Ægir - 01.07.2017, Blaðsíða 178
178
náð sjö veiðiferðum og aflinn í ágúst var um
700 tonn óslægt. Þetta hefur því gengið
prýðilega hjá okkur og ekkert óvænt komið
upp,“ segir Sigtryggur.
Kaldbakur EA 1 er 63 metra langur, 13,5
metra breiður og skráður 2081 brúttótonn.
Skipið er hannað af Bárði Hafsteinssyni,
skipaverkfræðingi hjá Skipatækni og hefur
það 14 hnúta siglingarhraða að hámarki og
er með 40 tonna togafl. Skipið er búið 1620
kW aðalvél frá Yanmar og er lestin 995
rúmmetrar. Hún rúmar 750 460 lítra kör. Í
lestinni er tækninýjung sem er svokallaður
hlaupaköttur, lyftarabúnaður sem er not-
aður til að færa karastæður til í lestinni. Fiski
er raðað í kerin á vinnsluþilfari, sem er nýj-
ung í ferskfiskskipum miðað við það sem
hefðbundið hefur verið í ferskfiskskipum til
þessa.
Ný öld
Sigtryggur segir mikla breytingu að halda til
veiða á þessu nýja skipi, samanborið við
gamla Kaldbak sem var yfir 40 ára gamalt
skip.
„Við erum einfaldlega komnir með þessu
inn á nýja öld, erum að tileinka okkur nýja
tækni og erum alveg í skýjunum með þetta,
strákarnir hér um borð. Skipið er mjög gott í
sjó, reyndar hefur tíðarfarið verið mjög gott
að undanförnu en mér finnst mikill munur
að vinna með skipið á veiðum, auðvelt að
dæla á milli tanka og halda því mjög stöð-
ugu. Þetta eru viðbrigði.
Togaflið er 40 tonn og það nýtist mjög
vel með þessu skrokklagi. Skipið skríður
miklu betur í gegnum öldurnar en gamla
skipið gerði og þar af leiðandi heldur það
hraðanum betur. Línan sem sett var í skipið
er mjög flott, þó hún sé til bráðabirgða. Síð-
an er ástæða til að nefna lestina og sem
mér finnst byltingarkennd. Það er mikill
munur fyrir áhöfnina að losna við þessi störf
í lestinni og fylla kerin á millidekkinu. Fram-
farirnar eru miklar, hvert sem litið er,“ segir
Sigtryggur.
Skipstjórar Kaldbaks EA 1 eru Angantýr Arnar Árnason, (tv) og Sigtryggur Gíslason.
Í lestinni er athyglisverð nýjung, nokkurs konar hlaupaköttur sem notaður er til að
stafla kerum í lestina.