Morgunblaðið - 15.03.2018, Page 8

Morgunblaðið - 15.03.2018, Page 8
8 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 15. MARS 2018 Þegar bresk yfirvöld rædduhvort fórna ætti pundinu fyrir evru gekk á með greinum, við- tölum og speki sér- sanntrúaðra Bruss- el dýrkara. Grunntónn allra var hinn sami. Bretar myndu aldrei hafna evrunni. Þeim væri ljóst að þá „myndu þeir einangrast, og ekki eiga ekki neina leið „að borð- inu“.    Svo háskalegt sem það værimyndi hitt ráða úrslitum að höfnuðu þeir evru væru þeir að kveða upp dauðadóm yfir „City“, breska fjármálahverfinu fræga. Bretar myndu aldrei fórna því.    En eins og allir vita nú blómstr-aði City eftir að ákvörðun lá fyrir. Og enn eru illspár uppi, eins og eftirfarandi frétt sýnir:    Forseti framkvæmdastjórnarEvrópusambandsins, Jean- Claude Juncker, sagði í Evrópu- þinginu í dag að sá dagur kæmi að Bretar myndu sjá eftir því að hafa sagt skilið við sambandið.    Fram kemur á fréttavef breskadagblaðsins Daily Telegraph að Juncker hefði áður en ummælin féllu rifjað upp að rétt rúmt ár væri þar til Bretland yfirgæfi Evr- ópusambandið formlega.    Þingmenn Breska sjálfstæðis-flokksins (UKIP) fögnuðu þeg- ar Juncker rifjaði þetta upp og sagði þá forsetinn: „Sá tími mun koma þegar þið munið sjá eftir ákvörðun ykkar.“    Við því brugðust þingmennirnirmeð hlátrasköllum. Jean Claude -Juncker Gamli brandarinn virkar enn STAKSTEINAR Veður víða um heim 14.3., kl. 18.00 Reykjavík 6 alskýjað Bolungarvík 2 alskýjað Akureyri 3 alskýjað Nuuk -4 skýjað Þórshöfn 5 alskýjað Ósló 3 heiðskírt Kaupmannahöfn 1 þoka Stokkhólmur -2 skýjað Helsinki -3 skýjað Lúxemborg 9 skýjað Brussel 12 heiðskírt Dublin 8 rigning Glasgow 10 rigning London 11 léttskýjað París 13 heiðskírt Amsterdam 10 léttskýjað Hamborg 4 skýjað Berlín 5 skýjað Vín 9 rigning Moskva -1 léttskýjað Algarve 17 skýjað Madríd 12 rigning Barcelona 15 léttskýjað Mallorca 14 léttskýjað Róm 15 léttskýjað Aþena 17 léttskýjað Winnipeg -9 skýjað Montreal 0 snjókoma New York 1 léttskýjað Chicago 0 heiðskírt Orlando 15 heiðskírt Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar- greinum Morgunblaðsins á slóðinni http://mbl.is/mogginn/leidarar/ VEÐUR KL. 12 Í DAG 15. mars Sólarupprás Sólsetur REYKJAVÍK 7:46 19:28 ÍSAFJÖRÐUR 7:52 19:32 SIGLUFJÖRÐUR 7:35 19:15 DJÚPIVOGUR 7:16 18:57 Boðað hefur verið til aðalfundar Spalar ehf. föstu- daginn 23. mars nk. á Akranesi. Þetta verður síð- asti aðalfundur félagsins. Reiknað er með því að félagið afhendi ríkinu Hvalfjarðargöngin til eignar síðsumars og í framhaldinu verður félaginu slitið. Samkvæmt samningi ríkisins og Spalar á ríkið að taka við rekstri Hvalfjarðarganga þegar öll lán vegna þeirra hafa verið greidd upp. Það mun að öllu óbreyttu gerast í júlí nk. Eins og fram hefur komið í fréttum hefur Spöl- ur þrýst á ráðneyti fjármála og samgöngumála að hefja viðræður við félagið um yfirtöku ríkisins á göngunum. Að sögn Gísla Gíslasonar, stjórnarfor- manns Spalar, hefur nú borist tölvupóstur þess efnis að Vegagerðin eigi að leiða viðræður við Spöl með það að leiðarljósi að þær hefjist sem fyrst. Vegagerðin mun annast rekstur ganganna fyrir hönd ríkisins. Þegar ríkið tekur yfir rekstur gang- anna verður gjaldtöku hætt. Spölur og ríkið sömdu árið 1995 um að félagið myndi byggja og reka Hvalfjarðargöng. Þau voru tekin í notkun í júlí 1998. Á þessum 20 árum hafa um 34 milljón ökutæki farið um þau. sisi@mbl.is Viðræður að hefjast um yfirtöku  Síðasti aðalfundur Spalar í næstu viku Morgunblaðið/Ernir Sara Dögg Jónsdóttir, sem er í forsvari fyrir lista Við- reisnar í Garða- bæ, segir að forsvarmenn þeirra lista sem að undanförnu hafi undirbúið sameiginlegt framboð í sveit- arstjórnarkosningunum í vor, hafi á fundi sínum í fyrrakvöld ákveð- ið að ganga til samstarfs, jafn- framt því sem fleiri hafi gengið til samstarfsins. Ákveðið var á fundinum að Samfylking, Vinstri græn, Björt framtíð, Viðreisn, Píratar, auk „öflugra óháðra frambjóðenda“ eins og Sara Dögg orðaði það, bjóði fram sameiginlegan lista. Hinn sameiginlegi listi er ekki frágenginn, en Sara Dögg sagði í samtali Við Morgunblaðið í gær, að listinn yrði væntanlega kynnt- ur í næstu viku. Miðflokkurinn mun bjóða fram í Garðabæ, og leiðir María Grétars- dóttir hann. Eins er talið næsta víst að Framsóknarflokkurinn bjóði fram í Garðabæ. agnes@mbl.is Sex bjóða fram saman í Garðabæ Sara Dögg Jónsdóttir innbyggðum gufugleypi SpAnhellubORðmeð Askalind 3 • 201 Kópavogur • Sími: 562 1500 • friform.is lOSnAðu Við hÁfinn Þýska hönnunarfyrirtækið BORA hefur unnið til margra verðlauna fyrir BORA spanhelluborðin sem eru með innbyggðum gufugleypi. Sparaðu pláss njóttu hreins lofts þegar þú eldar og losnaðu við fitu sem sest um allt eldhús sem fylgir eldamennskunni. ÞÝSK VeRðlAunAhönnun Sjámyndbönd á friform.is 5 ára ábyrgð á öllum raftækjum fRÁbÆR nÝjung enginn hÁfuR eKKeRtVeSen Opið: Mán. - fim. kl. 09 til 18 Föstudaga kl. 09 til 17 Laugardagar kl. 11 til 15

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.