Ægir - 01.07.2017, Síða 92
92
Fyrir fjórum árum sameinuðust fyrir-tækin Det Norske Veritas (DNV) og Germanischer Lloyd (GL) í eitt, DNV GL,
heimsleiðtoga í skipaflokkun. Sameinaðar
rætur DNV GL ná aftur til 1864 þegar Det
Norske Veritas (DNV) var stofnað sem fé-
lagasamtök þegar norsk tryggingafélög
sameinuðust um reglur og ferla sem notuð
voru til að meta áhættu skipa. Þremur árum
síðar, í Þýskalandi, kom 600 manna hópur
skipaeigenda, skipasmiða og tryggingaaðila
saman í kauphöllinni í Hamborg. Það var
stofnsamkoma Germanischer Lloyd (GL),
samtaka sem voru ekki rekin í hagnaðar-
skyni og áttu höfuðstövar í Hamborg.
Starfsstöðvar í hverju landi
„Þrátt fyrir að við séum alþjóðlegt fyrirtæki
þá stærum við okkur af því að starfa stað-
bundið og hafa starfstöðvar á hverjum
stað,“ segir Andrass Joensen, en hann er yfir
starfstöð NDV GL Maritime í Norður-At-
latnshafi. Andrass hóf starfsferil sinn sem
sjómaður þegar hann var sextán ára gamall
en hann hefur unnið fyrir DNV, síðar DNV
GL, í 27 ár. Þar hefur hann unnið í ólíkum
löndum allt frá Skandinavíu og Póllandi til
Suður-Kóreu. Hann hefur nú snúið aftur til
Norður-Atlantshafsins þar sem hann mun
bera ábyrgð á Íslandi í samstarfi við íslenska
starfshópinn: „Sem Færeyingur ná tengsl
mín við Ísland og Íslendinga langt aftur og
ég er mjög ánægður með að starfa hér.“
„DNV GL er alþjóðlegur leiðtogi í skips-
flokkun á hafi út en sér einnig um vottanir
og úttektir á gæðakerfum. Við vinnum jafn-
framt fyrir fiskeldisiðnaðinn og í tengslum
við matvælaöryggi. Þrátt fyrir að vera yfir
150 ára erum við í dag nútímalegt fyrirtæki
sem þróar reglur og reglugerðir varðandi
það hvernig skuli byggja gæðaskip á örugg-
an hátt og hvernig eigi að uppfylla alþjóð-
lega staðla,“ segir Andrass Joensen.
Á Íslandi í yfir 35 ár
„Það er óhætt að segja að við séum samofin
íslenska sjávarútveginum því við höfum
starfrækt skrifstofu hér í yfir 35 ár,“ segir
Andrass en skrifstofa DNV GL á Íslandi er
staðsett í Fjarðargötu í Hafnarfirði. „Það er
mikilvægt að sinna viðskiptum á hverjum
stað, þrátt fyrir að alþjóðlegi hluti fyrirtæk-
isins geri okkur kleift að tengjast hvaða stað
í heiminum sem viðskiptin leiða þig.“ And-
rass bendir jafnframt á að íslensk skip séu
að venju byggð erlendis í löndum á borð við
Spán, Tyrkland, Noreg, Kína og Pólland.
„Það besta við alþjóðleg fyrirtæki er að þau
hafa fulltrúa um allan heim. Hjá okkur
starfa eftirlitsmenn og verkfræðingar en við
getum einnig, með íslenska eftirlitsmann-
inum okkar, aðstoðað viðskiptavini okkar
sem starfa í öðrum löndum.
DNV GL tekur þátt á öllum stigum í ferli
skipa, frá smíði til áframhaldandi eftirlits.
„Bankar, tryggingafélög og íslenska skipa-
skráin eru meðal þeirra sem reiða sig á
vinnuna okkar, til að tryggja að skip séu í
góðu ástandi og almennilega byggð. Við
komum inn á byggingastigi og samþykkjum
teikningar og skjöl sem þarf í öllum flóknari
byggingaferlum á borð við skipasmíði. Við
fylgjumst með byggingunni í skipsmíða-
stöðinni og eftir að skipin eru afhent kom-
um við um borð árlega til að sannreyna að
öllu sé vel við haldið.“
dnvgl.com
DNV GL teymið á Íslandi er með skrifstofu að Fjarðargötu 13-15 í Hafnarfirði. Frá vinstri Andrass Joensen, Hafsteinn Gunnar Jónsson,
Ólöf Ólafsdóttir og Sighvatur Friðriksson.
Alþjóðlegt fyrirtæki
með aðsetur á Íslandi