Morgunblaðið - 15.03.2018, Qupperneq 32
32 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 15. MARS 2018
SVIÐSLJÓS
Guðmundur Magnússon
gudmundur@mbl.is
„Hugmyndin er að vekja fólk til
umhugsunar en ekki að kveða upp
dóma,“ segir Garðar Snæbjörns-
son arkitekt sem á þriðjudaginn
opnaði litla sýningu í anddyri
Þjóðminjasafnsins á eigin teikn-
ingum af nokkrum áberandi bygg-
ingum í Reykjavík sem breytt hef-
ur verið á undanförnum árum,
sumum svo að þær hafa alveg
glatað upprunalegri mynd sinni.
Sýningin er liður í Hönnunarmars
og stendur fram á sunnudag.
Teikningar Garðars sýna bygg-
ingarnar annars vegar eins og
þær litu út upphaflega og hins
vegar eins og þær líta út í dag.
Húsin sem hann hefur valið eru
módernísk stórhýsi frá sjötta, sjö-
unda og áttunda áratug síðustu
aldar. „Þessi hús eru eitt af ein-
kennum Reykjavíkur enda var
mikil uppbygging á þessu tíma-
bili,“ segir Garðar. „Nú, um 40 til
50 árum síðar, hafa mög þeirra
gengið í gegnum miklar viðgerðir
og breytingar.“
Sýningargestir dæmi sjálfir
„Ég hef lagt jafn mikla alúð í
teikningarnar af byggingunum
eins og þær voru í upphafi og eins
og þær eru núna. Ég læt sýning-
argesti um að dæma hvort vel hef-
ur tekist til,“ segir Garðar. Sjálfur
er hann þeirrar skoðunar að
stundum hafi breytingarnar
heppnast, en í öðrum tilvikum
vakni spurningar um hvort ekki
hafi verið gengið of langt. Dæmi
er um byggingar sem ekki þekkj-
ast lengur eins og þær voru upp-
runalega eins og húsið nr. 9 við
Aðalstræti sem hækkað var um
þrjár hæðir. „Stundum velti ég því
hreinlega fyrir mér hvað menn
hafi verið að spá. Þá sé ég ekki
hver hugsunin hefur verið í þeim
breytingum sem gerðar hafa ver-
ið,“ segir Garðar. Hann veltir fyr-
ir sér hvort yngri kynslóð arki-
tekta hafi önnur viðhorf til
módernískra bygginga í höfuð-
borginni en sú eldri; tengi ekki við
þær eins og sú eldri, upplifi ekki
gildi þeirra fyrir borgarlandslagið.
Ekki nýtt að húsum sé breytt
„Við arkitektar höfum tilhneig-
ingu til að setja fingraför okkar á
allar þær byggingar sem okkur er
falið að lagfæra eða breyta Ekki
hafa allar breytingarnar verið
gerðar af jafn mikilli virðingu fyr-
ir höfundarverki upprunalegu
hönnuðanna,“ segir Garðar. Hann
segir að stundum þegar arkitektar
eru fallnir frá séu engir sem láti
sig varða höfundarrétt þeirra og
sæmdarrétt. Dæmi séu um að fall-
ist sé á róttækar breytingar á
eldri byggingum frumkvöðla mód-
ernismans í íslenskum arkitektúr
án mikillar umhugsunar og at-
hugasemda. Um þetta hafi verið
talsverð rætt í stéttinni, en sitt
sýnist hverjum.
Garðar segir að það sé ekkert
nýtt að gömlum byggingum í
Reykjavík og annars staðar á
landinu sé breytt. Á sínum tíma
hafi það verið alsiða að gerbreyta
útliti gömlu timbur- og bárujárns-
húsanna með því að „augnstinga“
þau, þ.e. breyta gluggaumbúnað-
inum til einfaldari háttar, eða
„forskala“, þ.e. múrhúða þau. Á
síðustu áratugum hafi menn verið
að vinda ofan af þessum breyt-
ingum með ærinni fyrirhöfn og til-
kostnaði. Garðar veltir því fyrir
sér hvort hið sama verði raunin
með breytingarnar á módernísku
stórbyggingum að undanförnu; að
eftir nokkur ár vilji menn snúa
þeim í upprunalega mynd.
„Byggingar frá þessu tímabili
voru oftast í mjög úthugsuðum lit-
Er borgin okkar að verða litlaus?
Sýning á umbreytingu áberandi húsa í borginni frá skeiði módernismans í tilefni Hönnunarmars
Garðar Snæbjörnsson arkitekt kveðst vilja vekja fólk til umhugsunar en ekki kveða upp dóma
Teikning/Garðar Snæbjörnsson.
Skaftahlíð 24 Tekið í notkun 1959. Þá voru þarna nokkrar verslanir og veitingastaðurinn Lídó. Undanfarin ár hafa 365 miðlar verið þar til húsa.
Suðurlandsbraut 6. Tekið í notkun 1962. Byggingarvöruversl-
unin Þ. Þorgrímsson var upphaflega í húsinu ásamt skrifstofum.
hafðu það notalegt
handklæðaofnum
Vagnhöfða 11 - 110 Reykjavík - www.ofnasmidjan.is - sími 577 5177
Eigum úrval af
Leitar þú að traustu
Smiðjuvegur 30 (GUL GATA) | 200 Kópavogi
Sími 587 1400 |www. motorstilling.is
ALHLIÐA BÍLAVIÐGERÐIR < HJÓLBARÐAÞJÓNUSTA
Lífslíkur bílsins margfaldast
ef hugað er reglulega
að smurningu.ENGAR
tímapantanir
MÓTORSTILLING
fylgir fyrirmælum
bílaframleiðanda um
skipti á olíum og síum.