Morgunblaðið - 15.03.2018, Qupperneq 44
BAKSVIÐ
Anna Lilja Þórisdóttir
annalilja@mbl.is
Ekkert bendir til annars en að Vla-
dimír Pútín, forseti Rússlands,
verði kosinn í embættið í fjórða
sinn í forsetakosningunum næst-
komandi sunnudag, 18. mars. Kjör-
tímabil forseta Rússlands er sex ár,
sitji Pútín út næsta kjörtímabil hef-
ur hann þá verið ýmist forseti eða
forsætisráðherra í 24 ár, frá árinu
2000 og verður þar með fyrsti leið-
toginn í Kreml, frá tíma Leníns, til
að vera lengur en tvo áratugi við
völd.
Í síðustu forsetakosningum árið
2012 var kjörsókn 65% og Pútín
fékk 63,6% atkvæða. Í grein breska
dagblaðsins The Guardian segir að
rússnesk stjórnvöld hafi af því
nokkrar áhyggjur að kjörsókn verði
enn dræmari í ár og verður því ým-
islegt gert til að laða Rússa á kjör-
stað. T.d. verða kjósendur á mörg-
um stöðum sjálfkrafa þátttakendur
í happdrættum þar sem boðið er
upp á veglega vinninga á borð við
glæsibifreiðar og nýjustu útgáfurn-
ar af i-Phone.
Í grein The Guardian segir að
kosningarnar í ár verði líklega
skráðar á spjöld sögunnar sem þær
litlausustu í sögu Rússlands. Pútín
hefur að mestu haldið sig til hlés í
kosningabaráttunni. Í byrjun mán-
aðarins steig hann þó fram á sjón-
arsviðið og hélt kosningahátíð á
Luzhniki-leikvanginum í Moskvu
þar sem tugþúsundir Rússa, þeirra
á meðal fjölmörg frægðarmenni og
nýbakaðir ólympíumeistarar karla í
íshokkíi, fögnuðu forseta sínum
ákaft er hann hvatti þá til að ganga
til liðs við sig til að byggja upp
bjarta framtíð fyrir æsku landsins.
Ræða Pútíns á hátíðinni þótti hóg-
vær og laus við alla yfirlýsingagleði,
en ekki er hægt að segja það sama
um ræðu kaupsýslumannsins Ígors
Ashmanovs, eins stuðningsmanna
forsetans.
„Við erum hernaðarríki. Við er-
um með leiðtoga sem leggur undir
sig landsvæði, vinnur styrjaldir og
kynnir nýjar tegundir vopna til sög-
unnar. Hvers vegna ætti slíkt ríki
að skipta um leiðtoga?“ spurði
Ashmanov gesti leikvangsins og
uppskar hávært lófatak.
Í forsetaframboði í 6. sinn
En Pútín er ekki einn um hituna
því sjö til viðbótar vilja komast í
forsetastól. Sá sem mælist með
mest fylgi á eftir forsetanum er
Pavel Grudinin, 57 ára gamall
milljarðamæringur, stundum kall-
aður Jarðarberjakóngurinn vegna
þess að hann veitir forstöðu
stærstu jarðarberjaræktun Rúss-
lands. Hann er frambjóðandi
Kommúnistaflokksins, CPRV, og
gegndi valdastöðu í Sovétríkjunum
sálugu.
Sá sem mælist með þriðja mesta
fylgið er Vladimír Zhirinovskí,
gamalreyndur stjórnmálamaður
sem frá árinu 1991 hefur boðið sig
sex sinnum fram sem forseta Rúss-
lands. Hann er leiðtogi flokks
þjóðernissinna, LDPR og vakti
talsverða athygli í sjónvarpskapp-
ræðum nýverið þar sem allir fram-
bjóðendur nema Pútín tóku þátt.
Þar kallaði hann Kseníu Sobtsjak,
frambjóðanda Borgaralega fram-
taksflokksins, „heilalausa“ og hún
brást við með að hella yfir hann
vatni.
Sobtsjak mælist með fjórða
mesta fylgið en hún er 36 ára sjón-
varpsstjarna og stjórnandi spjall-
þátta, stundum kölluð Paris Hilton
Rússlands. Hún er dóttir Anatoly
Sobtsjak, sem var borgarstjóri í St.
Pétursborg og einn af lærifeðrum
Pútíns. Hún er sá frambjóðandi
sem er hlynntastur vestrænu sam-
starfi, hún hefur gagnrýnt Pútín og
segir hann hafa setið allt of lengi á
valdastóli.
Reyndir stjórnmálamenn
Boris Títov er leiðtogi Grósku-
flokksins og starfar fyrir forseta-
embættið að eflingu viðskiptasam-
banda við Kína. Hann er 57 ára og
hefur fram að þessu haft lítil af-
skipti af stjórnmálum. Í viðtali við
BBC sagði Títov að spilling, einkum
í viðskiptalífinu, væri helsta vanda-
mál Rússlands. Meðal stefnumála
hans er að landið verði ábatasamur
kostur fyrir alþjóðlega fjárfesta.
Sergei Baburín er 59 ára og er
frambjóðandi Alþýðusamtakanna.
Hann er lögfræðingur, hefur setið á
rússneska þinginu og var afar
mótfallinn því þegar ákveðið var að
leysa Sovétríkin upp. Hann er
stuðningsmaður utanríkisstefnu
Pútíns og innlimunar Krímskagans
í Rússland.
Grígorí Javlinskí er annar reynd-
ur stjórnmálamaður í framboði.
Hann er 65 ára, leiðir Jabloko-
flokkinn, var hagfræðingur sovéska
ríkisins og vann að efnahagsumbót-
um þegar Mikhaíl Gorbatsjov var
forseti. Hann vill lögleiða lágmarks-
laun og berjast gegn fátækt.
Maxim Suraíkin er 39 ára, fram-
bjóðandi flokksins Rússneskir
kommúnistar sem klofnaði frá
Kommúnistaflokknum árið 2012.
Hann lýsir sjálfum sér sem Lenín-
Stalínista og vill að Sovétríkin verði
stofnuð að nýju.
Þessu til viðbótar má nefna
stjórnarandstæðinginn og lögfræð-
inginn Alexei Navalní, sem hugði á
forsetaframboð en var meinað að
bjóða sig fram eftir að hann hlaut
fimm ára skilorðsbundinn dóm.
Hann hefur verið harður gagnrýn-
andi Pútíns og fékk næstflest at-
kvæði í borgarstjórakosningunum í
Moskvu 2012. Eftir að útséð varð
um framboð Navalnís hafa hann og
stuðningsmenn hans hvatt Rússa til
að sniðganga kosningarnar.
Rússar kjósa
forseta á
sunnudaginn
Fátt kemur í veg fyrir sigur Pútíns á
forsetastóli Sjö aðrir frambjóðendur
Aldur: 57 71 36
65 57 59 39
Auðugur kaupsýslu-
maður nýtur mest fylgis
en er langt á eftir Pútín
Leiðtogi öfgaþjóðernis-
flokksins LDPR
Sjónvarpsfréttamaður
með náin tengsl við
frjálslynda
Fyrrum félagi í
Kommúnista-
flokknum.
Stofnaði flokkinn
Rússneskir
kommúnistar
Sjö frambjóðendur gegn Pútín
PAVEL
GRUDININ
KSENÍA
SOBTSJAK
VLADIMÍR
ZHIRINOVSKÍ
GRÍGORÍ
JAVLINSKÍ
BORIS
TÍTOV
SERGEI
BABURÍN
MAXÍM
SURAÍKIN
41
Helsti leiðtogi stjórnarandstæðinga.
Var dæmdur ókjörgengur, hefur hvatt
til þess að forsetakosningarnar verði
sniðgengnar
ALEXEI
NAVALNÍ
Fjarverandi
7% 5% 2%
1% innan
við
1%
Staða samkvæmt
könnunum*
Heimild: *Opinbera stofnunin VTSIOM
Frjálslyndur,
stofnaði Jablonko-
flokkinn. Í framboði
í þriðja sinn
Kaupsýslumaður Fyrrum vara-
forseti Dúmunnar.
Leiðtogi Alþýðu-
samtakana sem er
þjóðernisflokkur
innan
við 1%
innan
við
1%
AFP
Þaulsætinn Vladimir Pútín á fundi með nánum stuðningsmönnum sínum í
Moskvu. Hann hefur að mestu haldið sig til hlés í kosningabaráttunni.
44 FRÉTTIRErlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 15. MARS 2018
Námsmenn víðsvegar um Banda-
ríkin gengu út úr skólum sínum í
gær til að krefjast þess að stjórn-
völd gerðu ráðstafanir til að sporna
við mannskæðum skotárásum í
landinu.
Margir námsmenn söfnuðust
einnig saman við Hvíta húsið og
gengu að þinghúsinu í Washington,
héldu á skiltum með áletruninni
„Verjum fólk, ekki byssur“ og
hrópuðu „Aldrei aftur“ og „Nú er
komið nóg“.
Efnt var til mótmælanna í tilefni
af því að mánuður er liðinn frá
skotárás í framhaldskóla í Flórída
þegar fyrrverandi nemandi hans
varð sautján manns að bana.
„Verjum fólk, ekki byssur“
HB-System
ABUS kranar í öll verk
Smiðjuvegi 66 • Kópavogi • 580 5800 • www.landvelar.is
Stoðkranar Brúkranar
Sveiflukranar