Morgunblaðið - 15.03.2018, Qupperneq 86
86 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 15. MARS 2018
VIÐTAL
Einar Falur Ingólfsson
efi@mbl.is
Björk heldur tónleika í Háskólabíói
12. apríl næstkomandi og flytur
ásamt hópi tónlistarmanna lög af nýj-
ustu plötu sinni, Utopia, hennar tí-
undu sólóplötu sem kom út í nóvem-
ber síðastliðnum.
„Þetta verður eins konar general-
prufa fyrir væntanlega tónleikaferð,“
segir Björk í samtali um tónleikana
og bætir við að eins og í mörgum fyrri
tónleikaferðum vinni hún með hópi
íslenskra listamanna. „Alveg síðan ég
gerði Homogenic hef ég unnið með ís-
lenskum strengjaleikurum, íslensk-
um brassstelpum á Voltu, var með
kórinn á Medullu og svo framvegis …
nú eru íslenskar flautustelpur með
mér.“
Á flauturnar leika þær Melkorka
Ólafsdóttir, Áshildur Haraldsdóttir,
Berglind María Tómasdóttir, Stein-
unn Vala Pálsdóttir, Björg Brjáns-
dóttir, Þuríður Jónsdóttir og Emilía
Rós Sigfúsdóttir. Bergur Þórisson
leikur á básúnu og sér um rafhljóð og
þá er ásláttarmeistarinn Manu De-
lago með eins og á nokkrum síðustu
plötum Bjarkar.
„Svo er Heimir Sverrisson að
hanna leikmyndina og Margrét
Bjarnadóttir kóreógrafíuna. Við
þessir Íslendingar höfum verið að
æfa kóreógrafíuna á leikmyndinni en
förum síðar til London, í lok maí, og
þar bætist við ljósasjóið og vísúal-
arnir sem eru sýndir á skjá fyrir aft-
an okkur.“ Björk segir að þessa tón-
leika nú haldi þau því án þess.
„Ég hef í raun aldrei selt áður inn á
þetta stig en mér heyrist fólk hér
heima kvarta yfir því að ég spili ekki
nógu oft hérna og svo held ég líka að
þetta verði mjög gott fyrir okkur öll
og lærdómsríkt að rúlla þessu í gegn,
sem genaralprufu án ljósa og mynd-
ræna þáttarins.“
Bara sjö er betra
Björk hefur gert mjög athyglis-
verð myndbönd með fjórum laganna
á Utopiu. Verður sjónræna nálgunin
á sviðinu í sama anda, fuglar, vindur
og draumkenndur léttleiki?
„Það kemur frá sama grunni en er
samt öðruvísi. Við leggjum alltaf
mikla vinnu í þessi myndbönd og það
er ákveðin frásögn í þeim, ég er alltaf
með í þeirri hugmyndavinnu, en við
fáum fyrir sviðið útgáfu sem er frek-
ar stemningar sem lögin gerast í,“
segir hún.
Flautur eru áberandi á Utopiu og
útsetti Björk leikinn á plötunni fyrir
tólf flautur. „Þær verða færri á tón-
leikunum því ég komst að því þegar
ég var að gera útsetningarnar að það
er ástæða fyrir því að ekki eru til nein
verk fyrir svo margar, hvorki í klass-
íska heiminum né poppinu. Ég komst
að því að læf er best að hafa bara sjö.
Þá heyrir maður betur í einstakling-
unum, og þótt það sé mótsagnakennt
þá myndast meiri orka. Þessar stelp-
ur eru ólíkar, sumar eru í nútíma-
tónlist, aðrar í franskri rómantík,
sumar í tilraunaspuna eða hljóð-
effektum – þær eru mjög ólíkar. Og
þetta eru bestu flautuleikarar Ís-
lands! Leika til dæmis með Sinfóní-
unni. Þá er gaman hvað þær eru á
ólíkum aldri, ein unglingur og svo
skalinn upp úr …“
Björk segir þær leika bæði á tré-
og málmflautur. „Mest á þessar
klassísku en líka á alt-flautu, sem er
dýpri, og bassaflautur, sem eru ennþá
dýpri. Í Frakklandi býr mikill sérvitr-
ingur sem hefur varið ævinni í að
skera út í tré stykki sem herma eftir
helstu fuglum heimsins og við pönt-
uðum svoleiðis og stelpurnar spila að-
eins á það. Þá fengum við send frá
Ástralíu, frá konu sem spilar á plöt-
unni, löng plaströr sem er sveiflað yf-
ir höfðinu og þá myndast vindhljóð.“
Flautuleikararnir eru með Björk á
sviðinu allan tímann og hafa verið
samdar sviðshreyfingar fyrir þær.
Tvær útgáfur af tónleikum
Þegar spurt er hvort Björk hafi
þurft að breyta útsetningunum af
plötunni mikið fyrir tónleikaferðina
segir hún það hafa verið nokkra
handavinnu að fækka flautunum út
tólf í sjö. Svo hafi hana langað til að
draga fram fleiri sóló hjá stelpunum.
„Ég lærði það í eldgamla daga, þegar
ég var í Kukli og Sykurmolunum, að
þegar ég byrja að túra er oft gott að
hafa eitthvað sem getur vaxið áfram.
Og það er misjafnt eftir plötum hvað
það er. Á þessari plötu myndi ég
segja að það væru flautusólóin og
gegnum túrinn, sem verður „on“ og
„off“ í tvö, þrjú ár, mun ég kannski
bæta inn flautusólóum hér og þar.
Stelpurnar gera þegar ákveðna sánd-
effekta, alls konar yfirtóna og vind-
hljóm.
Þemað er í raun vindur og það er
rok út alla plötuna,“ segir hún og
hlær. „Og svo eru það fuglar.“
Utopia er lengsta plata Bjarkar, yf-
ir 70 mínútur; mun hún leika hana í
heild sinn á tónleikunum?
„Nei. Á einhverjum tímapunkti en
ekki núna. Það verða tvær útgáfur af
plötunni á tónleikaferðinni. Í fyrsta
„Lærdómsríkt að rúlla þessu í gegn“
Björk kemur fram með sjö flautuleikurum í Háskólabíói 12. apríl Generalprufa fyrir tónleika-
ferð sem mun vara í tvö til þrjú ár „Hressa hliðin“ af plötunni Utopia mun hljóma segir hún
Ljósmynd/Santiago Felipe
Utopia „Ég hef í raun aldrei selt áður inn á þetta stig en mér heyrist fólk hér heima kvarta yfir því að ég spili ekki
nógu oft hérna og svo held ég líka að þetta verði mjög gott fyrir okkur öll,“ segir Björk um tónleikana í Háskólabíói.
Breski myndlist-
armaðurinn An-
ish Kapoor hefur
fordæmt það að
víðfrægt úti-
listaverk hans í
Chicago-borg,
„Baunin“ svo-
kölluð eða „Clo-
ud Gate“, skuli
birtast í áróðurs-
myndbandi NRA,
samtaka byssueigenda í Bandaríkj-
unum, ásamt fleiri opinberum stöð-
um stórborga, sem dæmi um vara-
sama staði að vera á.
Í yfirlýsingu fordæmir Kapoor
NRA og martraðarkenndar sundr-
ungarhugmyndir samtakanna og
segir þau afskræma „allt það sem
Cloud Gate – og Bandaríkin –
tákna.“ Hann ákvað þó að höfða
ekki mál til að stöðva birtingu
myndbandsins þar sem NRA hefði
her lögfræðinga og gríðarlegt fjár-
magn sem gerði þeim kleift að
draga málaferli á langinn.
Fordæmir notkun
NRA á Bauninni
Cloud Gate Kapo-
ors í Chicago.flísar fyrir vandláta
PORCELANOSA
Skútuvogi 6 - Sími 568 6755