Ægir - 01.07.2017, Qupperneq 84
84
Nýlega flutti véla- og viðgerðaþjón-ustan Bætir starfsemi sína frá Smiðshöfða í eigið húsnæði á Bílds-
höfða 14. Húsnæðið hefur verið sérsniðið að
þörfum fyrirtækisins og meðal annars skilið
á milli verslunar og lagerhalds á efri hæð og
viðgerðarverkstæðis á neðri hæð. Þannig
hafa verið skapaðar aðstæður til að koma
upp skilvirkri flæðilínu í viðgerðarþjónust-
unni sem mun hraða og bæta þjónustu við
viðskiptavini fyrirtækisins. Gengið er inn á
skrifstofu og lager Bætis frá Axarhöfða, en
inn á viðgerðarverkstæðið frá Bíldshöfða.
Sérstaða í 30 ár
Síðast liðin 30 ár hefur Bætir haft sér sér-
stöðu í viðgerðum og þjónustu við amerísk-
ar dieselvélar eins og Caterpillar, Cummins,
GM, Detroit Diesel, Perkins, John Deere og
Detroit Diesel auk þess að taka upp gíra,
túrbínur, dælur og tengda hluti. Fyrirtækið
rekur fullkomið viðgerða- og þjónustuverk-
stæði fyrir dieselvélar með flestum þeim
sérverkfærum sem þörf er á til upptektar á
aðalvélum, ljósavélum og þungavinnuvél-
um.
Varahlutaverslun Bætis þjónar stórvirk-
um vinnuvélum bæði í sjávarútvegi og jarð-
vinnu og flytur meðal annars inn eftirmark-
aðs varahluti fyrir Caterpillar frá bandaríska
framleiðandanum IPD. Þá er Bætir með
varahluti fyrir Cummins, Komatsu og De-
troit Diesel frá Interstate-Mcbee auk mæla
og viðvörunarkerfa frá Isspro, gangráða frá
Governors America Corp og síur frá Baldwin
og Filtrec.
Samstarf við málmsmiðjuna Tækni
Viðgerðaþjónusta Bætis einskorðast ekki
við vel búið verkstæði fyrirtækisins á Bílds-
höfða 14. Ef á þarf að halda fara fagmenn
fyrirtækisins á vettvang, hvort sem það er
um borð í skip eða þangað sem viðkomandi
tæki er staðsett hverju sinni og gera við það
á staðnum.
Bætir er í eigu Friðriks Sigurðssonar vél-
fræðings sem einnig rekur málmsmiðjuna
Tækni ehf.
Fyrirtækin eru rekin sem sér einingar en
vinna töluvert saman að stærri verkefnum.
Mikil samlegð felst í nánu samstarfi fyrir-
tækjanna sem fyrir vikið geta boðið fiski-
skipa- og bátaútgerðum víðtæka þjónustu,
hvort sem það er smíðavinna sem tengist
fiskvinnslulínum eða öðru um borð eða við-
haldi á aðal- og ljósavélum.
baetir.is
Sími 567-2050 - Smiðshöfði 7 - 110 Reykjavík
Viðgerða- og varahlutaþjónusta í yfir 30 ár
Bætir ehf hefur í rúm 30 ár boðið uppá alhliða viðgerða- og varahlutaþjónustu fyrir breiðann hóp viðskiptavina. Við
þjónustum og útvegum varahluti í flestar tegundir dísilvéla og höfum mikla reynslu í ZF og Twin Disc gírum. Bætir ehf hefur
um árabil boðið uppá há gæða varahluti, frá framleiðendum á borð við IPD og Interstate Mcbee, sem henta m.a. í vélar frá:
Caterpillar® Cummins® Detroit Diesel®
Baldwin® hefur sérhæft sig í
smur-, loft- og hráolíusíum
Við bjóðum upp á Baldwin® síur í flestar gerðir þungavinnu-
og sjóvéla á hagstæðum verðum.
Verkstæði og viðgerðarþjónusta
Viðgerða- og þjónustuverkstæði Bætis er búið öllum sér verk-
færum sem þörf er á til upptekta á flestum gerðum véla og gíra.
Nöfn vélaframleiðenda eru hér aðeins til upplýsinga og eru vörumerkin eign hvers framleiðanda. Cat® og Caterpillar® eru skrásett vörumerki í eigu Caterpillar Inc. Cummins® er skrásett vörumerki í eigu Cummins Engine Company. Detroit Diesel® er skráett vörumerki í eigu Detroit Diesel Corporation.
Túrbínur
Bætir ehf. býður upp á
viðgerðarþjónustu fyrir
flestar gerðir túrbína.
» Loftsíur
» Smurolíusíur
» Eldsneytissíur
» Kælivatnssíur
» Glussasíur
Við verðum á
Sjávarútvegssýningunni
Básinn er staðsettur:
(B.22) 34-48
Bætir býður alhliða
vélaþjónustu
við sjávarútveginn
Friðrik Sigurðsson eigandi Bætis og Tækni að störfum á viðgerðar- og þjónustuverkstæði Bætis.