Morgunblaðið - 15.03.2018, Side 70

Morgunblaðið - 15.03.2018, Side 70
70 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 15. MARS 2018 ✝ Stefán Krist-jánsson fædd- ist í Reykjavík 8. desember 1982. Hann lést 28. febr- úar 2018. Foreldrar Stef- áns eru Margrét Stefánsdóttir kenn- ari, f. 18. júní 1960, og Kristján Matthíasson fiðlu- leikari, f. 10. júní 1961, og er kona hans Guðrún Bryndís Guðmundsdóttir geð- læknir, f. 20. júlí 1963. Hálf- systkini Stefáns eru Lára Krist- ín Óskarsdóttir, f. 11. ágúst 1994, Anna Margrét Óskars- dóttir, f. 19. janúar 1996, Ing- unn Erla Kristjánsdóttir, f. 21. maí 1994, sambýlismaður henn- ar er Egill Axfjörð Friðgeirs- son, f. 26. janúar 1987, og Matt- hías Kristjánsson, f. 19. septem- ber 1997. Stefán lætur eftir sig einn son, Kristján, f. 1 ágúst 2003, og er móðir hans Harpa Ingólfsdóttir Gígja hagfræð- ingur. Sambýliskona Stefáns er Lilja Björk Erlingsdóttir, f. 27. ágúst 1972. Stefán ólst upp að mestu hjá móður sinni og hafði lögheimili hjá henni að Flyðrugranda 6. Hann lauk skyldu- námi frá Haga- skóla og stúdents- prófi frá Menntaskólanum við Hamrahlíð. Hann innritaðist síðan í stærð- fræðideild við Há- skóla Íslands og las þá jafnframt mikið um hagfræðileg málefni. Um tíma kenndi Stefán skák hjá Skákskólanum og í grunn- skólum borgarinnar og sinnti jafnframt ýmsum störfum með skákiðkun sinni. Stefán tefldi á mörgum stórmótum hér heima og víða um heim og vann til fjölda verðlauna. Stef- án var í Ólympíusveit Íslands 2000-2008, varð alþjóðlegur meistari 2002 og skákmeistari Reykjavíkur árin 2002 og 2006. Hann kláraði áfanga til stórmeistara 2006, þá aðeins 23 ára, og varð síðan stór- meistari í skák árið 2011. Útför Stefáns fer fram frá Neskirkju í dag, 15. mars 2018, og hefst athöfnin klukk- an 13. Yfir mig hellast minningar um þig, elsku Stebbi minn. Alls stað- ar sem ég fer. Þar ert þú – allt minnir á þig. Ég sakna þín svo óendanlega mikið. Þó að árin okk- ar sjö hafi oft verið ansi storma- söm þá var taugin svo sterk og kærleiksrík sem hélt okkur saman. Sem betur fer vorum við opin og dugleg við að tjá tilfinn- ingar okkar hvort við annað. Sumum fannst skrýtið að við vær- um saman vegna aldursmunar og ýmislegs annars en við kærðum okkur kollótt. Við vorum búin að tala um að verða gömul saman og létum okk- ur dreyma um framtíðina. Ég finn ennþá lyktina af þér og finn fyrir nærveru þinni. Ég vakna stund- um talandi við þig. Nú get ég bara beðið eftir að sjá þig aftur þegar minn tími kemur. Elsku mamma Magga og fjöl- skylda. Okkar missir er mikill. Verum hvert öðru styrkur í sorg- inni. Þín Lilja Björk. Elsku yndislegi bróðir minn. Orð fá ekki lýst hversu óraun- veruleg tilfinningin er – að þú sért farinn. Þú kenndir mér svo margt og hjálpaðir mér þegar ég þurfti á stuðningi að halda. Eitt það mik- ilvægasta og síðasta sem þú sagð- ir við mig var að það er ekkert að óttast, aldrei, nema óttann sjálfan og maður þarf að minna sig á það þegar maður finnur fyrir honum. Það eina sem er til og verður allt- af til er núið, bæði óendanlega stutt og óendanlega langt. Ég trúi að þú sért hjá mér núna, og verðir alltaf. Þá er ekkert að óttast. Anna Margrét. Sorg, hef ég lært, er einungis ást. Öll ástin sem þú vilt gefa en getur það ekki. Öll þessi uppsafn- aða ást fyllir augnkrókana, hnút- inn í hálsinum og holrúmið í brjóstinu. Sorg er bara ást með engan stað til að fara. Lára Kristín. Stefán hitti ég fyrst fyrir um 14 árum þegar við Kristján pabbi hans hófum sambúð. Þá var Stef- án nýlega orðinn pabbi, og Krist- ján litli sonur hans eingöngu nokkurra mánaða. Þeir feðgarnir komu endrum og eins í heimsókn í Daltúnið. Stefán hafði frá fyrstu stund þægilega nærveru og ein- hvern veginn fannst manni maður alltaf hafa þekkt hann. Það var gaman að spjalla við hann um allt mögulegt og var hann laginn við að láta fólki líða vel í návist sinni. Þegar Kristján yngri eltist sá maður hversu fallegt samband hafði þróast á milli þeirra feðga og stundum var eins og þeirra á milli væri eitthvað í gangi sem við hin skildum ekkert endilega. Ég fékk einnig að kynnast snilligáfu Stefáns þegar ég varð vitni að því að hann tefldi blindskák við pabba sinn sem hafði uppstillt taflborðið fyrir framan sig. Stefán var að hvíla sig í sófanum eftir stóra máltíð og virtist ekki mjög einbeittur – en hann vann að sjálf- sögðu! Það var mikið áfall fyrir Stefán þegar móðir hans lenti í alvarlegu slysi árið 2010. Stefán var mjög náinn mömmu sinni og minntist hann stundum á það að hann hefði ekki komið sér í gegnum skólann og annað ef hann hefði ekki haft hana til að reka á eftir sér. Komum Stefáns hingað í Dalt- únið fækkaði síðastliðin ár, þó kom hann nokkrum sinnum og dvaldi hjá okkur í nokkra daga. Ég minnist þess sérstaklega í eitt skiptið þegar Stefán var hér og Kristján yngri kom og úr varð góð stund með fótbolta og skemmtilegheitum. Þó að óvissan um framtíðina væri alltaf handan við hornið hafði Stefán lag á að njóta stundarinnar með strákn- um sínum. Síðast þegar Stefán dvaldi hjá okkur hafði dregið af honum. Hann hafði á orði að framtíðarfyrirmyndirnar væri ekki að finna í þeim heimi sem hann var kominn með báða fætur í. Samt var alltaf stutt í stoltið og vildi hann ekki eða treysti sér ekki til að þiggja stuðning frá öðr- um. Hann ætlaði í gegnum þetta á sinn hátt. Því miður vannst hon- um ekki tími til að klára þá vinnu, sem hann þó var byrjaður á. Kæri Stefán, hvíl í friði. Guðrún Bryndís Guðmundsdóttir. Svo er því farið: Sá er eftir lifir deyr þeim sem deyr en hinn dáni lifir í hjarta og minni manna er hans sakna. Þeir eru himnarnir honum yfir. (Hannes Pétursson) Það er kaldhæðnislegt að setj- ast loksins niður nú á dánardegi Stefáns bróður míns Guðmunds- sonar sem lést fyrir ári úr hjarta- áfalli tæplega 56 ára. Annar Stef- án sem er mér ekki síður ástkær lést fyrir skömmu aðeins 35 ára, en fyrir tæpum tuttugu árum lést sonur minn Guðmundur Ísar að- eins 13 ára. Harmurinn sem að okkur er kveðinn er hyldjúpur enda um að ræða snöggt andlát, fyrirvaralaust, þegar þeir Stebbi bróðir, Stebbi Kristjáns og Gúndi féllu frá. Yngstu börnin mín hafa nú misst báða eldri bræður sína, skyndilega, og gullhjartað Stefán bróður. Ég kynntist Stefáni hálfu ári áður en ég kynntist föður hans. Við Margrét móðir hans þekktumst og synir okkar kynnt- ust sumarið 1992 á Laugarvatni, þegar Magga var að vinna á Edduhótelinu í menntaskólanum en ég leigði íbúð hjá hreppnum og vann við skriftir. Gúndi var með mér á Laugarvatni þetta sumar og Stefán með Möggu. Þeir urðu strax perluvinir, Stefán að verða tíu ára og guttinn minn að verða sjö. Mynd í huga mér er meðal annars: tveir glókollar, ánægðir út að eyrum að spila fótbolta. Og þegar Stebbi bróðir kom í heim- sókn var hamingjan í hámarki. Hálfu ári síðar voru þeir Stebbi Möggu og Gúndi Guggu orðnir stjúpbræður og eignuðust sam- eiginlegan bróður, Matthías, og systur, Ingunni Erlu. Stefán eignaðist einng systurnar Láru Kristínu og Önnu Margréti. Þeir höfðu um margt að tala þegar þeir hittust þann stutta tíma sem Gúndi átti eftir að lifa og Stebbi kenndi Gúnda auðvitað mann- ganginn. Stefán var sérlega ljúfur drengur sem hafði góða nærveru, hann var hvers manns hugljúfi, skarpgreindur eðaldrengur í alla staði. Það var honum mikið áfall, eins og okkur öllum, þegar Magga lenti í slysi fyrir allnokkr- um árum og varð aldrei söm. Þau voru gífurlega náin mæðgin og örlög hennar tók hann nærri sér eins og við öll sem þekkjum Möggu. Við erum harmi slegin vegna andláts elsku Stefáns Kristjáns- sonar, hans minning mun lifa meðal þjóðarinnar því hann hefur sannarlega markað djúp spor í skáklistina. Enn einn íslenskur drengur, með glæsilegan feril í sínu fagi, er fallinn í valinn allt of ungur. Hann vann marga stór- sigra í skákinni en tapaði á tafl- borði lífsins, elsku hjartagullið, drengurinn sem ég var svo lán- söm að kynnast ungum að aldri. Stefán Kristjánsson skilur eft- ir sig yndislegan dreng, Kristján, sem mun dafna og blómstra um ókomin ár og bera föður sínum fagurt vitni. Elsku Magga, Krist- ján og stórfjölskyldur ykkar beggja, með þessum fátæklegu orðum votta ég mína dýpstu sam- úð. Guðbjörg Gróa Guðmundsdóttir. Einstaki húmoristinn, djúpi hugsuðurinn, fagra sálin, klári, stríðni, sæti Stebbi. Við erum öll í lausu lofti. Hvað nú? Hljómsveitin Radiohead fang- ar ástandið vel; Það er ekki allt í lagi, það er ekki allt í lagi, það er ekki allt í lagi. Það er allt í lagi, það er allt í lagi, það er allt í lagi. Það er ekki allt í lagi, það er allt í lagi, það er allt í lagi, það er allt í lagi. Þínar frænkur, Ragnhildur Lára (Ragga Lára) og Margrét Helga (Magga Helga). Það er með ólýsanlegri sorg í hjarta sem við nú kveðjum Stebba frænda, son Möggu syst- ur, stórmeistarann. Hann var ein- stakur maður sem við áttum í mjög nánum tengslum við, rædd- um andleg málefni og tilgang lífs- ins. Stebbi var friðarsinni, ljúfur og kærleiksríkur, hafði góða kímnigáfu en hjá honum var alltaf stutt í grínið. Hann var fallegur, innan sem utan, talaði aldrei illa um náungann, hafði alltaf það að markmiði að bæta sig og nú síðast að tileinka sér lífsreglurnar fjór- ar, byggðar á lífsspeki Toiteka- indíána, sem afinn deildi með barnabörnunum sínum. Stebbi átti margar góðar stundir með afa og ömmu á Dragaveginum, en þar átti hann öruggt athvarf og leið vel. Synir okkar voru nánast sem bræður, nú báðir 14 ára en Stebbi frændi var mikið með þá saman þegar þeir voru yngri. Kristján var sólin í lífi hans en Stebbi ætl- aði alltaf að vera til staðar fyrir hann þegar hann næði sér aftur á beinu brautina. Lífið virðist stundum ósanngjarnt, við vitum lítið fyrir fram um hvert leið ligg- ur, gjarnan annað en við gerðum ráð fyrir. Þótt Stebbi hafi dregist dýpra inn í veröld undirheima lifði ljósið með honum innst inni og vonin um betra líf. Það að svo margir láti líf sitt vegna vímuefna er samfélagslegt nútímamein sem þarf að horfast í augu við með því að ræða opinskátt um undirheim- ana, hvað sé löglegt og hvað ólög- legt og hvað sé í raun og veru hægt að gera til að vonin um betra líf geti orðið að veruleika hjá þeim sem þangað rata. Góðar minningar um fallega og hreina sál lifa – geislar góð- mennsku lýsa upp myrkrið. Takk, takk, takk Stebbi fyrir allt. Við í fjölskyldunni elskum þig öll og styðjum hvert annað í sorginni yfir því að missa þig úr lífi okkar. Lára frænka, Guðni, Hróar og Stefán Franz. Hann var sjö ára og sat við borðið og horfði á stórt hvítt blað fyrir framan sig. Yfir hann kom einhver ótrúlegur sköpunarkraft- ur – hann teiknaði hratt með lit í hendi sem þeyttist yfir flötinn, skransaði og krassaði og sprakk með tilheyrandi hljóðum, blístr- um og skruðningi. Þetta var orr- usta spúandi dreka, óvætta og manna sem lifnuðu við á blaðinu. Orrustan var upp á líf og dauða. Innlifunin var alger. Hvert strik hafði sögu og tilgang. Það var magnað að sjá hvernig myndin varð til. Marglaga listaverk sem hægt var að lesa aftur á bak og áfram. Fljótlega leysti taflborðið teikniblaðið af hólmi. Þar háði Stebbi margar orrustur og vann marga eftirminnilega sigra. Hann gat séð leikinn fyrir. Útsjónar- samur, hugmyndaríkur og kænn hugur hans óf flókin útspil langt fram í tímann. Það er eins og hver orrusta hafi runnið sitt skeið þegar nýjar áskoranir birtust. Spilamennska og póker yfirtóku skákina og hann náði einnig undraverðum árangri þar. Erfiðustu baráttuna háði Stebbi við fíknina. Hann leitaði svara um tilgang lífsins. Hann gerði orð Nietzsches að sínum, að lífið er ekki ráðgáta til að leysa heldur leyndardómur til að lifa. Nú er myndin hans Stebba full- kláruð og við reynum að lesa hana til baka. Stebbi er farinn á undan okkur inn í víddir heimsins. Með ólýs- anlegri sorg og söknuði sendi ég syni hans, foreldrum og systkin- um hjartans heimsins ljós og kærleika. Líka afa hans sem átti í honum hvert bein frá því hann fæddist. Ragnhildur (Ragga). Þann 28. febrúar síðastliðinn misstum við ástkæran vin okkar og frænda. Frænda sem í raun var okkur sem bróðir og sonur, enda vorum við meira og minna saman öll sumur, og margar helg- ar, frá því að hann var átta ára gamall. Við verðum ævinlega þakklát fyrir allar samverustund- irnar og fyrir að hafa fengið að kynnast honum svo vel. Stebbi var tíu ára þegar hann hóf að sækja skákæfingar hjá TR og náði undraverðum árangri á skömmum tíma. Ekki leið á löngu þar til alþjóðlegur titill var í höfn og síðar kom sá stóri. Stórmeist- aratitillinn náðist þó ekki ein- göngu vegna meðfæddra hæfi- leika. Stebbi var mikill keppnismaður og ef áhuginn var fyrir hendi var tekið á hlutunum af einurð og festu. Hann gat setið og teflt við okkur sleitulaust tím- unum saman án þess að á honum sæjust þreytumerki. Hann var ekki bara hógvær stórmeistari, heldur einfaldlega vingjarnlegur og góður meistari. Það var alltaf stutt í hláturinn enda var Stebbi einstaklega skapgóður og tók öll- um hlutum með jafnaðargeði. Þó að skákin hafi leikið stórt hlut- verk brölluðum við ýmislegt ann- að. Við eigum svo margar góðar minningar með Stebba. Öll ferða- lögin um landið með afa og ömmu, þar sem leikjatölvan og boltinn voru tekin með og blindskák tefld á leiðinni undir ljúfum tónum ZZ Top. Fótbolti var ekki bara spil- aður á sparkvelli, heldur líka inni í stofu þar sem húsgögnin fengu að kenna á því og í tölvu, þar sem rígur stórvelda fótboltaheimsins var útkljáður fram á nótt. Sama hvernig fór var mikið hlegið og allir skildu sáttir, en sigur- vegarinn gætti þess þó að minna hina á úrslitin. Við kveðjum nú Stebba í hinsta sinn með trega og sorg, en einnig með þakklæti fyrir allt sem hann gaf okkur og við munum varðveita allar góðu minningarnar um ókomna tíð. Þórarinn Stefánsson, Katrín Þórarinsdóttir og Stefán Þórarinsson. Það voru þung tíðindi að fá, tíð- indin um andlát Stefáns Krist- jánssonar, sem einn vinur okkar færði mér símleiðis. Nær tveimur vikum síðar sat ég í afgreiðslu lík- amsræktarstöðvar. Í rælni minni fletti ég blaðinu og allt í einu blasti dánartilkynning Stebba við mér. Óraunverulegri tilfinningu hef ég sjaldan fundið. Akkúrat í þessari afgreiðslu sátum við fé- lagarnir svo oft á árum áður. Ný- búnir í rækt, sjænaðir og flottir með heilsudrykk í hönd að ræða hitt og þetta, á leiðinni að bralla hitt og þetta. Hugur hans var op- inn, andlega þenkjandi. Man þeg- ar hann var að pæla í að læra jap- önsk fræði sem höfðu heillað hann. Hann var einn allra sterkasti íslenski skákmaður sögunnar, slíkir voru þessir meðfæddu hæfi- leikar sem hann var þekktur fyr- ir. Eitt hæfileikabúnt, góður í öllu. Þekkt er sagan þegar Stefán var að tefla við sterkan skák- meistara og einn þekktasti skák- meistari sögunnar, sem þá var kominn á efri ár, fylgdist með skákinni og kom að Stefáni eftir skákina og hvíslaði að honum að hann hefði aldrei vitað hverju hann myndi leika næst. Síðasta minningin um Stebba er góð að ylja sér við. Þá tefldum við nú í vetur á Íslandsmóti skák- félaga. Hann vann örugglega, eins og alltaf þegar við tefldum. Að lokinni skák gerði hann svo hefðbundið grín að mér á góðlát- legan hátt, taldi taflmennsku mína vafasama og hló. Megi allar góðir vættir veita fjölskyldunni styrk á þessum erfiðu tímum. Minningin um Stebba Kristjáns lifir. Stefán Steingrímur Bergsson. Síðustu vikur hafa verið stormasamar. Skömmu eftir að ég fagnaði því að ná langþráðum stórmeistaratitli í skák fékk ég símtal frá bróður mínum um að góðvinur okkar beggja frá blautu barnsbeini, Stefán Kristjánsson, væri fallinn frá. Stefán var sjálfur stórmeistari í skák og á því sviði lágu leiðir okkar saman. Mig langar að skrifa örfá orð, til að minnast þessa góða drengs, sem heillaði okkur alla bæði með framgöngu sinni við taflborðið og utan þess. Með leiftrandi gáfum sínum og húmor. Með kaldhæðni sinni og með sínum sterka kar- akter. Með glæstum skáksigrum sem alltaf munu halda minningu hans á lofti. Stefán byrjaði mikið seinna að tefla en við hinir. En ekki leið á löngu þangað til hann var orðinn sterkari en við allir. Það þarf að hafa margt til brunns að bera til að vera góður skákmaður. Og Stebbi bjó yfir kostum sem létu hann taka fram úr okkur og vera skrefinu á undan. Í bland við nátt- úrulega tilfinningu fyrir leiknum hafði hann stáltaugar, ásamt því að vera bæði úrræðagóður og þol- inmóður í erfiðum stöðum. Það var eins og styrkur hans ykist í hverri skák, nánast með hverjum leik, og það var augljóst að hann myndi ná langt. Eins langt og hann vildi. Ég tefldi með honum um allan heim á árunum 1997- 2005. Á stöðum eins og Aþenu, Ohrid, Búdapest, Mallorca og Gautaborg. Á Evrópumótum og Ólympíumótum. Við urðum al- þjóðlegir meistarar. Við nutum lífsins. Lögðum hart að okkur í skák, ræddum um skák en líka um allt á milli himins og jarðar. Vorum keppinautar en fyrst og fremst góðir vinir og á milli okkar ríkti gagnkvæm virðing. Við borðuðum á fínum veitingastöð- um og rússuðum um götur Búda- pest í ódýrum leigubílum. Okkur voru allir vegir færir. Í einni ferð- inni sagði hann við mig að við yrð- um báðir stórmeistarar. Ég man alltaf hvað ég var ánægður með þá spá hans. Þá trú hans. Við urð- um það, og ég veit að hann fylgd- ist með því, og þú ruddir brautina Stebbi og sýndir okkur hinum að þetta var hægt. Þetta er hægt. Þegar kom að skák sá ég í honum viljastyrk og trú sem ég fann ekki alltaf hjá sjálfum mér. Á taflborði lífsins fer fram ann- ar bardagi, sem lýtur öðrum lög- málum en sá leikur sem við lögð- um fyrir okkur. Í skák má finna ákveðna sanngirni, ákveðið rétt- læti, ef svo má að orði komast. Í henni er rökleg framvinda, sam- fella sem við getum stýrt upp að ákveðnu marki. Lífið er ekki þannig, á köflum er það hvorki réttlátt né sanngjarnt. Árið 2010 lenti móðir Stefáns í alvarlegu slysi. Það var reiðarslag fyrir alla fjölskylduna. Ég get með engu móti skýrt eða skilið hvað síðan gerðist, á allra síðustu árum, en það fór að halla undan fæti. Það eru til stormar sem við getum ekki staðið af okkur. Ég mun minnast Stefáns sem eins sterkasta skákmanns sem Ísland hefur alið, en fyrst og fremst ylja mér við og minnast okkar góða og trausta vinskapar utan skák- borðsins. Ég votta nánustu aðstandend- um Stefáns mína dýpsta samúð. Megi allt gott umvefja ykkur og styrkja ykkur í sorginni. Bragi. Í dag kveð ég góðan vin minn, Stefán Kristjánsson stórmeist- ara. Mig langar að minnast hans hér í fáeinum orðum. Ég kynntist Stefáni fyrst árið 1993 þegar hann byrjaði að mæta á æfingar í Taflfélagi Reykjavík- ur. Það fór ekki mikið fyrir Stef- áni til að byrja með en hann var fljótur að taka framförum í skák- inni. Árið 1997 tapaði ég minni fyrstu keppnisskák gegn honum, í Politiken Cup í Danmörku. Á þeirri stundu áttaði ég mig á því að þarna væri á ferðinni mikið efni í skákinni. Við Stefán byrj- uðum að fara æ oftar út að tefla saman og kynntumst við vel og náðum vel saman þó að ólíkir værum við. Eftirminnilegustu ferðirnar með Stefáni voru Ól- ympíuskákmótið í Istanbúl árið 2000 og mótin þar sem hann land- aði stórmeistaraáföngunum sín- um, 2004 í Noregi og 2006 í Austurríki. Þetta voru miklir gleðitímar og var glatt á hjalla þá. Stefán Kristjánsson

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.