Morgunblaðið - 15.03.2018, Page 42
VIÐTAL
Magnús Heimir Jónasson
mhj@mbl.is
Thomas Fletcher, fyrrverandi sendi-
herra Bretlands í Líbanon og þar áð-
ur ráðgjafi þriggja forsætisráðherra
Bretlands í utanríkismálum, mun
fjalla um utanríkismál á ráðstefnu
sem utanríkisráðuneytið og Alþjóða-
málastofnun Háskóla Íslands, standa
fyrir á morgun, föstudag. Fletcher
var sendiherra í Líbanon á árunum
2011 til 2015. Þegar hann var skip-
aður, aðeins 36 ára gamall, var hann
yngsti sendiherra Breta í 200 ár.
Hann sagði starfi sínu lausu til að
gefa út bókina The Naked Diplo-
macy. Power and Statecraft in the
Digital Age, þar sem hann fer af-
dráttarlaust yfir áskoranir tækniald-
arinnar á diplómata og utanríkis-
þjónustu. Hann er einnig aðal-
höfundur bresku skýrslunnar Future
FCO sem fjallar um hvernig bresk
utanríkisþjónusta gæti bætt hlutverk
sitt eftir nýstárlegum leiðum. Í við-
tali við Morgunblaðið segir Fletcher
að nauðsynlegt sé að endurhugsa
hlutverk diplómata á tækniöld og af
hverju hann telur nauðsynlegt að al-
mennir borgarar taki meiri þátt í al-
þjóðasamskiptum. „Hugmyndin er í
grunninn sú að diplómasía sé eins og
fyrirtækjarekstur og þurfi að opna
sig. Það er mín upplifun að alltaf þeg-
ar almennir borgarar taka meiri þátt,
þegar alþjóðasamskipti verða opnari,
gegnsærri eða skýranlegri þá verði
hún betri,“ segir Fletcher sem metur
velgengni á ákveðinn hátt. „Vel-
gengni í alþjóðasamskiptum er metin
eftir því hversu margir deyja í stríð-
um. Meginmarkmið alþjóða-
samskipta er að koma í veg fyrir það
og ef okkar gengur vel eru dánar-
tölur lágar. Það er mín reynsla að því
fleiri sem taka þátt því betri árangur
náist.“
Fletcher þekkir hryðjuverkaógn-
ina vel eftir störf sín í Líbanon. Hann
segir nauðsynlegt að styðja þá sem
tala fyrir aukinni samvinnu og að
hinn almenni borgari sé mikilvægur í
þeirri umræðu. „Skýrasta sundr-
ungin í pólítík í dag er ekki milli
norðurs og suðurs, austurs og vest-
urs, kristinnar trúar eða íslam, held-
ur þeirra sem vilja lifa í sátt og sam-
lyndi og þeirra sem vilja byggja
múra. Hvort sem það er Íslamska
ríkið, Donald Trump eða öfgamenn í
okkar eigin löndum þá þarf fleiri al-
menna borgara í fremstu línu til að
taka þátt í umræðunni“. Fletcher
bendir jafnframt á að alþjóða-
samskipti séu ekki leynd list heldur
aðgengileg öllum og mörg alþjóðleg
samtök, stórfyrirtæki og fjölmiðlar
taki nú þegar þátt.
Fletcher hefur í ræðu og riti fjallað
um áhrif stærri tæknifyrirtækja á
borð við Google á gang heimsmál-
anna. Spurður um hvaða hlutverk
slíkir tæknirisar spili á alþjóðavett-
vangi segir hann þá afar áhrifamikla
á ákveðnum sviðum og að nauðsyn-
legt sé fyrir ríki að auka samstarf við
slík fyrirtæki. „Vandamálið þessa
stundina er hins vegar það að ríkin
og tæknifyrirtækin hafa ekki náð að
tala nægjanlega vel saman. Ríki tala
við tæknifyrirtækin eins og lítil
óþekk börn og tæknifyrirtækin horfa
á ríkisstjórnir eins og þær séu gamall
frændi að dansa í brúðkaupi og allir
skammist sín örlítið fyrir það. Ég tel
að það sé raunverulegt hlutverkt
diplómata að reyna að brúa bilið milli
þessara tveggja aðila“.
Þurfa að aðlagast nýjum tímum
Fletcher segir að alþjóðasamskipti
hafi alltaf þurft að taka breytingum
og þróast áfram og segir hann að
hlutverk diplómatans nú, sem og áð-
ur, þurfi að aðlagast nýjum tímum.
„Alþjóðasamskipti hafa þurft að að-
lagast tæknilegum framförum á
hverjum tíma. Þegar maðurinn byrj-
aði að ferðast á hestbaki gjörbreytt-
ust alþjóðasamskipti, þegar sjón-
varpið kom til hættu diplómatar að
stýra upplýsingaflæðinu því blaða-
menn voru mun sneggri að koma
upplýsingum til skila. Hlutverk
diplómatans varð meira fólgið í því að
útskýra hlutina. Þegar síminn kom
sagði Palmerston, breski utanríkis-
ráðherrann, að það fæli í sér endalok
alþjóðasamskiptanna. Þar sem leið-
togar heimsins gætu nú rætt saman
sín á milli án milligöngu. Slíkar
breytingar kalla á nauðsyn þess að
læra og aðlagast nýrri tækni og
þurfa diplómatar að gera það sama
með t.d. samfélagsmiðla. Það er hins
vegar mjög augljóst í dag að það er
verið að gera mörg mistök en
stærstu mistökin eru að reyna ekki.“
Gríðargögn skipta sköpum
Spurður hvaða eiginleika hann
telji diplómata þurfa að hafa á 21.öld-
inni segir hann tæknikunnáttu afar
mikilvæga. „Tilfinningagreind, sam-
kennd, gagnrýnin hugsun og hæfi-
leiki til að byggja tengslanet og nýta
það, verða áfram mikilvægir eigin-
leikar en einnig þarf að hafa stjórn á
nýrri tækni. Það þýðir að hluta til
snjallsíminn og samfélagsmiðlar og
hvernig þú miðlar upplýsingum en
einnig er þörf á að geta nýtt sér gríð-
argögn. Í fyrsta skipti eru gríðar-
gögn að gera nákvæmari spár um
hvað gerist í fjarlægum löndum en
sérfræðingar. Fyrir tíu árum síðan
hefði forsætisráðherra Bretlands
spurt sendiherra hvað væri líklegast
að fara að gerast í ákveðnu landi og
sendiherran gefið upplýsta ágiskun
byggða á samtölum við heimamenn
og nokkrum ritstjórnarspistlum í
fjölmiðlum. Núna eru komnar ná-
kvæmari leiðir til að reikna út líkleg-
ustu niðurstöðurnar og við þurfum
að tileinka okkur þessar breytingar.
Annars verður diplómatinn eins og
filmuframleiðandinn Kodak, hann
rankar við sér einn daginn og það er
engin þörf fyrir hann.“
Fletcher nýtti sér samfélagsmiðla
mikið í störfum sínum sem sendi-
herra. Þegar hryðjuverkaárás var
gerð á sendiráð Írans í Beirút árið
2013, vakti hann heimsathygli þegar
hann tilkynnti á samfélagsmiðlum að
hann ætlaði að gefa blóð til stuðnings
Írönum. „Á þeim tíma voru Bretar
og Íranar ekki með formleg sam-
skipti svo ég gat ekki sent samúðar-
kveðjur á formlegan hátt. Ég fór og
gaf blóð því ég vildi sýna írönsku
þjóðinni stuðning. Við eigum okkar
ágreining við írönsk stjórnvöld, ekki
fólkið. Þessi samfélagsmiðlapóstur
fór víða og kom mörgum virkilega á
óvart í Teheran þar sem ríkistjórnin
hefur sagt þjóðinni að við séum litli
Satan. Skyndilega sá fólkið litla Sat-
an rétta hjálparhönd.“
Spurður hvort samfélagsmiðlar
skapi ekki vandamál fyrir diplómata
segir hann þá vera tvíeggjað sverð.
„Á þessari stundu valda þeir auknu
álagi á Vesturlönd mestmegnis, lönd
sem hafa gagnsæi í heiðri. Þau flækja
hlutina því þau ýta undir rökræður.
Churchill þurfti ekki að rökræða op-
inberlega við þjóðina í hvert skipti
sem ný stefna í utanríkismálum var
tekin upp. Við viljum hins vegar taka
ábyrgð á aðgerðum okkar og hafa
öflugan almenning sem lætur málin
sig varða og ég tel að heilt á litið sé
þetta jákvætt. Þessi opna umræða
veldur því líka að andstæðingar, s.s.
Rússland, vita hvað við erum að gera.
Til skamms tíma veitir þetta löndum,
sem búa við stjórnarfyrirkomulag
sem einkennist fremur af einræði og
minna gagnsæi, forskot en ég efast
ekki um að til lengri tíma munum við
hafa betur“.
Í Future FCO skýrslunni sem
Fletcher vann fyrir utanríkisþjón-
ustu Bretlands koma þessar skoðanir
skýrlega í ljós þar sem hann segir
nauðsynlegt fyrir Breta að tileinka
sér notkun gríðargagna og segir að
95% af starfi utanríkisþjónustunnar
ættu að vera opin almenningi. Fletc-
her starfar nú í Abu Dhabi við að
koma sýrlenskum flóttabörnum í
Líbanon, Jórdaníu og Tyrklandi í
skóla. Vinnur hann að því að fá stór-
fyrirtæki að borðinu til að aðstoða við
menntun barna á svæðinu. Þá er
hann einnig í hlutastarfi sem prófess-
or við New York háskóla. Þá vinnur
hann einnig að ritun skáldsögu.
Hann segist spenntur fyrir því að
koma til Íslands þrátt fyrir að hafa
heyrt sögur um að hér sé afar kalt.
Alþjóðasamskipti á krossgötum
Fyrrverandi sendiherra Bretlands í Líbanon segir nauðynlegt fyrir utanríkisþjónustu að aðlagast
tæknibreytingum Hann segir nauðsynlegt að störf diplómata séu opin og aðgengileg almenningi
Ljósmynd/aðsend
Fyrrverandi sendiherra Fletcher mun tala á ráðstefnu sem utanríkisráðuneytið og Alþjóðamálastofnun Háskóla
Íslands standa fyrir sem liður í framkvæmd skýrslunnar Utanríkisþjónusta til framtíðar sem út kom í haust.
Ljósmynd/wikimedia
Downing-stræti 10 Thomas Fletcher starfaði sem ráðgjafi þriggja forsætis-
ráðherra Bretlands í utanríkismálum áður en hann varð sendiherra.
42 FRÉTTIRErlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 15. MARS 2018
VW CARAVELLE 9 MANNA.
Árgerð 2017, ek. aðeins 29 þús. km.
Dísel, sjálfskiptur. Verð 6.980.000.
Rnr.247884. Er á staðnum.
HYUNDAI TUCSON COMFORT+
Dísel, sjálfskiptur. Sambærilegur bíll í
umboði kostar kr. 5.590.000.
Er með ábyrgð. Verð 4.890.000.
Rnr.246518. Er á staðnum.
VW TOUAREG R-LINE
PANORAMA. Dísel, sjálfskiptur, 265
hö. Verð 9.980.000. Er með ábyrgð.
Rnr.247898. Er á staðnum.
AUDI Q7 QUATTRO 3.0 TDI.
Árgerð 2016, ekinn 36. þús km, dísel,
sjálfskiptur. Verð 9.390.000.
Rnr.247883. Er á staðnum.
HYUNDAI IX35 COMFORT.
Dísel, sjálfskiptur, nýr eftirárs bíll.
Er með ábyrgð. Verð 3.990.000.
Rnr.247871. Er á staðnum.
SUZUKI BALENO GLX 1.0
BOOSTERJET. Bensín, sjálfskiptur.
Sambærilegur bíll í umboði kostar
kr. 3.320.000. Verð 2.790.000. Er með
ábyrgð. Rnr.247508. Er á staðnum.
NÝ
R B
ÍLL
!
NÝ
R B
ÍLL
!
NÝ
R B
ÍLL
!
NÝ
R B
ÍLL
!
562 1717
Kletthálsi 2 - bilalif@bilalif.is
bilalif.is