Morgunblaðið - 15.03.2018, Síða 50
50 UMRÆÐAN
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 15. MARS 2018
Krabbamein í
blöðruhálskirtli er
vanalega hægvaxandi
og hefur yfirleitt
hvorki áhrif á lífs-
lengd né lífsgæði.
Flestir deyja því með
krabbameinið en ekki
af völdum þess. En
meinið getur í sumum
tilfellum verið ágengt,
valdið einkennum,
stytt líf og rýrt lífsgæði. Mikilvægt
er að greina þau krabbamein sem
krefjast meðferðar. Á sama tíma
er mikilvægt að veita þeim karl-
mönnum ráðgjöf og stuðning sem
greinast en þarfnast ekki með-
ferðar.
Blöðruhálskirtillinn gegnir mjög
afmörkuðu hlutverki og er í raun
óþarfur séu frekari barneignir ekki
fyrirhugaðar. Kirtill-
inn myndar basískan
hluta sæðisvökvans
sem hlutleysir súrt
umhverfið í leggöng-
um kvenna. Þetta get-
ur lengt líf sáðfrumna
og aukið líkur á getn-
aði. Kirtillinn stækkar
oft með hækkandi
aldri, getur þrengt að
þvagrásinni sem ligg-
ur í gegnum kirtilinn
og leitt til þvagtregðu.
Meðferð og fylgikvillar
Þrátt fyrir þróun í aðgerðar-
tækni og geislameðferðum geta
aukaverkanir sem rýra mjög lífs-
gæði karlmanna fylgt meðferð á
krabbameini í blöðruhálskirtli.
Kirtillinn liggur djúpt í grindarhol-
inu í mikilli nálægð við þéttriðið
net fíngerðra tauga sem eru nauð-
synlegar fyrir holdris. Sömuleiðis
liggur neðri hluti kirtilsins við
hringvöðva sem kemur í veg fyrir
þvagleka. Vöðvinn og ristaugarnar
geta skaddast við meðferð og vald-
ið einkennum á borð við stinning-
arvandamál og þvagleka. Með-
ferðin gagnast sumum karl-
mönnum sem greinst hafa með
krabbamein í blöðruhálskirtli. Í
þeim tilfellum er áhætta á fylgi-
kvillum metin ásættanleg.
PSA-próf
PSA er glýkóprótein sem mynd-
ast í blöðruhálskirtlinum og fer að
hluta út í blóðrásina. PSA-gildi í
blóðsýni er lágt við eðlilegar að-
stæður en hækkun getur verið vís-
bending um sjúkdóm í kirtlinum.
PSA-skimunarprófið er ekki
gallalaust. Frískir karlmenn geta
verið með hækkað PSA og menn
með krabbamein í kirtlinum geta
verið með eðlilegt PSA-gildi. Þessi
staðreynd takmarkar notagildi
PSA sem skimunarprófs. Enn
fremur er PSA-gildið eitt og sér
ekki nægjanlegt til að greina
krabbameinið eða meta hve alvar-
legt það er.
Vefjasýni frá blöðruhálskirtli
Þegar grunur er um krabbamein
í blöðruhálskirtli, t.d. ef PSA-gildið
er hækkað eða ef æxlisgrunsam-
legir hnútar greinast við þreifingu
um endaþarm, er næsta skref að
taka vefjasýni frá kirtlinum. Þá
eru notaðar grannar nálar til að fá
sýni frá blöðruhálskirtlinum. Sýnin
eru tekin ómstýrt um endaþarm. Í
smásjá sést hvort æxlisfrumur
leynast í kirtlinum og hve illvígar
þær eru. Þetta inngrip er einfalt
og nauðsynlegt til að staðfesta
greininguna og meta stig krabba-
meinsins. Aukaverkanir eru óþæg-
indi og jafnvel sársauki við sýna-
tökuna. Venjulega sést blóð í
þvagi, hægðum og sæðisvökva í
nokkra daga eða vikur á eftir. Al-
varlegir fylgikvillar við inngripið
eru sjaldgæfir.
Segulómskoðun af
blöðruhálskirtli
Rannsóknir sýna að hver vefja-
sýnataka frá blöðruhálskirtli grein-
ir um helming marktækra krabba-
meina í kirtlinum. Venjulega er
mælt með tveimur sýnatökum ef
sú fyrsta sýnir ekki fram á
krabbamein. Við það eykst næmi
greiningarinnar og greinast þá um
þrjú af fjórum marktækum
krabbameinum í kirtlinum.
Til að auka næmi vefjasýnatök-
unnar er víða notuð segulóm-
skoðun af blöðruhálskirtlinum fyrir
sýnatökuna. Sjáist breytingar í
kirtlinum er miðað á þau svæði.
Rannsóknir hafa sýnt að þessi að-
ferð fækkar sýnatökum, fleiri
marktæk krabbamein greinast og
á sama tíma greinast ekki mein
sem ekki þarfnast meðferðar.
Flókið getur verið að meta breyt-
ingar á segulómmyndum og þarf
vel þjálfaða sérfræðinga til að
meta myndirnar. Enn fremur er
segulómskoðun dýr rannsókn og
biðlistar geta verið langir sem tak-
markar notkunarmöguleika.
Mottumars og ráðgjöf
Mottumars, árlegt árvekniátak
Krabbameinsfélagsins í marsmán-
uði, beinist að þessu sinni að
krabbameini í blöðruhálskirtli.
Unnið er að þróun gagnvirks tækis
sem ætlað er sem stuðningur fyrir
sjúklinga og lækna þegar kostir og
gallar PSA-skimunar eru ræddir.
Einnig er vert að minna á að fag-
fólk hjá Ráðgjafarþjónustu
Krabbameinsfélagsins veitir upp-
lýsingar og ráðgjöf í Skógarhlíð 8 í
Reykjavík alla virka daga og síma-
tími er á milli kl. 13 og 15 í síma
800 4040. Nánari upplýsingar um
þjónustuna og námskeið er að
finna á krabb.is.
Krabbamein í blöðruhálskirtli
Eftir Jón Örn
Friðriksson »Krabbamein í
blöðruhálskirtli er
vanalega hægvaxandi
og hefur yfirleitt hvorki
áhrif á lífslengd né lífs-
gæði.
Jón Örn Friðriksson
Höfundur er þvagfæraskurðlæknir
við sjúkrahúsið á Akureyri, LSH og
Krabbameinsskrá Íslands.
jonorn@krabb.is
Fáir velkjast lengur
í vafa um að sann-
gjörn og drengileg
samkeppni sé til hags-
bóta fyrir alla. Allar
helstu stjórnmála-
hreyfingar á Vestur-
löndum styðja opið
lýðræðissamfélag með
félagslegu stuðnings-
neti og frjálsum mark-
aði. Vissulega hafa
komið nýjar víddir inn
í stjórnmálin á síðustu árum þar
sem náttúruvernd og loftslagsmál
eru orðin fyrirferðarmikil í um-
ræðunni. En átökin á stjórn-
málasviðinu snúast þó helst um það
hvar eigi að draga mörkin á milli
markaðarins og fé-
lagslegra inngripa hins
opinbera.
Frjáls markaður
En þótt hinn frjálsi
markaður sé góður er
hann ekki fullkominn.
Sjálfur Adam Smith
benti á það á ofanverðri
18. öld að ríkið hefði
það hlutverk á frjálsum
markaði að setja leik-
reglur til þess að
tryggja heiðarlega og
sanngjarna samkeppni.
Menn hafi lengi vitað að hringa-
myndun auðmanna og stór-
fyrirtækja leiðir til fákeppni eða ein-
okunar sem eru andstaða hins
frjálsa markaðar. Bandaríkjamenn
settu Sherman-lögin strax árið 1890
til að taka á hringamyndun og evr-
ópska samkeppnislöggjöf má rekja í
gegnum sáttmála Evrópusambands-
ins aftur til lagasetningar einstakra
Evrópuríkja á fjórða áratugnum.
Markaðsbrestir
En það var ekki fyrr en á seinni
hluta síðustu aldar að hugtakið
markaðsbrestur tók á sig skýra
mynd sem hagfræðilegt hugtak.
Markaðsbrestur er það þegar fram-
leiðsla, dreifing eða sala á vöru eða
þjónustu er ekki skilvirk vegna ein-
hverrar brenglunar á markaði.
Þetta getur t.d. verið vegna nátt-
úrulegrar einokunar, fákeppni eða
upplýsingavandkvæða. Þá er oft
hætta á því að tilteknum samgæðum
eða almannahagsmunum sé kastað
fyrir róða vegna sérhagsmuna eða
stundargróða.
Neytendavernd
Við þessu bregðast vestræn ríki
með því t.d. að setja lög til að
tryggja samkeppni eins og hér var
gert árið 1994. Lög um neytenda-
vernd, merkingar eða upplýsinga-
gjöf til almennings eru af sama toga.
Stundum er líka gripið inn í með
beinni ríkisafskiptum, opinberri
verðlagningu, styrkjum eða til-
teknum kvöðum á fyrirtæki. Þetta
er algengt í fjarskiptum, heilbrigð-
isþjónustu og fleiri geirum. Þannig
er tryggt að samkeppni sé sann-
gjörn og heiðarleg – samfélagi og
neytendum til góða.
Upplýsingavandkvæði
Á Íslandi er umræða um sam-
keppnismál oft grunn og frasa-
kennd. Við búum hér við ýmsa
markaðsbresti sem helgast af því að
landið er lítið og fyrirtæki komast
gjarna í fákeppnisstöðu. En það
vantar líka mikið upp á að íslensk-
um neytendum séu tryggðar réttar
og ítarlegar upplýsingar. Oft er
dansað á línu hins löglega þegar lát-
ið er liggja að því að tiltekin vara sé
eitthvað annað en hún er. Neyt-
endur eiga t.d. að fá réttar og góðar
upplýsingar hvar sem þeir kaupa
matvörur, hvort sem er í verslunum,
á veitingastöðum eða í mötuneytum.
Neytendur eiga rétt á að vita
Kvaðir um að upplýsa um fram-
leiðsluferil eru litlar og eftirlitið í
molum. Neytendur eiga augljóslega
að fá að vita hvort – og þá hvaða –
hormónar, lyf, eitur- eða varnarefni
voru notuð við framleiðslu matvæla.
Neytendur eiga líka rétt á að um-
hverfisfótspor matvöru komi fram
með skilmerkilegum og skýrum
hætti m.t.t. kolefnislosunar, áburð-
arnotkunar, erfðabreytts fóðurs,
sýklalyfjanotkunar, hormónanotk-
unar, notkunar á illgresis- eða skor-
dýraeitri o.s.frv. Upplýsingaskortur
er alvarlegur markaðsbrestur og við
honum verður að bregðast ef frjáls
markaður á að blómstra.
Eftir Svavar
Halldórsson »Upplýsingaskortur
er alvarlegur mark-
aðsbrestur og við hon-
um verður að bregðast
ef frjáls markaður á að
blómstra.
Svavar
Halldórsson
Höfundur er framkvæmdastjóri
Markaðsráðs kindakjöts og Icelandic
lamb. svavar@bondi.is
Sanngjörn samkeppni
ÞÚ FINNUR ALLT Á FINNA.IS
Rafport ehf • Auðbrekka 9-11 • 200 Kópavogur • Sími 580 1900 • rafport@rafport.is
Merkivélarnar
frá Brother eru
frábær lausn
inná hvert
heimili og
fyrirtæki
Komdu og kíktu
á úrvalið hjá okkur
Síðumúli 11 - 108 Reykjavík | Dalshraun 13 - 220 Hafnarfjörður
560-8888 • www.vfs.is
Þegar þig vantar alvöru hörkutól