Morgunblaðið - 15.03.2018, Blaðsíða 36

Morgunblaðið - 15.03.2018, Blaðsíða 36
BAKSVIÐ Guðni Einarsson gudni@mbl.is Aðgerðaþjarki Landspítala – há- skólasjúkrahúss (LSH) var tekinn í notkun 20. janúar 2015. Búið var að nota hann við 475 aðgerðir hinn 6. mars síðastliðinn. Þjarkinn hefur sparað sjúkrahúsinu legurými vegna færri legudaga þeirra sem gangast undir aðgerð með þjarka samanborið við opnar skurðaðgerðir eins og áður tíðkuðust. Færri legu- dagar þýða að hægt er að koma að fleiri sjúklingum, til dæmis í val- aðgerðir, en ella. Einnig fylgir því sparnaður að sjúklingar eru fljótari að ná sér eftir aðgerð með þjarka en eftir opna skurðaðgerð og vinnutap þeirra er því minna. Auk þess og ekki veigaminnst eru minni per- sónuleg óþægindi sjúklinga og eftir- köst vegna skurðaðgerða með þjarka en sambærilegra opinna að- gerða. Safnað fyrir helmingnum Morgunblaðið ræddi við Eirík Jónsson, yfirlækni þvagfæra- skurðdeildar LSH, Rafn Hilmars- son þvagfæraskurðlækni og Hildu Hrönn Guðmundsdóttur, 5. árs læknanema, um reynsluna af að- gerðaþjarkanum. Eiríkur rifjaði upp aðdragandann að því að þjarkinn var keyptur. Tækið kostaði rúmar 300 milljónir króna. Stofnaður var styrktarsjóður og efnt til söfnunar fyrir helmingi kaupverðsins og hófst hún snemma árs 2013. Brynjólfur Bjarnason framkvæmdastjóri fór fyrir söfnuninni. KPMG lagði til um- gjörð söfnunarinnar sem og Íslands- banki. Stjórnendur Landspítalans og Kristján Þór Júlíusson, þáver- andi heilbrigðisráðherra, lögðust á eitt um að málið fengi framgang. Um 300 einstaklingar, fyrirtæki og félagasamtök gáfu í söfnunina. Ei- ríkur segir að ákveðið hafi verið að ef ekki tækist að safna helmingi stofnkostnaðarins innan tiltekins tíma yrðu frjálsu framlögin endur- greidd og kaupunum frestað. Þess þurfti ekki því takmarkið náðist. Án söfnunarinnar hefðu kaupin á þjark- anum frestast um mörg ár. Inngripsminni aðgerðir Lagt var upp með að nokkrar greinar skurðlækninga myndu nota þjarkann. Til þessa hafa þvagfæra-, kvensjúkdóma-, meltingar-, barna- og hjartaskurðlæknar gert aðgerðir með aðstoð þjarkans. Flestar vegna krabbameinssjúkdóma. „Mað aðstoð þjarkans er aðgerðin inngripsminni en áður og hefur leitt til minna blóðtaps í aðgerð, skemmri legutíma og skjótari bata. Þeir sem fara í slíkar aðgerðir eru nú oftast eina nótt á sjúkrahúsinu í saman- burði við tvo til þrjá daga áður,“ segir í þakkarbréfi sem Eiríkur sendi velunnurum söfnunarinnar í janúar. Aðgerðaþjarkinn hefur einnig orðið til þess að skurðlæknar sér- hæfðir í notkun aðgerðaþjarka hafa fest sig í sessi á Landspítalanum eða komið þar til starfa. Þeir hafa ýmist hlotið þjálfun erlendis eða hér heima. Þá hefur öflugu teymi skurð- hjúkrunarfræðinga verið komið á fót til að sinna þessum aðgerðum sér- staklega. Ásamt svæfingalæknum, svæfingahjúkrunarfræðingum, Aðgerða- þjarkinn hef- ur reynst vel  Þrjú ár síðan LSH tók aðgerða- þjarka í notkun  Sparar legurými  SJÁ SÍÐU 38 Aðgerðaþjarki Á þjarkanum eru fjórir armar sem halda á ýmsum áhöldum eftir þörfum. Stjórnstöðin Rafn Hilmarsson þvagfæraskurðlæknir við stjórntæki aðgerðaþjarkans. Handföngin stýra örmunum. 36 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 15. MARS 2018 Lágvær píanótónlist og suð í örmum aðgerðaþjarka Landspítala háskóla- sjúkrahúss (LSH) spiluðu undir hjá skurðstofuteyminu sem var að fjar- lægja blöðruhálskirtil. Sjúkling- urinn svaf á skurðborðinu og sást hvergi í hann fyrir dauðhreinsuðum grænum dúkum, nema á þöndum kviðnum. Þar gengu armar aðgerða- þjarkans og önnur tól inn í kvið- arholið um lítil göt. Armar þjarkans voru klæddir í dauðhreinsað plast og starfsfólkið næst sjúklingnum var líka í dauðhreinsuðum klæðum og hönskum. Rafn Hilmarsson, þvagfæra- skurðlæknir, sat afsíðis við stjórn- borð þjarkans, stýrði örmum hans og talaði við samstarfsfólkið í gegn- um hátalarakerfi. Annars talaðist fólk við í hálfum hljóðum ef eitthvað þurfti að segja. Við höfðalag skurð- borðsins sátu svæfingalæknir og svæfingahjúkrunarfræðingur og fylgdust með ástandi sjúklingsins. Skurðhjúkrunarfræðingar og lækn- ir sátu næst sjúklingnum og hand- stýrðu verkfærum sem aðstoðuðu þjarkann eða skiptu um verkfæri á örmunum eftir þörfum. Inni á skurð- stofunni voru að jafnaði 7-8 manns meðan á aðgerðinni stóð. Þar á með- Salsa-stemning á skurðstofunni Í sama takti Skurðstofuteymið vann saman eins og þaulæfð hljómsveit. Aðgerðaþjarki Landspítalans Velkomin í okkar hóp! Innritun og nánari upplýsingar í síma 581 3730 og á jsb.is Markviss, fjölbreytileg og öflug líkamsrækt fyrir konur og stelpur sem tekur mið af þörfum ólíkra hópa og skilar auknum krafti, hreysti og vellíðan. E F L IR / H N O T S K Ó G U R LÍTILL TÍMI FYRIR RÆKTINA? Komdu þér í fantaform með 1-2-3 æfingakerfinu okkar Taktu einn krefjandi 30 mínútna tíma, ef þú ert á hlaupum. Svo geturðu bætt við öðrum og þeim þriðja eftir því sem hentar þér best.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.