Morgunblaðið - 15.03.2018, Síða 12

Morgunblaðið - 15.03.2018, Síða 12
„Hann var miklu meira en tískuhönnuður, hann skapaði persónuleika,“ sagði leikkonan Audrey Hepburn um sinn góða vin, Hubert de Givenchy. „Litli svarti kjóllinn”* Nokkrir kjólar frá Hubert de Givenchy, franska tískuteiknaranum sem lést í vikunni, 91 árs Kjólar frá Givenchy Heimildir : AFP Photos/Philippe Huguen/Gerard Julien/JohnKennedy Presidential Library and Museum * Sýningargripir á sýningu helgaðri ferli Givenchys í Calais, Frakklandi árið 2017 Klassísk hönnun frá 6. áratug 20. aldar Skarlatsrauð ullarkápa* Carla Bruni sýndi kjólinn í París, 1994 Leikkonan Audrey Hepburn klæddist kjólnum við frum- sýningu myndarinnar Breakfast at Tiffany’s 1961 Stíll sem Jacqueline Kennedy, forsetafrú Bandaríkjanna, gerði vinsælan á sjöunda áratugnum Brúðarkjóll Audrey Hepburn sýndi kjólinn í Amsterdam, 1954 AFP Valgerður Þ. Jónsdóttir vjon@mbl.is Le Grand Hubert, eða Huberthinn mikli, var hann oftkallaður, enda hátt í tveirmetrar á hæð og býsna myndarlegur. Fágaður þótti hann líka, annálaður snyrtipinni og flottur í tauinu til hinsta dags. Franski tísku- hönnuðurinn Hubert de Givenchy lést í vikunni, 91 árs gamall eftir langan og farsælan feril. Trúlega er hann einna frægastur fyrir að hafa hannað litla, svarta kjólinn, sem Audrey Hepburn skrýddist í kvikmyndinni Breakfast at Tiffany’s árið 1961. Samband þeirra Hepburn varði í fjóra áratugi, en hún lést 1993. Hún varð honum innblástur og átti stóran þátt í því að nafn hans festist í sessi í tískuheiminum, kvikmyndum – og jafnvel mannkynssögunni, eins og sumir vilja meina. Dýrðlegur klæðn- aður Audrey Hepburn í Funny Face frá 1957 og How to Steal a Million frá 1966 er mörgum ógleymanlegur. Aristókratískasti tískuhönn- uður Frakklands Frægir viðskiptavinir eins og Grace Kelly, Elizabeth Taylor og aðr- ar kvenkyns goðsagnir hvíta tjaldsins þóttu af öðrum bera í klæðum frá Gi- venchy og sömuleiðis Jackie Kennedy, forsetafrú Bandaríkjanna, sem var ókrýnt tískutákn sjöunda áratugar lið- innar aldar. Ekkert lát hefur verið á aðdrátt- arafli Givenchy-tískumerkisins í ár- anna rás. Skemmst er að minnast fatn- aðar Chadwick Bosemans, stjörn- unnar í splunkunýrri mynd, Black Panther, á rauða dreglinum við Óskarsverðlaunaafhendinguna, og annarrar að nafni Gal Gadot, sem lék Wonderwoman í fyrra, og þykir alltaf nokkuð smart. Á vefsíðu BBC er Civenchy sagð- ur aristókratískasti tískuhönnuður Frakklands. Enda var hann af aðals- fólki kominn. Honum var ætlað að læra lögfræði, en eftir seinna stríð tókst honum að fá fjölskyldu sína til að samþykkja að hann elti frekar drauma sína. Hann hafði mikla ástríðu fyrir fötum og réðst til starfa hjá hin- um framúrstefnulega tískuhönnuði, Elsa Schiaparelli, sem hann starfaði hjá þar til hann stofnaði sitt eigið há- tískuhús 1952, aðeins 24 ára að aldri. Tískutímaritið Vogue lofaði í hástert fyrstu flíkurnar sem hann sýndi á tískusýningu, sagði þær dásamlegar og The New York Times Magazine birti grein um hann með fyrirsögninni Stjarna er fædd. Einkennandi fyrir fyrstu tískulín- una, Separates, sem hann tefldi fram á sjónarsviðið, voru tvískiptar flíkur; efri og neðri hlutar, sem hægt var að nota sitt á hvað við alls konar annan fatnað. Bettina-blússan, sem hann nefndi svo til heiðurs fyrirsætunni Bettina Grazi- ani, vakti einnig mikla hrifningu. Ekki síst eftir að listamaðurinn René Gruau málaði mynd af fyrirsætunni í þessari hvítu blússu með pífuermunum. Heimspeki einfaldleikans Árið 1954 kynnti Givenchy til sög- unnar skyrtukjólinn svokallaða, sem var forveri pokakjólsins, sem hann kom fram með árið 1957. Sama ár setti hann einnig á markaðinn sitt fyrsta ilmvatn, L’interdit, og fékk Audrey Hepburn til að vera andlit þess. Til- tækið vakti mikla athygli, enda í fyrsta sinn sem heimurinn hafði séð fræga kvikmyndaleikkonu í slíku hlutverki. Ilmvatnið varð vitaskuld feikivinsælt. Það var engin lognmolla í kring- um Givenchy þegar hann var upp á sitt besta. Í byrjun sjöunda áratugarins hannaði hann og markaðssetti hús- gagnaáklæði, hannaði hótel að innan og meira að segja Ford Continental- bíl. Givenchy fór aldrei í launkofa með að tískuhönnuðurinn Cristóbal Balenciaga (1895-1972) væri hans fyr- irmynd og lærifaðir. Að hætti Balen- ciaga hafi hann tileinkað sér heimspeki einfaldleikans. Mesta blómaskeið Givenchy var frá sjötta áratugnum og allt fram á þann níunda. Hann hélt þó áfram að hanna fatnað löngu eftir að hann seldi tískuhúsið til Moet Hennessy-Louis Vuitton árið 1988. Meðal þeirra sem síðan hafa haldið þar um hönnunar- taumana eru John Galliano, Alexander McQueen og Riccardo Tisci. Síðasta sýningin „Ég hef hætt að hanna kjóla, en ekki að gera uppgötvanir. Lífið er eins og bók, hver og einn verður að vita hvenær á að fletta blaðsíðunum,“ sagði Givenchy við vini sína áður en hann hélt sína síðustu haust- og vetrartísku- sýningu 1995/1996. Eftir að hann dró sig í hlé mætti hann annað slagið á viðburði sem haldnir voru honum og lífsstarfi hans til heiðurs. „Tákn „parísks“ glæsileika í meira en hálfa öld,“ voru eftirmæli talsmanna Givenchy-tískuhússins um stofnanda þess. „Einn af þeim skap- andi mönnum sem komu París á há- tind tískuheimsins á sjötta áratugn- um,“ sagði viðskiptajöfurinn Bernard Arnault, yfirmaður LVMH-fyrir- tækisins, sem núna á Givenchy. Franski tískuhönnuður- inn Hubert de Givenchy lést í vikunni, 91 árs gamall. Þótt hann hafi unnið sér margt til frægð- ar er hann kannski þekktastur fyrir að hafa hannað litla, svarta kjólinn, sem Audrey Hepburn skrýddist í kvikmyndinni Breakfast at Tiffany’s. Tískustjarna hverfur á braut AFP 2018 Gal Gadot í Civenchy-kjól við Óskarverðlaunaafhendinguna. Sígildur Litli svarti kjólinn lék stórt hlutverk í Breakfast at Tiff- any’s árið 1961. Bettina Listamaðurinn René Gruau málaði fræga mynd af fyrirsætunni Bettina Graziane í hvítri blússu með pífuermum eftir Givenchy. Til Audrey með ástarkveðju Givenchy mætti á sýn- inguna To Audrey With Love, sem haldin var í Gemeente- safninu í Haag í Hollandi árið 2016. 12 DAGLEGT LÍF MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 15. MARS 2018 Upplifunarreif, eða skynjunarreif, nefnist viðburður sem Fischer, ný búð í Grjótaþorpinu, efnir til kl. 16-18 í dag, fimmtudaginn 15. mars. Þar er lögð áhersla á að örva allar skynjanir, skoða hugmyndir um skynjun og tek- ur vöruúrvalið mið af því. Gestum er drekkt í ilmi, tónlist, áferð, bragði og myndum og boðið í ferðalag um búð- ina í tilefni Hönnunarmars. Ilmur, tónlist og áferð Skynjunarreif í Fischer Gestgjafar Lilja Birgis, Jón Þ. Birgis- son, Ingibjörg Birgisdóttir, Sindri M. Sigfússon, Kjartan Holm, Alex Somers. H V Í T T S Ú K K U L A Ð I E G G
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.