallgríms Hallgríms- son, framkvæmdastjóri sölu- og markaðssviðs Torgs ehf., og fram- kvæmdastjóri midi.is. Elmar segir stefnt að því að stórefla starfsemi midi.is með nýju og auknu vöru- framboði. „Við ætlum okkur að sækja fram og vera leiðandi í miða- sölu á Íslandi ásamt því að bjóða upp á nýjungar í sölu yfir netið,“ segir Elmar. Auk midi.is rekur Torg ehf. Fréttablaðið, frettabladid.is, Markaðinn og Glamour. – ósk Torg tekur yfir rekstur Midi.is Skýlið stendur við hlið gamla flug- turnsins sem er friðlýst bygging. Saman mynda þau varðveisluheild sem hefur fágætisgildi á landsvísu. Minjastofnun Íslands lögreglumál Starfsmaður barna- verndar, grunaður um kynferðis- brot gegn að minnsta kosti átta börnum yfir tíu ára tímabil, verður áfram í gæsluvarðhaldi um sinn. Héraðsdómur Reykjaness féllst á áframhaldandi fjögurra vikna varð- hald í gær. Sævar Þór Jónsson, réttargæslu- maður þriggja þolenda í málinu, segir líklegt að Reykjavíkurborg sé skaðabótaskyld vegna mistaka sem gerð voru þegar systir brotaþola tilkynnti um brot starfsmanns- ins til velferðarsviðs Reykjavíkur árið 2008, án þess að nokkuð væri aðhafst. Meint brot gegn  einu barnanna stóðu yfir til 2010. Vinnubrögð lögreglu voru líka gagnrýnd, því rannsókn hófst ekki fyrr en mánuðum eftir að kæra barst. Maðurinn var handtekinn í janúar. Hann hefur setið í gæslu- varðhaldi síðan. – þea Verður áfram í gæsluvarðhaldi 1 7 . m a r s 2 0 1 8 l a u g a r D a g u r2 F r é t t i r ∙ F r é t t a B l a ð i ð 1 7 -0 3 -2 0 1 8 0 4 :2 5 F B 1 2 0 s _ P 1 1 9 K .p 1 .p d f F B 1 2 0 s _ P 1 0 6 K .p 1 .p d f F B 1 2 0 s _ P 0 0 2 K .p 1 .p d f F B 1 2 0 s _ P 0 1 5 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 F 3 8 -7 C 8 C 1 F 3 8 -7 B 5 0 1 F 3 8 -7 A 1 4 1 F 3 8 -7 8 D 8 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 1 B F B 1 2 0 s _ 1 6 _ 3 _ 2 0 1 8 C M Y K
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.