Morgunblaðið - 15.03.2018, Blaðsíða 33

Morgunblaðið - 15.03.2018, Blaðsíða 33
um. Nýju útgáfurnar eru yfirleitt hvítar, svartar og gráar,“ segir Garðar. Það er í samræmi við smekk yngri kynslóðar arkitekta. „Er borgin að verða litlaus fyrir vikið?“ spyr hann. Umbyggt frá grunni Byggingin sem sýnd er á stóru myndinni á bls. 32 er húsið númer 24 við Skaftahlíð. Það snýr bak- hliðinni að Miklubraut, fjölförn- ustu umferðargötu borgarinnar. Undanfarin 16 ár hafa 365 miðlar verið með starfsemi í húsinu, Fréttablaðið, Stöð 2, Bylgjuna og fleiri fjölmiðla. Þegar eigendur fyrirtækisins keyptu húsið upp úr síðustu alda- mótum var það orðið illa farið og þarfnaðist mikilla lagfæringa. Var ákveðið að ráðast í gagngera end- urnýjun innandyra og utan. Má segja að húsið hafi verið umbyggt frá grunni. Það var upphaflega tekið í notkun 1959, teiknað af Skarphéðni Jóhannessyni. Húsið gekk undir nafninu Lídó eftir glæsilegum veitingastað Þorvaldar Guðmundssonar á annarri hæð í austurendanum. Á jarðhæð húss- ins voru verslanir, stór matvöru- búð, bakarí, fiskbúð og mjólkur- búð. Ýmsar breytingar urðu á starfsemi í húsinu næstu árin. Ár- ið 1970 opnaði Reykjavíkurborg félagsmiðstöðina Tónabæ í húsa- kynnum Lídó og starfrækti hana næstu þrjá áratugina. Gekk húsið þá jafnan undir því nafni. Litirnir víkja Önnur bygginganna sem sýndar eru á bls. 32 er húsið nr. 6 við Suðurlandsbraut. Þar var rótgróin byggingarvöruverslun, Þ. Þor- grímsson & co., lengi til húsa. Ýmsar skrifstofur voru á hæð- unum. Arkitekt hússins var Skúli H. Norðdahl. Það var tekið í notk- un 1962, Þriðja teikningin, sem er hér efst á síðunni, er af byggingunni nr. 66-68 við Laugaveg. Hún var tekin í notkun í árslok 1970. Teikningin er gerð af Gísla Hall- dórssyni og samstarfsmönnum hans á Teiknistofunni Ármúla 6. Upphaflega voru þar til húsa herrafataverslunin P&Ó, Karna- bær og Kápan, en síðan hafa verslanir komið og farið. Eins og teikningarnar sýna voru öll húsin, sem hér eru tekin sem dæmi, litrík upphaflega. Útveggir voru gulir, bláir og grænir. Nú eru þeir eins og Garðar bendir á hvítir, svartir og gráir. Ekki lengur sama húsið Það húsanna á sýningunni í and- dyri Þjóðminjasafnsins sem mest hefur breyst er Aðalstræti 9, verslunar- og skrifstofuhús sem hafist var handa við að reisa 1969 eftir að eldra hús á lóðinni eyði- lagðist í eldsvoða tveimur árum fyrr. Það var byggt eftir upp- dráttum Gísla Halldórssonar, Jós- efs Reynis og Ólafs Júlíussonar á Teiknistofunni Ármúla 6. Húsið gekk jafnan undir heitinu Miðbæj- armarkaðurinn. Innandyra voru í upphafi 9 sérverslanir, þar á með- al kvenfatabúðin Markaðurinn, tískuverslunin Gullfoss, Herra- garðurinn, Linsan og matvöru- verslun SS. Í kjallaranum var kaffihúsið Ingólfsbrunnur. Í byrj- un tíunda áratugarins var húsinu gerbreytt og byggðar ofan á það þrjár hæðir. Ekki er lengur hægt að þekkja það fyrir sama húsið. Laugavegur 66-68. Tekið í notkun 1970. P&Ó og Karnabær voru þar. FRÉTTIR 33Innlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 15. MARS 2018 Guðni Th. Jóhannesson, forseti Ís- lands, verður meðal þátttakenda í göngu á vegum Ferðafélags Íslands á Úlfarsfell í dag. Félagið hefur boðið upp á slíkar ferðir alla fimmtudaga í tæp þrjú ár og gjarn- an hafa góðir gestir slegist með í för. „Okkur þykir virkilega vænt um að forsetinn þekkist boðið og komi með okkur,“ segir Reynir Trausta- son sem hefur umsjón með þessum ferðum og er fararstjóri. Þær bera yfirskriftina Hliðarskrefið og eru nú orðnar fastur liður í starfi FÍ. Þar á bæ hefur raunar verið settur aukinn þungi í ýmis verkefni sem tengjast lýðheilsu, það er að fá til dæmis kyrrsetufólk upp úr sóf- anum til að hreyfa sig. Lagt verður upp frá bílastæðum í Úlfarsárdal kl. 17:45 og þaðan er farið á fjallið. Ferðin tekur um tvær klukkustundir, gengið er í um fjór- ar klukkustundir og hækkunin er tveir kílómetrar. Hæsta bunga fjallsins er á því austanverðu og er 296 metra há. Tvær meginleiðir eru á fjallið, annars vegar úr Úlfarsár- dalnum og svo skógræktarsvæði Mosfellinga í Hamrahlíð við Vestur- landsveg. Er hún heldur meira krefjandi en sú fyrrnefnda. „Þetta verður bara skemmtilegt og veðurútlitið er gott. Kannski fá- einir regndropar sem ættu þó bara að bæta og kæta,“ segir Reynir. Góð aðsókn hefur verið í ferðir FÍ á Úlfarsfell sem er auðkleift og á flestra færi að ganga þar upp. Áformað er svo að í maí næstkom- andi verði, líkt og í fyrra, sérstök dagskrá á toppi fjallsins. Þá mættu um 2.000 manns en hljómsveitir og aðrir koma fram og spila fyrir fjallagarpa. sbs@mbl.is Forsetinn ætlar að ganga á Úlfarsfell Fjallganga Margir leggja leið sína á Úlfarsfell enda er leiðin þægileg. Guðni Th. Jóhannesson Reynir Traustason
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.