Morgunblaðið - 15.03.2018, Blaðsíða 33
um. Nýju útgáfurnar eru yfirleitt
hvítar, svartar og gráar,“ segir
Garðar. Það er í samræmi við
smekk yngri kynslóðar arkitekta.
„Er borgin að verða litlaus fyrir
vikið?“ spyr hann.
Umbyggt frá grunni
Byggingin sem sýnd er á stóru
myndinni á bls. 32 er húsið númer
24 við Skaftahlíð. Það snýr bak-
hliðinni að Miklubraut, fjölförn-
ustu umferðargötu borgarinnar.
Undanfarin 16 ár hafa 365 miðlar
verið með starfsemi í húsinu,
Fréttablaðið, Stöð 2, Bylgjuna og
fleiri fjölmiðla.
Þegar eigendur fyrirtækisins
keyptu húsið upp úr síðustu alda-
mótum var það orðið illa farið og
þarfnaðist mikilla lagfæringa. Var
ákveðið að ráðast í gagngera end-
urnýjun innandyra og utan. Má
segja að húsið hafi verið umbyggt
frá grunni. Það var upphaflega
tekið í notkun 1959, teiknað af
Skarphéðni Jóhannessyni. Húsið
gekk undir nafninu Lídó eftir
glæsilegum veitingastað Þorvaldar
Guðmundssonar á annarri hæð í
austurendanum. Á jarðhæð húss-
ins voru verslanir, stór matvöru-
búð, bakarí, fiskbúð og mjólkur-
búð. Ýmsar breytingar urðu á
starfsemi í húsinu næstu árin. Ár-
ið 1970 opnaði Reykjavíkurborg
félagsmiðstöðina Tónabæ í húsa-
kynnum Lídó og starfrækti hana
næstu þrjá áratugina. Gekk húsið
þá jafnan undir því nafni.
Litirnir víkja
Önnur bygginganna sem sýndar
eru á bls. 32 er húsið nr. 6 við
Suðurlandsbraut. Þar var rótgróin
byggingarvöruverslun, Þ. Þor-
grímsson & co., lengi til húsa.
Ýmsar skrifstofur voru á hæð-
unum. Arkitekt hússins var Skúli
H. Norðdahl. Það var tekið í notk-
un 1962,
Þriðja teikningin, sem er hér
efst á síðunni, er af byggingunni
nr. 66-68 við Laugaveg. Hún var
tekin í notkun í árslok 1970.
Teikningin er gerð af Gísla Hall-
dórssyni og samstarfsmönnum
hans á Teiknistofunni Ármúla 6.
Upphaflega voru þar til húsa
herrafataverslunin P&Ó, Karna-
bær og Kápan, en síðan hafa
verslanir komið og farið.
Eins og teikningarnar sýna voru
öll húsin, sem hér eru tekin sem
dæmi, litrík upphaflega. Útveggir
voru gulir, bláir og grænir. Nú
eru þeir eins og Garðar bendir á
hvítir, svartir og gráir.
Ekki lengur sama húsið
Það húsanna á sýningunni í and-
dyri Þjóðminjasafnsins sem mest
hefur breyst er Aðalstræti 9,
verslunar- og skrifstofuhús sem
hafist var handa við að reisa 1969
eftir að eldra hús á lóðinni eyði-
lagðist í eldsvoða tveimur árum
fyrr. Það var byggt eftir upp-
dráttum Gísla Halldórssonar, Jós-
efs Reynis og Ólafs Júlíussonar á
Teiknistofunni Ármúla 6. Húsið
gekk jafnan undir heitinu Miðbæj-
armarkaðurinn. Innandyra voru í
upphafi 9 sérverslanir, þar á með-
al kvenfatabúðin Markaðurinn,
tískuverslunin Gullfoss, Herra-
garðurinn, Linsan og matvöru-
verslun SS. Í kjallaranum var
kaffihúsið Ingólfsbrunnur. Í byrj-
un tíunda áratugarins var húsinu
gerbreytt og byggðar ofan á það
þrjár hæðir. Ekki er lengur hægt
að þekkja það fyrir sama húsið.
Laugavegur 66-68. Tekið í notkun
1970. P&Ó og Karnabær voru þar.
FRÉTTIR 33Innlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 15. MARS 2018
Guðni Th. Jóhannesson, forseti Ís-
lands, verður meðal þátttakenda í
göngu á vegum Ferðafélags Íslands
á Úlfarsfell í dag. Félagið hefur
boðið upp á slíkar ferðir alla
fimmtudaga í tæp þrjú ár og gjarn-
an hafa góðir gestir slegist með í
för.
„Okkur þykir virkilega vænt um
að forsetinn þekkist boðið og komi
með okkur,“ segir Reynir Trausta-
son sem hefur umsjón með þessum
ferðum og er fararstjóri. Þær bera
yfirskriftina Hliðarskrefið og eru
nú orðnar fastur liður í starfi FÍ.
Þar á bæ hefur raunar verið settur
aukinn þungi í ýmis verkefni sem
tengjast lýðheilsu, það er að fá til
dæmis kyrrsetufólk upp úr sóf-
anum til að hreyfa sig.
Lagt verður upp frá bílastæðum í
Úlfarsárdal kl. 17:45 og þaðan er
farið á fjallið. Ferðin tekur um tvær
klukkustundir, gengið er í um fjór-
ar klukkustundir og hækkunin er
tveir kílómetrar. Hæsta bunga
fjallsins er á því austanverðu og er
296 metra há. Tvær meginleiðir eru
á fjallið, annars vegar úr Úlfarsár-
dalnum og svo skógræktarsvæði
Mosfellinga í Hamrahlíð við Vestur-
landsveg. Er hún heldur meira
krefjandi en sú fyrrnefnda.
„Þetta verður bara skemmtilegt
og veðurútlitið er gott. Kannski fá-
einir regndropar sem ættu þó bara
að bæta og kæta,“ segir Reynir.
Góð aðsókn hefur verið í ferðir
FÍ á Úlfarsfell sem er auðkleift og á
flestra færi að ganga þar upp.
Áformað er svo að í maí næstkom-
andi verði, líkt og í fyrra, sérstök
dagskrá á toppi fjallsins. Þá mættu
um 2.000 manns en hljómsveitir og
aðrir koma fram og spila fyrir
fjallagarpa. sbs@mbl.is
Forsetinn ætlar að ganga á Úlfarsfell
Fjallganga Margir leggja leið sína á
Úlfarsfell enda er leiðin þægileg.
Guðni Th.
Jóhannesson
Reynir
Traustason