Morgunblaðið - 15.03.2018, Síða 2
2 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 15. MARS 2018
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fulltrúar ritstjóra Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson ritstjorn@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson menning@mbl.is
Viðskipti Sigurður Nordal vidskipti@mbl.is Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Jón Pétur Jónsson netfrett@mbl.is Smartland Marta María Jónasdóttir smartland@mbl.is Umræðan | Minningar mbl.is/senda grein Prentun Landsprent ehf.
Stuðmenn voru heiðraðir á Íslensku tónlistar-
verðlaununum í Hörpu í gærkvöldi og voru þar
sæmdir heiðursverðlaunum Samtóns.
Þegar hljómsveitarmeðlimir veittu verðlaun-
unum viðtöku tileinkaði Jakob Frímann Magnús-
son Tómasi M. Tómassyni, bassaleikara hljóm-
sveitarinnar, þau. Tómas féll frá í janúar síðast-
liðnum. Stuðmenn voru stofnaðir árið 1970 í
Menntaskólanum við Hamrahlíð.
Morgunblaðið/Eggert
Stuðmenn hlutu heiðursverðlaunin
Arnar Þór Ingólfsson
athi@mbl.is
Grímsnes- og Grafningshreppur er
eina sveitarfélag landsins sem hækkar
fasteignagjöld þeirra fasteignaeig-
enda í sveitarfélaginu sem sækja um
leyfi hjá sýslumanni til að bjóða upp á
heimagistingu. Samkvæmt lögum má
leigja út eigið íbúðarhúsnæði í skamm-
tímaleigu í allt að 90 daga sé sérstaks
leyfis til þess aflað.
Sveitarfélagið lítur svo á að umrætt
húsnæði sé atvinnuhúsnæði þessa til-
teknu 90 daga og leggur á fasteigna-
skatta í samræmi við það. Þannig túlk-
ar sveitarfélagið landslög á annan hátt
en öll önnur sveitarfélög landsins.
Yfirfasteignamatsnefnd úrskurðaði
sveitarfélaginu í óhag í þessum efnum
í desember síðastliðnum og hefur
sveitarfélagið áfrýjað ákvörðuninni til
héraðsdóms.
Sumarbústaðaeigendur í sveitarfé-
laginu sem Morgunblaðið hefur rætt
við segjast ósáttir, en dæmi eru um að
tekjurnar af skammtímaútleigu sum-
arbústaðanna standi ekki undir hækk-
un fasteignagjaldanna. Fasteigna-
skattur fyrir atvinnuhúsnæði er
lagður á alla 90 dagana, þrátt fyrir að
húsnæðið sé einungis leigt út hluta
þess tíma.
„Sveitarfélög fara oft bara sínu
fram og eru ekkert að fara að lands-
lögum, þrátt fyrir að það liggi fyrir úr-
skurðir,“ segir Sveinn Guðmundsson,
hæstaréttarlögmaður og formaður
Landssamtaka sumarhúseigenda.
Hann segir óskiljanlegt hvernig
Grímsnes- og Grafningshreppur túlki
lögin.
„Ef þú býrð í Reykjavík og vilt leigja
út íbúðina þína á AirBnB, áttu þá að
borga hærri fasteignagjöld? Nei. Af
hverju ættu þeir sem eiga fasteign í
þessu sveitarfélagi þá að gera það?
Þetta er ekki rekstur í þeim skilningi,
þó að þú nýtir þér fasteign þína í út-
leigu með þessum hætti,“ segir Sveinn.
Segir löggjafann vera í basli
Afstaða sveitarfélagsins byggist á
því að lög um tekjustofna sveitarfélaga
stangist á við þá lagabreytingu sem
leyfði einstaklingum að bjóða upp á
heimagistingu í íbúðarhúsnæði án
rekstrarleyfis í allt að 90 daga.
Gunnar Þorgeirsson, oddviti
hreppsins, segir í samtali við Morgun-
blaðið að það hefði þurft að breyta
tekjustofnalögum sveitarfélaganna til
þess að þau heimili skammtímaleigu
íbúðarhúsnæðis.
„Við þurfum bara að fá úr þessu
skorið fyrir dómstólum. Í mínum
skilningi held ég að löggjafinn sé í hálf-
gerðum vandræðum með þetta ágæta
90 daga frumvarp,“ segir Gunnar. Á
meðan ekki sé búið að „skýra leikregl-
urnar og breyta tekjustofnalögunum“
muni sveitarfélagið leggja fasteigna-
gjöld á með þessum hætti.
„Í tekjustofnalögum kemur skýrt
fram að það skuli leggja á á grundvelli
nýtingar húss, hvort sem þú ert með
eitthvert „númer“ í 90 daga eða ekki,“
og vísar þar til skráningarnúmera sem
fasteignaeigendur sem standa í
skammtímaleigu fá.
Gunnar segir „fullt af sveitarfélög-
um“ hvetja hreppinn til að halda mál-
inu til streitu, til þess að fá þetta á
hreint. „Ef menn ætla að skrifa lög
um að það megi leigja út 90 daga og
þá skuli það undanþegið fasteigna-
gjöldum sem atvinnuhúsnæði, þá á
náttúrlega að breyta tekjustofnalög-
unum líka og það var ekki gert. Þar
stendur hnífurinn í kúnni,“ segir
Gunnar.
Mikið af sumarhúsum er í sveitar-
félaginu og töluvert um að fólk standi
í útleigu án þess að hafa tilskilin leyfi.
Að sögn Gunnars er fylgst vel með því
og er starfsmaður í vinnu hjá hreppn-
um við að fylgjast með um 30 síðum á
netinu þar sem bústaðir eru til leigu.
Atvinnuhúsnæðisgjöld eru lögð á þá
sem reynast standa í útleigu án leyfa.
Leggja aukagjöld á 90 dagana
Grímsnes- og Grafningshreppur hækkar fasteignagjöld þeirra sem hafa leyfi til níutíu daga útleigu
Oddviti hreppsins segir lög stangast á Prófmál fram undan vegna úrskurðar yfirfasteignamatsnefndar
Gömul og verðmæt íslensk frímerki
og bréfaumslög verða boðin upp á 50
ára afmælisuppboði sænska frí-
merkjauppboðshússins Postiljonen í
Malmö sem hefst í dag og stendur í
þrjá daga.
Að sögn Steinars Friðþórssonar
hjá Postiljonen er stærstur hluti
þess íslenska frímerkjaefnis sem að
þessu sinni er í boði úr safni erlends
stórsafnara sem hefur verið iðinn
safnari íslenskra frímerkja í hátt í
hálfa öld. Þar sem safnarinn kýs að
halda nafni sínu leyndu, líkt og ekki
er óalgengt þegar slík söfn eru seld,
hefur hann kosið að kalla safn sitt
HÖFN, með vísan í Höfn í Horna-
firði sem hann að eigin sögn hreifst
mjög af eftir komu sína þangað fyrir
allmörgum árum.
Samanlögð byrjunarboð íslensks
frímerkjaefnis á uppboðinu að þessu
sinni eru um 15 milljónir íslenskra
króna að meðtöldum umboðslaunum
seljanda. Steinar segir að öruggt sé
hins vegar að samanlagt söluverð
komi til með að verða umtalsvert
hærra en sem því nemur þar sem
margt sjaldgæfra og eftirsóttra ís-
lenskra hluta er með á uppboðinu að
þessu sinni.
Steinar segir að á meðal áhuga-
verðs efnis á uppboðinu sé bréf dag-
sett í Sauðlauksdal hinn 24. júní
1848, sent til „herra Chirurgus J. S.
Weivath, Isefiörds handelstad“.
Byrjunarboð er 200 evrur. Þá er þar
eina þekkta eintak af 20 aura græn-
bláu aurafrímerki frá árinu 1891
með rauðri svokallaðri „í gildi“-
yfirprentun frá árinu 1902. Byrj-
unarboð er 5.000 evrur. Loks má
nefna ábyrgðarbréf sem sent var
með flugvél sænska flugkappans
Ahrenbergs er hann gerði mislukk-
aða tilraun til flugs yfir Atlantshaf
með viðkomu á Íslandi árið 1929.
Einungis 65 slík bréf voru send frá
Íslandi. Byrjunarboð er 1.000 evrur.
gudmundur@mbl.is
Verðgildi frímerkjanna
ekki undir 15 milljónum
Íslenskt safn er-
lends stórsafnara á
uppboði í Svíþjóð
Frímerki Bréf sem sent var með
flugvél Svíans Ahrenbergs 1925.
Óskar Hafnfjörð
Gunnarsson var í
gær kjörinn for-
maður Matvís,
Matvæla- og veit-
ingasambands Ís-
lands. Tveir aðr-
ir voru í fram-
boði og kusu alls
392 í kosning-
unum. Hlaut
Óskar 203 at-
kvæði eða 51,8% greiddra atkvæða.
Alls voru 1.774 á kjörskrá og var
kjörsókn 22,1%. „Það sem ég tel að
við þurfum að leggja áherslu á er
að standa vörð um iðngreinarnar
okkar. Svo eru náttúrlega fram
undan kjarasamningar hjá okkur
og það virðist stefna í hörð átök
þar, þannig að við þurfum að vera
tilbúin. Þeir renna út núna um ára-
mótin,“ segir Óskar spurður um
áherslur nýs formanns. Hann segir
að eitt af fyrstu verkefnum nýrrar
stjórnar verði að kalla saman samn-
inganefnd, vinna í kröfum og
ákveða áherslur.
„Mér sýnist landslagið vera þann-
ig að öll félög eru að búa sig undir
átök. Við verðum ekki undanskilin í
því,“ segir Óskar aðspurður hvers
vegna hann telur stefna í átök í við-
ræðum. mhj@mbl.is
Nýr formaður Mat-
vís býst við átökum
í kjaraviðræðum
Óskar Hafnfjörð
Gunnarsson
Bir
tm
eð
fyr
irv
ar
au
m
pr
en
tvi
llu
r.
He
im
sfe
rð
ir
ás
kil
ja
sé
rr
étt
til
lei
ðr
étt
ing
aá
slí
ku
.A
th.
að
ve
rð
ge
tur
br
ey
st
án
fyr
irv
ar
a.
SÍÐUSTU
SÆTIN
Allt að
15.000kr.
afsláttur á mann
PÁSKASÓL
BENIDORM