Fréttablaðið - 17.03.2018, Síða 105
KviKmyndir
Andið eðlilega
HHHHH
Leikstjóri: Ísold Uggadóttir
Aðalhlutverk: Kristín Þóra Haralds-
dóttir, Babetida Sadjo, Patrik Nökkvi
Pétursson
Samkvæmt þeim fræðum sem ég hef helst stúderað er smásagan vandmeðfarnara og flóknara form en skáldsagan enda
kúnst að segja mikið með fáum
orðum á enn færri blaðsíðum.
Sömu lögmál hljóta að gilda um
stuttmyndir og kvikmyndir í fullri
lengd. Ísold Uggadóttir hefur með
nokkrum stuttmyndum á síðasta
rúma áratug fest sig í fremstu röð
leikstjóra sem leggja til atlögu við
þetta krefjandi form.
Ísold er búin að slípa stíl sinn
vel með stuttmyndunum og segir
hér mikla sögu á 95 mínútum með
engum óþarfa útúrdúrum eða
málalengingum. Það sem er ósagt
og liggur í undirtextanum segir allt
sem segja þarf.
Andið eðlilega er risastór mynd,
alíslensk, en samt svo alþjóðleg, og
tekur á viðkvæmum hitamálum;
fátækt og ömurlegum aðstæðum
hælisleitenda og fólks á flótta.
Handrit Ísoldar segir mannlega og
nístandi fallega samtímasögu af
slíku ofurnæmi og alúð að mann
setur beinlínis hljóðan.
Ung einstæð móðir er að bugast
á baslinu. Á endalausum hrak
hólum með syni sínum skrimtir
hún við illan leik frá degi til dags.
Tilviljun ræður því að leiðir hennar
og flóttakonu frá Afríku skarast.
Kynni ungu móðurinnar við aðra
móður sem er aðskilin frá barni
sínu og hefur lifað í stöðugum lífs
háska og á flótta hefur varanleg
áhrif á báðar konurnar.
Ólíkt því sem stundað er í lág
kúrulegri umræðunni á Íslandi
er þessum konum, mæðrum,
ekki stillt upp sem andstæðu
pari. Lífshamingja annarrar veltur
ekki á því að hinni sé útskúfað.
Andið eðlilega er mynd sem reynir
virkilega á áhorfandann, gerir
kröfur til hans, og ef hann gefur
sig frásagnarlist Ísoldar á vald upp
sker hann ríkulega. Yfirgefur kvik
myndahúsið vonandi aðeins betri
manneskja en hann var þegar hann
settist í myrkrið.
Mest mæðir á Kristínu Þóru
Haraldsdóttur í hlutverki ungu
móðurinnar og hún er hreint út
sagt meiriháttar. Hún nær taki
á manni strax í upphafssenunni
og sleppir aldrei. Babetida Sadjo
gefur henni ekkert eftir og Patrik
Nökkvi Pétursson er dásamlegur í
hlutverki sonarins.
Ég minnist þess ekki áður að
hafa fellt tár á íslenskri kvikmynd
og þau meira að segja allnokkur.
Brjóstvitið segir mér því að Andið
eðlilega er besta kvikmynd sem ég
hef séð. Tímamótaverk.
Þórarinn Þórarinsson
Nístandi fagurt
tímamótaverk
www.heimavellir.is
Traustur leigumarkaður sem byggir á langtímasambandi er mikilvægur partur af heilbrigðum og
stöðugum húsnæðismarkaði. Markmið okkar er að taka þátt í að byggja upp leigumarkað á Íslandi
eins og þekkist á Norðurlöndunum og víðar í Evrópu. Um tvö þúsund fjölskyldur búa nú þegar í
öruggri langtímaleigu hjá okkur á höfuðborgarsvæðinu og víða um land.
LANGTÍMASAMBAND Á LEIGUMARKAÐI
niðurstAðA: Ísold segir mikla og
áhrifaríka sögu á töfrandi hátt og lætur
engan ósnortinn. Andið eðlilega er
krefjandi, nístandi fögur mynd sem á
erindi við alla. Út um allan heim. Lengri
útgáfu af dómnum má finna á www.
frettabladid.is undir Lífið.
GEFÐU
HÆNU
gjofsemgefur.is
9O7 2OO3
1
7
-0
3
-2
0
1
8
0
4
:2
5
F
B
1
2
0
s
_
P
1
2
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
0
s
_
P
1
0
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
0
s
_
P
0
0
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
0
s
_
P
0
1
6
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
F
3
8
-7
7
9
C
1
F
3
8
-7
6
6
0
1
F
3
8
-7
5
2
4
1
F
3
8
-7
3
E
8
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
1
A
F
B
1
2
0
s
_
1
6
_
3
_
2
0
1
8
C
M
Y
K