Fréttablaðið - 17.03.2018, Qupperneq 40
Ein manneskja
breiddi dúk yfir
vélmennið, sló það niður
og hellti grillsósu á alla
skynjarana.“
Oddur Freyr
Þorsteinsson
oddurfreyr@frettabladid.is
Í Kísildal í San Francisco í Bandaríkjunum, og reyndar víðar, eru öryggisvélmenni og sjálfkeyrandi
bílar ekki lengur bara fram
tíðardraumur, heldur blákaldur
raunveruleiki. Öryggisvélmenni
frá fyrirtækinu Knightscope fara
eftirlitsferðir um almenn rými og
sjálfkeyrandi bílar frá fyrirtækinu
GM Cruise eru á ferð um göturnar.
En það eru ekki allir sáttir við fram
tíðina og viðbrögð fólks hafa verið
misjöfn.
Fyrirtækið Knightscope var
stofnað árið 2013 og framleiðir
sjálfstýrð öryggisvélmenni sem
heita K5. Vélmennin eru um 180
kg að þyngd og 150 sentimetrar á
hæð og sinna t.d. eftirlitsferðum á
bílastæðum, göngum skrifstofu
bygginga, íþróttaleikvöngum og í
verslunarmiðstöðvum. Vélmennin
eru búin öflugum skynjurum og
myndavélum sem hjálpa þeim að
greina milli meinlausra vegfarenda
og grunsamlegrar hegðunar.
Stacy Stephens, einn af stofn
endum fyrirtækisins, segir að vél
mennin séu viðbót við hefðbundna
löggæslu. Þau komi aldrei í stað lög
reglumanna og öryggisvarða, heldur
fylli þau í eyðurnar, því laganna
verðir geti ekki verið alls staðar í
einu. Vélmennin hafa líkt reynst vel
við að sinna löggæslu á hættulegum
svæðum sem lögreglumenn forðast
að fara inn á.
En það eru ekki allir jafn ánægðir
með þessa nýjung.
Í desember þurfti dýraathvarf í
San Francisco að fjarlæga Knight
scope vélmenni sitt, sem sinnti
eftirliti í kringum athvarfið, vegna
kvartana frá bæði íbúum svæðisins
og heimilislausum, sem sögðu að
vélmennið áreitti þau. Flestir létu
duga að kvarta yfir vélmenninu,
en ein manneskja breiddi dúk yfir
vélmennið, sló það niður og hellti
grillsósu á alla skynjarana. Í apríl á
síðasta ári var líka drukkinn maður
handtekinn fyrir að ráðast á og fella
Knightscopevélmenni í bænum
Mountain View í Kaliforníu, þar sem
Google hefur höfuðstöðvar sínar.
Sama sagan með sjálfkeyr-
andi bíla
Sjálfkeyrandi bílar lofa góðu, því
mannleg mistök valda flestum
umferðarslysum. En samkvæmt
opinberum skýrslum hefur
mannleg árásargirni komið við sögu
í tveimur af þeim sex árekstrum
sem hafa orðið á árinu þar sem sjálf
keyrandi bílar koma við sögu.
Þann 10. janúar hljóp vegfarandi
í San Francisco yfir götuna til að
bjóða sjálfkeyrandi bíl frá GM
Cruise byrginn. Bílinn hafði stansað
til að hleypa fólki yfir götuna. Sam
kvæmt skýrslu frá GM Cruise æpti
viðkomandi á bílinn og „sló hann
með öllum líkamanum“ vinstra
megin að aftan. Enginn slasaðist, en
afturljós bílsins skemmdist.
Nokkrum dögum síðar, þann
28. janúar, réðst svo leigubílstjóri á
bíl frá sama fyrirtæki í sama hluta
borgarinnar. Bílstjórinn steig út úr
bíl sínum til að nálgast sjálfkeyrandi
bíl og sló í rúðuna við framsætið far
þegamegin og rispaði hana.
Aðrir hafa reynt að stemma stigu
við þessari þróun með löggjöf til að
takmarka fjölda sjálfvirkra sendla
og skattleggja vélmenni sem taka
störf af fólki. Einn þeirra sagði:
„Hvað er í gangi ef við kunnum ekki
að meta það að geta farið út í búð
án þess að lenda í árekstri við vél
menni?“
Vélmennum er tekið misvel
Í borginni San Francisco og víðar eru öryggisvélmenni og sjálfkeyrandi bílar farnir að sjást á götum
úti. Þessi fyrirbæri hafa þó fengið blendnar móttökur og sumir hafa einfaldlega ráðist á þau.
Vélmennin frá Knightscope hafa fengið heldur kaldar viðtökur. MYND/NORDICPHOTOS/GETTY
Bílar frá GM Cruise hafa orðið fyrir árásum. MYND/DLLU/WIKIPEDIA
Laugardaginn 24. mars mun Fréttablaðið gefa út aukablaðið
ALLT FYRIR
HÓTEL & VEITINGAHÚS
Allt ritstjórnarefni blaðsins er sérstaklega miðað á rekstraraðila þeirra þúsunda
fyrirtækja sem starfa í gisti og veitingaþjónustu á Íslandi.
Blaðið er um leið frábær auglýsingamiðill fyrir öll fyrirtæki sem bjóða upp á
rekstrarvörur og þjónustu fyrir hótel, gisti og veitingahús.
Nánari upplýsingar um blaðið veitir
Ólafur H. Hákonarson markaðsfulltrúi Fréttablaðsins.
Sími 512 5433 / olafurh@frettabladid.is
FERMINGARGJAFIR
Fimmtudaginn 15. mars gefur Fréttablaðið út
bráðsniðugt aukablað sem innheldur ótal
hugmyndir að fjölbreyttum fermingargjöfum.
Allir sem hafa fermst vita að dagurinn og ekki síst
gjarnar lifa í minningunni um aldur og ævi.
Tryggðu þér gott auglýsingapláss
í langmest lesna dagblaði landsins.
Upplýsingar hjá auglýsingadeild Fréttablaðsins í síma 512 5402
eða sendu okkur póst á netfangið serblod@frettabladid.is
6 KYNNINGARBLAÐ FÓLK 1 7 . M A R S 2 0 1 8 L AU G A R DAG U R
1
7
-0
3
-2
0
1
8
0
4
:2
5
F
B
1
2
0
s
_
P
0
8
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
0
s
_
P
0
8
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
0
s
_
P
0
4
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
0
s
_
P
0
4
1
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
F
3
9
-0
6
C
C
1
F
3
9
-0
5
9
0
1
F
3
9
-0
4
5
4
1
F
3
9
-0
3
1
8
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
7
B
F
B
1
2
0
s
_
1
6
_
3
_
2
0
1
8
C
M
Y
K