Morgunblaðið - 15.03.2018, Blaðsíða 77

Morgunblaðið - 15.03.2018, Blaðsíða 77
ÍSLENDINGAR 77 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 15. MARS 2018 Verið velkomin í verslun okkar Opið virka daga kl. 8:30–17:00 Síðumúli 16 I 108 Reykjavík I Sími 580 3900 I fastus.is fastus.is FALLEG ÚTIHÚSGÖGN FYRIR FYRIRTÆKI Fastus býður upp á mikið úrval af áhugaverðum húsgögnum og innréttingum fyrir hótel, mötuneyti, veitingastaði, ráðstefnur, fundi o.fl. Tryggðu þér og gestum þínum gott sæti á vönduðum og þægilegum stólum á góðu verði. Komdu og kynntu þér úrvalið. Við sérpöntum eftir þínum óskum!H elgi Sigurðsson fæddist í Reykjavík 15.3. 1903. Hann ólst upp í foreldrahúsum, frá fjögurra ára aldri í timburhúsi við Lindargöt- una í Reykjavík, sem enn stendur þar og nú númer 11. Foreldrar Helga voru Sigurður Jónsson, bók- bindari í Reykjavík, og s.k.h., Gróa Jónsdóttir, systir Vilhjálms húsa- smíðameistara, afa Vilhjálms Þórs Kjartanssonar rafeindaverkfræð- ings, föður dr. Hannesar Högna Vil- hjálmssonar, tölvuverkfræðings og prófessors við HR. Gróa var af Teitsætt í Borgarfirði. Eiginkona Helga var Guðmundína Guttormsdóttir yfirhjúkrunarkona. Fóstursonur þeirra var Hafsteinn Guðmundsson rafvirki sem lést 2013. Helgi er í hópi þeirra gömlu ís- lensku verkfræðinga sem með menntun sinni og ævistarfi, og með fræðigrein sína að vopni, gjörbyltu aðstæðum og lífskjörum íslensks al- mennings á fyrri helmingi síðustu aldar. Hann lauk stúdentsprófi frá MR 1923 og prófi í byggingaverk- fræði frá DTH í Kaupmannahöfn 1929. Hitaveita Reykjavíkur var á sín- um tíma stórkostleg draumsýn um einhverja metnaðarfyllstu opinberu framkvæmd sem ráðist var í hér á landi. Það kom í hlut Helga, öðrum verkfræðingum fremur, að gera þennan draum að veruleika á farsæl- an hátt. Sem deildarverkfræðingur hjá Vatns- og hitaveitunni hafði hann umsjón með jarðborunum eftir heitu vatni í Mosfellssveit, gerði frumteikningar og áætlanir um hita- veituna frá Reykjum og hafði yfir- umsjón með framkvæmdum hita- veitunnar. Helgi var fyrsti og eini vatns- og hitaveitustjóri Reykjavíkur 1943-54 er vatns- og hitaveita voru aðskildar. Hann var hitaveitustjóri til 1962 og síðan verkfræðilegur ráðunautur um hitunarmál Reykjavíkurborgar til dauðadags. Helgi lést 22.9. 1971. Merkir Íslendingar Helgi Sigurðsson 90 ára Guðrún Guðjónsdóttir Hólmsteinn Jóhannsson Ragnar H. Þorbergsson 85 ára Erna Hákonardóttir Halldór Guðjónsson Júlíus Jónsson Molly Thomsen 80 ára Dagný Ásgeirsdóttir Guttormur Einarsson Halla Guðmundsdóttir Nína Victorsdóttir Sigþór Sigurðsson 75 ára Halldór Steingrímsson Ingibjörg S. Gísladóttir Jan Ólafsson Jens Arne Petersen Símon Ágúst Sigurðsson Svanlaug Friðþjófsdóttir Valdimar A. Valdimarsson Örn Ingólfsson 70 ára Elísabet G. Karlsdóttir Friðjón Edvardsson Guðrún Jónsdóttir Gylfi Guðmundsson Markús H. Hávarðarson Ragna B. Björnsdóttir Sólrún Einarsdóttir Vigdís E. Sigurðardóttir 60 ára Ásvaldur Æ. Þormóðsson Bjarni Valur Ólafsson Dagfríður G. Arnardóttir Friðveig Elísabet Rósadóttir Jenný Garðarsdóttir Kolbrún Stefánsdóttir Ragnar Stefán Brynjarsson Sigurrós Sigurhansdóttir Stefán Geir Pálsson Þuríður Jana Ágústsdóttir 50 ára Aðalsteinn Ö. Snæþórsson Anna Helgadóttir Arna Schram Björn S. Stefánsson Elísabet Júlíusdóttir Estella D. Björnsson Eyrún Guðnadóttir Gerður E. Einarsdóttir Grétar Jónsson Guðlaug Guðmundsdóttir Guðrún Ósk Gísladóttir Hallgerður Gunnarsdóttir Jóhanna Guðmundsdóttir Jón Ívar Rafnsson Kristján U. Nikulásson Óli Svavar Hallgrímsson Stefán Hallbjörn Búason 40 ára Arna Hrönn Skúladóttir Erla Björk Jónsdóttir Gracjan Trela Guðjón Ásgeir Helgason Haukur Þórðarson Hávarður Hilmarsson Ingibjörg Vigdís Ottósdóttir Kristín Þóra Albertsdóttir Ólöf Elín Gunnlaugsdóttir Sigríður Ósk Ríkharðsdóttir Sigurður Ásgeir Jónsson Sigurður H. Guðmundsson Vilhelmína Birgisdóttir 30 ára Atli Már Júlíusson Ágúst Bragi Björnsson Birgir Steinn Einarsson Bjarki Gunnarsson Guðmundur Þór Ólafsson Hanna S. Sumarliðadóttir Jóhann Rafn Hilmarsson Laufey Bjarnadóttir Til hamingju með daginn 30 ára Teitur ólst upp á Brúarfossi á Mýrum, býr á Vopnafirði, lauk prófi í vél- fræði og er vélstjóri hjá HB Granda á Vopnafirði. Systkini: Bogi, f. 1982; Jóhannes, f. 1983; Soffía, f. 1985; Helga, f. 1986; Guðbjörg, f. 1992; Mar- grét, f. 1993; Lára, f. 1996; Þórir, f. 1997 og Þórður, f. 1999. Foreldrar: Sigríður Þórð- ardóttir, f. 1959, og Helgi Oddsson, f. 1949. Teitur Helgason 30 ára Sveinn ólst upp á Stokkseyri en er nú bú- settur á Selfossi. Hann er nú starfsmaður hjá Rækt- unarsambandi Flóa og Skeiða. Maki: Ellý Hrund Guð- mundsdóttir, f. 1990, starfsmaður við leikskóla og nemi í tanntækni. Sonur: Patrekur Logi Sveinsson, f. 2014. Foreldrar: Jón Björn Ás- geirsson, f. 1957, og Þór- unn Jónsdóttir, f. 1963. Sveinn Ásgeir Jónsson 30 ára Sigurður ólst upp í Kópavogi, býr í Hafnar- firði, lauk BA-prófi í lög- fræði frá HÍ og starfar nú hjá Hamborgarabúllu Tómasar. Maki: Katla Hrund Karls- dóttir, f. 1990, nemi í markaðsfræði og alþjóða- viðskiptum við HÍ. Sonur: Kári Sigurðsson, f. 2016. Foreldrar: Kristín Bessa Harðardóttir, f. 1963, og Bjarni Sigurðsson, f. 1961. Sigurður H. Bjarnason Olavs Orden fyrir landhelgisstörf 1976, var sæmdur riddarakrossi hinnar íslensku fálkaorðu fyrir landhelgisstörf 1976 og fjölda ann- arra viðurkenninga. Sigurður kom í land árið 1990: „Ég starfaði síðan við laxveiðieft- irlit, við útibú Landsbankans í Há- skólabíói og loks við Háskólabíó. En nú dútla ég við það að halda húsinu okkar við milli þess sem ég fer og hitti gamla félaga úr Gæsl- unni, tvisvar til þrisvar í mánuði. Það er ómissandi að hitta þessar gömlu kempur og rifja upp gömul ævintýri. Þar er af nógu að taka.“ Fjölskylda Eiginkona Sigurðar er Halldóra Edda Jónsdóttir, f. 8.7. 1933, hús- freyja. Foreldrar hennar voru Jón Ottó Magnússon, f. 6.10. 1887, d. 4.3. 1938, skipstjóri í Hafnarfirði, og k.h., Margrét Magnúsdóttir, f. 27.3. 1906, d. 23.11. 1971, húsfreyja í Hafnarfirði, Bíldudal og í Reykjavík. Börn Sigurðar og Eddu eru Jón Viðar, f. 21.6. 1958, prófessor í Ósló, en kona hans er Katrín Dóra Valdi- marsdóttir ráðgjafi; Steinunn Erla, f. 18.3. 1960, hönnuður í Reykjavík, en maður hennar er Páll Hjalti Hjalta- son arkitekt, og Magnús Viðar, f. 6.1. 1966, kvikmyndaframleiðandi í Reykjavík en kona hans er Ilmur Kristjánsdóttir leikkona. Sonur Sigurðar frá því áður, og Elsu Þorvaldsdóttur, f. 24.11. 1927, húsfreyju, er Þorvaldur Sigurðsson, f. 30.9. 1951, forstjóri í Reykjavík, en kona hans er Herdís Ástráðsdóttir hjúkrunarfræðingur. Systkini Sigurðar: Magnús Vilhelm Árnason, f. 11.3. 1922, d. 19.11. 1971, verkamaður í Reykjavík; Anna Rósa- lilja Árnadóttir, f. 6.7. 1923, d. 20.2. 1996, iðnaðarmaður í Hafnarfirði; Eyjólfur Árnason, f. 11.12. 1924, d. 9.8. 2008, skipstjóri og starfaði síðar við álverið í Straumsvík; Ásdís Árna- dóttir, f. 6.11. 1926, d. 15.1. 1986, hús- freyja í Reykjavík, og Sigurbergur Árnason, f. 25.11. 1930, d. 11.11. 2008, iðnfræðingur í Reykjavík. Foreldrar Sigurðar voru Árni Steindór Þorkelsson, f. 24.6. 1888, d. 17.7. 1932, skipstjóri í Reykjavík, og k.h. Steinunn Sigríður Magnús- dóttir, f. 27.8. 1898, d. 7.12. 1971, húsfreyja í Reykjavík. Sigurður Þorkell Árnason Berent Oddsson b. á Mörtungu á Síðu Vilborg Berentsdóttir útvegsb. í Krókskoti Magnús Eyjólfsson útvegsb. í Krókskoti í Miðneshreppi Steinunn Sigríður Magnúsdóttir húsfr. í Rvík Steinunn Magnúsdóttir húsfr. í Eystri- Sólheimum Eyjólfur Eyjólfsson b. í Eystri-Sólheimum í Mýrdal Árna Steinunn ögnvalsdóttir húsfr. í Rvík. RMarta Guðjónsdóttirborgarfulltrúi Steinunn Þorkels- dóttir húsfr. í Hafnrfirði og í Rvík Oddgeir orkelsson b. í Ási við afnarförð Þ H Sigurrós Oddgeirs- óttir húsfr. að Brú í Hrútafirði dPáll Jenssonprófessor Málfríður Ólafsdóttir frá Eyjarhólum við Pétursey í Mýrdal Guðmundur Ólafsson b. og form. í Eyjarhólum við Pétursey í Mýrdal Halldór Guðmundsson fyrsti íslenski rafmagnsfræðingurinn Eyjólfur Guðmundsson b., kennari og rithöfundur á Suður-Hvoli í Mýrdal Ingveldur Þorkelsdóttir húsfr. í Grindavík Laufey Árnadóttir húsfr. í Rvík Helena Eyjólfsdóttir söngkona nna Árnadóttir húsfr. í Rvík ASigurður Steinar Ketilsson skipherra Theódór S. Sigurbergsson löggiltur endur- skoðandi Sigurberg Árnason í Rvík Sigrún Magnúsdóttir ramhaldsskóla- kennari í Rvík f Sigurður Sigurðsson deildarverkfr. hjá Vita- og hafnamála- stjóra Magnús Magnús- son verkstj. í Rvík Vilborg Jónsdóttir húsfr. á Setbergi Jón Guðmundsson hreppstj. á Setbergi við Hafnarfjörð, ættfaðir Setbergsættar Ingveldur Jónsdóttir húsfr. á Þorbjarnarstöðum Þorkell Árnason b. á Þorbjarnarstöðum í Garðahverfi Steinunn Þorkelsdóttir húsfr. í Guðnabæ Árni Guðnason b. Guðnabæ í Selvogi Úr frændgarði Sigurðar Þorkels Árnasonar Árni Steindór Þorkelsson skipstj. í Rvík Sesselja elgadóttir húsfr. í Hafnarfirði HVigdís Hansdóttirhúsfr. í Rvík Hörður Sigurgestsson fyrrv. forstj. Eimskips Ásgeir Sigurgestsson sálfræðingur og MPA Sigríður Jónsdóttir húsfr. í Hafnarfirði Skipherrann Sigurður Þorkell Árnason í einkennisbúningnum.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.