Ægir - 01.07.2017, Side 10
10
Hitamyndavélarnar frá FLIR eru vel þekktar í íslenskum sjávarútvegi og eru frábær siglinga- og öryggistæki
því þær sjá jafn vel í myrkri sem birtu. Þess-
ar vélar eru um borð í fjölda skipa og nýtast
afar vel til að tryggja skipstjórnendum yfir-
sýn yfir allt sem fram fer í kring um skipið
og eru mikilvægt öryggistæki, t.d. ef maður
fellur fyrir borð,“ segir Jón Tryggvi Helgason,
framkvæmdastjóri Ísmar.
Um að ræða fastar vélar ofan á brú
skipsins en þeim er hægt að beina í allar
áttir og fylgjast með á skjá í brúnni en einn-
ig eru í boði handtæki sem nýtast t.d. í vél-
arrúmi til að sjá fyrir bilanir sem kunna að
vera í uppsiglingu, t.d. í rafbúnaði, mótorum
og gírum. Við slíka bilanaleit er hægt að
tengja saman þráðlaust FLIR hitamyndavél
og t.d. ampertöng og fá
þannig aflestur inn á
hitamynd á skjá.
Slík tæki geta verið
ótrúlega fljót að
borga sig.
Margvíslegur búnaður
Ísmar býður margvíslegan annan búnað frá
þekktum framleiðendum, m.a. mælitæki
frá Extech og leitarljós frá Streamlight.
Búnaður frá Ísmar hefur komið við sögu í
öllum helstu hafnar- og dýpkunarfram-
kvæmdum hér á landi undanfarin ár og þar
er fyrirtækið með umboð fyrir mjög sterka
framleiðendur eins og Trimble, Prolec,
Teledyne Reson, Teledyne Odom, QPS og
fleiri.
„Ísmar var stofnað árið 1982 og verður
því 35 ára á árinu. Fyrirtækið sérhæfir sig í
tækjabúnaði og hugbúnaði til hvers konar
mælinga frá þekktustu framleiðendum á
því sviði auk hitamyndavélanna frá FLIR. Hjá
okkur starfar harðsnúinn hópur starfs-
manna með langa reynslu og mikla þekk-
ingu á þeim búnaði sem við seljum, segir Jón
Tryggvi Helgason ennfremur.
Hita- og loftræsilausnir
„Með kaupum okkar á gamalgrónu fyrirtæki
árið 2013 settum við upp sérstakt hús-
tæknisvið en þar bjóðum við m.a. upp á
fullkomnar lausnir á loftræsikerfum fyrir
hvers konar húsbyggingar en einnig skip.
Þar bjóðum við stýribúnað, blásara, kælir-
afta, hraðabreyta, ýmsa skynjara o.fl. Við er-
um með umboð fyrir viðurkennda framleið-
endur á þessu sviði eins og Honeywell,
FlaktWoods, Ruck og Invertek. Einnig loft-
gæðamæla, rafmagnsmæla og önnur
mælitæki frá Extech,“ segir Jón Tryggvi.
Mjög öflug þjónustudeild
„Allir sem kaupa sérhæfðan tæknibúnað
vita að það geta komið upp bilanir sem þarf
að bregðast snöggt við eða vantar upplýs-
ingar og aðstoð varðandi nýjan hugbúnað
sem sífellt er verið að uppfæra. Við hjá Ísm-
ar leggjum mikla áherslu á þjónustuþáttinn
og að geta brugðist hratt og örugglega við.
Starfsmenn okkar eru allir sérfræðingar á
tæknisviðinu og hér er rekið þjónustuverk-
stæði af fullkomnustu gerð. Öðruvísi viljum
við ekki standa að málum og ég veit af
langri reynslu að þetta kunna viðskiptavinir
okkar vel að meta,“ segir Jón Tryggvi Helga-
son, framkvæmdastjóri Ísmar.
ismar.is
Nýjasta tækni frá FLIR
FLIR M-500 hitamyndavélin frá Ísmar er nýjasta vélin í
M-seríunni frá FLIR. Þetta er háupplausna vél með
kældum skynjara. Er einnig með HD videovél og kraft-
miklu LED ljósi. Er í sterku upphituðu húsi með 360°
snúningi og +/-90° tilt. Fjarstýringin er mjög notenda-
væn. M-500 er með gyro stabiliseringu er tengjanleg
við ratsjá og er með „videó tracking“.
Jón Tryggvi Helgason, framkvæmdastjóri t.h. og Kjartan Þráinsson söluráðgjafi hjá Ísmar.