Morgunblaðið - 15.03.2018, Page 36
BAKSVIÐ
Guðni Einarsson
gudni@mbl.is
Aðgerðaþjarki Landspítala – há-
skólasjúkrahúss (LSH) var tekinn í
notkun 20. janúar 2015. Búið var að
nota hann við 475 aðgerðir hinn 6.
mars síðastliðinn. Þjarkinn hefur
sparað sjúkrahúsinu legurými
vegna færri legudaga þeirra sem
gangast undir aðgerð með þjarka
samanborið við opnar skurðaðgerðir
eins og áður tíðkuðust. Færri legu-
dagar þýða að hægt er að koma að
fleiri sjúklingum, til dæmis í val-
aðgerðir, en ella. Einnig fylgir því
sparnaður að sjúklingar eru fljótari
að ná sér eftir aðgerð með þjarka en
eftir opna skurðaðgerð og vinnutap
þeirra er því minna. Auk þess og
ekki veigaminnst eru minni per-
sónuleg óþægindi sjúklinga og eftir-
köst vegna skurðaðgerða með
þjarka en sambærilegra opinna að-
gerða.
Safnað fyrir helmingnum
Morgunblaðið ræddi við Eirík
Jónsson, yfirlækni þvagfæra-
skurðdeildar LSH, Rafn Hilmars-
son þvagfæraskurðlækni og Hildu
Hrönn Guðmundsdóttur, 5. árs
læknanema, um reynsluna af að-
gerðaþjarkanum. Eiríkur rifjaði upp
aðdragandann að því að þjarkinn
var keyptur. Tækið kostaði rúmar
300 milljónir króna. Stofnaður var
styrktarsjóður og efnt til söfnunar
fyrir helmingi kaupverðsins og hófst
hún snemma árs 2013. Brynjólfur
Bjarnason framkvæmdastjóri fór
fyrir söfnuninni. KPMG lagði til um-
gjörð söfnunarinnar sem og Íslands-
banki. Stjórnendur Landspítalans
og Kristján Þór Júlíusson, þáver-
andi heilbrigðisráðherra, lögðust á
eitt um að málið fengi framgang.
Um 300 einstaklingar, fyrirtæki og
félagasamtök gáfu í söfnunina. Ei-
ríkur segir að ákveðið hafi verið að
ef ekki tækist að safna helmingi
stofnkostnaðarins innan tiltekins
tíma yrðu frjálsu framlögin endur-
greidd og kaupunum frestað. Þess
þurfti ekki því takmarkið náðist. Án
söfnunarinnar hefðu kaupin á þjark-
anum frestast um mörg ár.
Inngripsminni aðgerðir
Lagt var upp með að nokkrar
greinar skurðlækninga myndu nota
þjarkann. Til þessa hafa þvagfæra-,
kvensjúkdóma-, meltingar-, barna-
og hjartaskurðlæknar gert aðgerðir
með aðstoð þjarkans. Flestar vegna
krabbameinssjúkdóma.
„Mað aðstoð þjarkans er aðgerðin
inngripsminni en áður og hefur leitt
til minna blóðtaps í aðgerð, skemmri
legutíma og skjótari bata. Þeir sem
fara í slíkar aðgerðir eru nú oftast
eina nótt á sjúkrahúsinu í saman-
burði við tvo til þrjá daga áður,“
segir í þakkarbréfi sem Eiríkur
sendi velunnurum söfnunarinnar í
janúar.
Aðgerðaþjarkinn hefur einnig
orðið til þess að skurðlæknar sér-
hæfðir í notkun aðgerðaþjarka hafa
fest sig í sessi á Landspítalanum eða
komið þar til starfa. Þeir hafa ýmist
hlotið þjálfun erlendis eða hér
heima. Þá hefur öflugu teymi skurð-
hjúkrunarfræðinga verið komið á fót
til að sinna þessum aðgerðum sér-
staklega. Ásamt svæfingalæknum,
svæfingahjúkrunarfræðingum,
Aðgerða-
þjarkinn hef-
ur reynst vel
Þrjú ár síðan LSH tók aðgerða-
þjarka í notkun Sparar legurými
SJÁ SÍÐU 38
Aðgerðaþjarki Á þjarkanum eru fjórir armar sem
halda á ýmsum áhöldum eftir þörfum.
Stjórnstöðin Rafn Hilmarsson þvagfæraskurðlæknir við
stjórntæki aðgerðaþjarkans. Handföngin stýra örmunum.
36
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 15. MARS 2018
Lágvær píanótónlist og suð í örmum
aðgerðaþjarka Landspítala háskóla-
sjúkrahúss (LSH) spiluðu undir hjá
skurðstofuteyminu sem var að fjar-
lægja blöðruhálskirtil. Sjúkling-
urinn svaf á skurðborðinu og sást
hvergi í hann fyrir dauðhreinsuðum
grænum dúkum, nema á þöndum
kviðnum. Þar gengu armar aðgerða-
þjarkans og önnur tól inn í kvið-
arholið um lítil göt. Armar þjarkans
voru klæddir í dauðhreinsað plast
og starfsfólkið næst sjúklingnum
var líka í dauðhreinsuðum klæðum
og hönskum.
Rafn Hilmarsson, þvagfæra-
skurðlæknir, sat afsíðis við stjórn-
borð þjarkans, stýrði örmum hans
og talaði við samstarfsfólkið í gegn-
um hátalarakerfi. Annars talaðist
fólk við í hálfum hljóðum ef eitthvað
þurfti að segja. Við höfðalag skurð-
borðsins sátu svæfingalæknir og
svæfingahjúkrunarfræðingur og
fylgdust með ástandi sjúklingsins.
Skurðhjúkrunarfræðingar og lækn-
ir sátu næst sjúklingnum og hand-
stýrðu verkfærum sem aðstoðuðu
þjarkann eða skiptu um verkfæri á
örmunum eftir þörfum. Inni á skurð-
stofunni voru að jafnaði 7-8 manns
meðan á aðgerðinni stóð. Þar á með-
Salsa-stemning
á skurðstofunni
Í sama takti Skurðstofuteymið vann saman eins og þaulæfð hljómsveit.
Aðgerðaþjarki Landspítalans
Velkomin í okkar hóp!
Innritun og nánari upplýsingar
í síma 581 3730 og á jsb.is
Markviss, fjölbreytileg og öflug líkamsrækt
fyrir konur og stelpur sem tekur mið
af þörfum ólíkra hópa og skilar auknum krafti,
hreysti og vellíðan.
E
F
L
IR
/
H
N
O
T
S
K
Ó
G
U
R
LÍTILL TÍMI FYRIR
RÆKTINA?
Komdu þér í fantaform
með 1-2-3 æfingakerfinu okkar
Taktu einn krefjandi 30 mínútna tíma, ef þú
ert á hlaupum. Svo geturðu bætt við öðrum
og þeim þriðja eftir því sem hentar þér best.